Heilsuvernd - 01.06.1972, Qupperneq 15

Heilsuvernd - 01.06.1972, Qupperneq 15
híasdóttir, Björn L. Jónsson og Njáll Þórarinsson. Anna og Njáll lýstu því yfir, að þau gæfu ekki kost á sér í stjórn áfram. Fram komu 5 uppástungur, og kosningu hlutu: Hörður Friðþjófsson með 20 atkv., Marinó L. Stefánsson með 20 atkv. og Björn L. Jónsson með 18 atkv. Guðbjörg Birkis fékk 12 atkv. og Klemens Þórleifsson 9 atkv. Kosningin gildir til tveggja ára. í varastjórn til eins árs komu einnig fram 5 uppástungur, og kosningu hlutu: Helga Vigfúsdóttir (21 atkv.), Helga Markúsdóttir (18 atkv.) og Jón G. Hannesson (15 atkv.). Guðbjörg Birkis fékk 12 atkv. og Klemens Þórleifsson 9 atkv. Endurskoðendur voru kosnir Frið- geir Ingimundarson og Guðmundur Erlendsson, og til vara Ingþór Sigurbjörnsson, allir sjálfkjörnir. Undir liðnum „Önnur mál“ urðu miklar umræður um félagsmál. Samþykkt var tillaga frá Sigurmundi Guðnasyni um athugun á möguleikum á að koma upp heilsuræktarstöð í Reykjavík á vegum félagsins. Stjórn NLFR Á fyrsta fundi sínum skipti hin nýkjörna stjórn NLFR þannig með sér verkum: Formaður Eggert Kristinsson, varaformaður Björn L. Jónsson, ritari Marínó L. Stefánsson, gjaldkeri Eiður Sigurðsson, en fimmti stjórnarmaður er Hörður Friðþjófsson. Á sama fundi var Marínó L. Stefánsson skipaður í stjórn Pönt- unarfélags NLFR í stað Eggerts Kristinssonar, sem sagði sig úr stjórninni, með því að hann hefir tekið við störfum sem verzl- unarstjóri félagsins ásamt Ásbirni Magnússyni. Varamaður hans er Hörður Friðþjófsson. GAMANMÁL Sniðugt læknisvottorð Ungur maður hafði fengið kynsjúkdóm og bað lækni, sem var vinur hans, um vottorð. Það hljóðaði þannig: „N.N. missteig sig og bólgnaði fyrir ofan hné og verður óvinnu- fær í nokkra daga“. HEILSUVERND 79

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.