Heilsuvernd - 01.06.1972, Blaðsíða 4
JÓNAS KRISTJÁNSSON LÆKNIR
Hyggaar
húsmæður
Eg hygg að engin vísinda-
grein sé skemmra á veg kom-
in en sú að kunna rétt tök á
mataræði. Sú fræðsla, sem
þegar er fengin, hefir ennþá
ekki náð tökum á alþýðu
manna til bœttrar heílsu.
Nœringarfræðin er ein grein
lœknisfrœðinnar og fræði-
grein út af fyrir sig. En
hyggnar húsmæður í sveit
hafa löngum staðið mörgum
læknum framar á þessu sviði.
Það er þó sorglegur sannleik-
ur, að þessum hyggnu hús-
mæðrum fækkar með hverj-
um áratug.
Eg hefi veitt því eftirtekt,
að á fremur fátækum heim-
ilum í sveit, þar sem fyrir var
fjölmennur barnahópur og
heimilið svo lánsamt að eiga
hyggna og hagfróða húsmóð-
ur, þar voru börnin óvana-
lega hraust, heilsugóð og táp-
mikil til vinnu. Þessi heimili
höfðu ekki kaupgetu til þess
að veita sér útlendar tizku-
vörur, nema að mjög litlu
leyti. Húsbændurnir gættu
þess að kaupa aðeins það,
sem állra nauðsynlegast var
og borgunargeta leyfði.
Bömin ólust að langmestu
leyti upp á því, sem heimilið
sjálft gat framleitt, garð-
ávöxtum, mjólk og mjólkur-
mat, kjöti og sjófangi, sem
68
HEILSUVERND