Heilsuvernd - 01.06.1972, Page 14

Heilsuvernd - 01.06.1972, Page 14
settar 4.500 trjáplöntur. Laugardaginn 26. júní var efnt til grasa- ferðar í Landmannaafrétt, og voru þátttakendur 16. Fararstjórar voru Árni Ásbjarnarson og Eggert Kristinsson, en Sæmundur Guð- mundsson skólastjóri hafði gert uppdrátt af grasalandinu. Varð grasafengur mikill og góður. Hafa gróðursetningarför og grasa- ferð áður verið gerð skil hér í ritinu. Form. skýrði frá því, að nú hefði NLFl tekið við rekstri mat- stofunnar samkvæmt ákvörðun síðasta landsþings. Hækkandi verðlag og verðstöðvun hefðu valdið tapi á rekstri hennar. ,,En eitt vil eg undirstrika alveg sérstaklega," sagði formaður, „að þótt NLFÍ hafi tekið reksturinn í sínar hendur, þá hefir sú breyt- ing ekki leyst okkur í þessu félagi undan þeim skyldum að styðja og styrkja starfsemi matstofunnar og framgang á allan hugsan- legan hátt.“ Formaður skýrði svo frá, að í svokölluðum „veitingasjóði" væru nú kr. 7.731,70. Tekjur sjóðsins væru greiðslur fundarmanna fyrir veitingar frambornar á félagsfundum, en efnið í þær og alla vinnu hafa félagskonur lagt fram. Úr sjóðnum hafa verið greiddar aug- lýsingar fyrir matstofuna að upphæð kr. 11.244,00 og fyrir dúka, áhöld o.fl. kr. 5.969,70. Formaður þakkaði þeim, sem verið hefðu hjálparhellur félags- ins og matstofunnar, sérstaklega þeim Árna Ásbjamarsyni, Páli Sigurgeirssyni og ráðskonum og starfsliði matstofunnar, svo og samstarfsmönnum sínum í stjórn NLFR. Hún sagði að lokum: „Að síðustu er það ósk mín, að við hvert um sig tökum til at- hugunar, hvernig við getum skilað framtíðinni betri heimi. Takist okkur að lifa göfugu lífi með heilsusamlegum lífsvenjum öðrum til eftirbreytni, leggjum við heillafræ í akur framtíðarinnar. Megi hamingjan vera okkur hliðholl í þeirri viðleitni.“ Gjaldkeri félagsins/Njáll Þórarinsson, las reikninga félagssjóðs, og í fjarveru Árna Ásbjarnarsonar las Páll Sigurgeirsson reikn- inga matstofunnar. Birtast þessir reikningar á öðrum stað hér í heftinu. Nokkrar umræður urðu um reikninga, sem síðan voru sam- þykktir. Þá var gengið til kosninga. Úr stjórn áttu að ganga Anna Matt- 78 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.