Heilsuvernd - 01.06.1972, Side 13

Heilsuvernd - 01.06.1972, Side 13
Fundir í NLFR Mánudaginn 31. jan. 1972 kl. 21 var félagsfundur í Náttúru- lækningafélagi Reykjavíkur í matstofu félagsins, Kirkjustræti 8. Eiður Sigurðsson las grein eftir Jónas Kristjánsson lækni úr tímaritinu Heilsuvernd, 2. hefti 1949, um svissneska náttúru- lækninn Bircher-Benner. Eggert Kristinsson las upphafskaflann úr bók Are Waerlands, Menningarplágan mikla, 7. riti NLFÍ, og heitir sá kafli „Líf er eldur“. Síðan rif jaði Árni Ásbjarnarson upp starfsemi NLFÍ og skýrði frá starfinu á árinu 1971. Að lokum urðu nokkrar umræður um félagsmál, og eftir fundarslit voru born- ar fram veitingar. Aaðalfundur NLFR Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur var haldinn í matstofu félagsins, Kirkjustræti 8, mánudaginn 20. marz. For- maður félagsins, Anna Matthíasdóttir, mælti nokkur ávarpsorð og bað Björn L. Jónsson að taka við fundarstjóm. Formaður flutti skýrslu stjórnar, og fer útdráttur úr henni hér á efti. Tala félaga í árslok var sem hér segir (tölurnar í sviga frá árinu áður): Ársfélagar 650 (668), ævifélagar 144 (138), samtals 794 (806)1. Meðal látinna félaga á árinu voru Pétur Sigurðsson rit- stjóri og Steindór Björnsson frá Gröf, en báðir voru þeir virkir félagsmenn og áhugasamir til hinstu stundar. Stjórnarfundir voru 3 frá síðasta aðalfundi og félagsfundir 5. Þessir fluttu erindi eða upplestur: Zóphónías Pétursson, Eiður Sigurðsson, séra Jón Thorarensen, Anna Matthíasdóttir, Árni Ásbjarnarson, frú Arn- heiður Jónsdóttir, frú Svava Fells, Eggert Kristinsson, og Skúli Halldórsson flutti tónlist. Gróðursetningarferð var gerð til Hvera- gerðis sunnudaginn 5. júní; tóku þátt í henni 24, og voru gróður- HEILSUVERND 77

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.