Heilsuvernd - 01.10.1963, Síða 25
HJÁLP í VIÐLÖGUM:
Axlarliðlilaup
Sjúklingurinn slakar á vöSvum og Uvtur
oxlina slúta út fyrir barSröndina. Mjúk•
ar flíkur skulu settar undir hójuS Itans og
hrjóst.
Ef til læknis næst innan tíðar, þá látið mann,
sem farið hefur úr axlarlið, liggja á grúfu á
borði eða bekk með hangandi handlegg (eins
og fyrri myndin sýnir) meðan beðið er eflir
lœkninum. Þrautirnar í öxlinni hverfa fljótt,
ef sjúklingurinn liggur rólegur og reynir að
slaka á vöðvum. Stundum sígur öxlin í samt
lag, sé legið þannig drjúga stund. Ef útilokað
er að ná í lækni samdægurs og ekki rennur í
liðinn, gætu leikmenn reynt að toga varlega í
handlegginn niður á við og haga átökunum
eins og sýnt er á seinni myndinni.
Sænski læknirinn Göran Jacobsen í Gavle skrifaði nýlega um
reynslu sína á þessari aðferð
og telur hana gefa góða raun.
Haukur Kristjánsson, yfir-
læknir Slysavarðstofunnar í
Reykjavík, hefir siimu sögu
að segja.
/. (). J.
E) ckki nœst í lækni samdwgurs, gætu leikmenn reynt
aS koma liSnum í lag meS Jwí aS toga varlega í hand-
legginn niSur á viS.
II EII.SUVERND
145