Heilsuvernd - 01.06.1972, Page 9

Heilsuvernd - 01.06.1972, Page 9
Ráð við sinadrætti Sumum gefst það vel að spyrna þétt í fótagafl rúmsins eða stíga fram á gólf, eða þá að reyna að rétta gætilega úr fætinum, ennfremur að kreppa hnéð og reyna með höndunum að koma fætinum í eðlilega stellingu. Þá má reyna að nudda kálfann með heitum höndum, ekki með köldum höndum,því að það mundi gera illt verra. Heitur bakstur eða heitt fótabað dregur líka úr vöðva- krampanum, og slík böð eru tilvalin til að draga úr sinadráttum hjá þeim, sem eiga vanda til þessara hvimleiðu næturtruflana. (Lauslega þýtt úr grein eftir W. Schweigenheimer lækni í I)er Deutsche Bailebetrieb.) Fót- og tiandkuldi Fótkuldi er merki þess, að starfsemi líkamans sé í einhverju áfátt. Hann er tíðari hjá konum en körlum. Honum fylgir van- líðan, m.a. svefnleysi, því að fólk á erfitt með að sofna með kalda fætur, og það geta liðið margar klukkustundir, unz fæturnir hafa hitnað, þótt sængurföt séu óaðfinnanleg og nægur hiti í svefn- herberginu. Orsakir Þær geta verið margar. Meðal þeirra má telja þrönga skó eða þröng sokkabönd. Ennfremur æðasjúkdóma í fótleggjum, svo sem æðuhnúta, eða þá hjartasjúkdóma. Sé hjartað veiklað eða blóð- þrýstingur lágur, verður blóðrásin hægari en ella, ekki hvað sízt í fótaæðunum, og megnar blóðið þá ekki að flytja fótunum nægan hita. Sama skeður, ef æðar fótanna þrengjast eða bila og hætta að geta flutt blóðið með eðlilegum hætti. í æðakölkun þrengjast slagæðamar og missa þanþol sitt, og í æðahnútum er um að ræða víkkun á bláæðunum, sem flytja blóðið upp til hjartans; æða- HEILSUVERND 73

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.