Heilsuvernd - 01.06.1972, Side 19

Heilsuvernd - 01.06.1972, Side 19
NIELS BUSK GARÐYRKJUSTJÓRI Hvernig á að útrýma sníglum? Ekki þarf að lýsa því fyrir þeim, er við garðyrkju fást, hvílík plága sníglar eru í grænmeti og trjágróðri og þvílík hörmung það er að sjá fallegt kál, hreðkur, salat og annan blómlegan gróður sundurétinn og eyðilagðan af þessum sníkjudýrum. Flestir munu grípa til þess einfalda ráðs að kaupa sníglaeitur og dreifa því yfir jurtirnar. En gallinn er bara sá, eitrið er ekki aðeins hættulegt sníglunum, heldur einnig þeim, sem leggja sér græn- metið til munns. Annað ráð er það að fara snemma á fætur og tína sníglana af jurtablöðunum, áður en þeir skríða af þeim í morgunsárið. En fæstir mundu hafa þolinmæði eða tíma til slíkr- ar iðju, þegar mikið er af þessum ófögnuði. En þá má benda á gamalt ráð, og þar sannast hið fornkveðna, að „illt skal með illu út reka“. Þegar tunglið gengur gegnum stjömumerki krabbans, er tímgunarmáttur sníglanna mestur. Á þessu tímabili er safnað saman 50 til 100 sníglum, þeir settir í glerkrukku, sem fyllt er með regnvatni, lok skrúfað á krukkuna og hún látin standa, unz tunglið gengur næst inn í krabbamerkið. Þá er innihaldi krukkunnar blandað saman við 50 lítra af vatni og þessu úðað yfir gróðurinn og moldina. Þetta má svo endur- taka, ef þörf gerist. Skýringin er talin sú, að á þessu tímabili gefi sníglarnir frá sér efni, sem fer út í vatnið og fælir aðra snígla á brott, og sé þetta endurtekið tvisvar til þrisvar á sumri, haldast áhrifin næstu tvö til þrjú ár. Önnur aðferð er fólgin í því, að sníglunum er safnað daginn áður en tunglið gengur inn í krabba- merkið, sjóðandi vatni hellt yfir þá, látið standa í sólarhring og Framhald á bls. 76 HEILSUVERND 83

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.