Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 4
inu stóð vann Björn fullan vinnudag á Veðurstofunni. Að loknu
kandidatsári á sjúkrahúsum og héraðslæknisskyldu hélt hann til
Þýskalands til að kynna sér náttúrulækningar og starfaði á bað-
og nuddlækningahæli þar í eitt ár. Við heimkomuna 1960 gerðist
hann aðstoðarlæknir borgarlæknis í Reykjavík og gegndi því
starfi í nærri fimm ár, en var jafnframt starfandi læknir í
Reykjavík. 1 maí 1965 gerðist hann yf rlæknir á heilsuhæli NLFÍ
í Hveragerði og gegndi því starfi til æviloka.
Björn kvæntist árið 1935 eftirlifandi konu sinni Halldóru Guð-
mundsdóttur frá Neðra Haganesi í Fljótum. Þau eignuðust þrjú
börn, eitt þeirra dó nýíætt, en tvö eru á lífi: Ingibjörg deildar-
stjóri í fjármálaráðuneytinu og Guomundur verkfræðingur.
Margir urðu til að minnast Björns að honum látnum og verður
lítillega vitnað í þau skrif hér á eftir.
Árni Ásbjarnarson, sem var um árabil forstöðumaður heilsu-
hælisins og náinn samstarfsmaður Björns, segir meðal annars í
Morgunblaðinu 23. september: „Það sem mest mun hafa þrýst
á Björn að hefja læknisnám var hinn eldlegi áhugi hans fyrir
náttúrulækningastefnunni. Um 1940 kynntist hann Jónasi Krist-
jánssyni lækni persónulega, en áður hafði hann fylgst af athygli
með því sem Jónas ræddi og ritaði um náttúrulækningar. Frá
öndverðu skipaði Björn sér við hlið þessa mikla mannvinar og
hugsjónamanns í öllu sem að málum náttúrulækninga sneri.
Björn þýddi allar þær erlendu bækur sem NLFÍ gaf út, sá um að
nokkru eða öllu útgáfu innlendu bókanna sem út voru gefnar,
var í ritstjórn og síðar ritstjóri tímaritsins „Heilsuverndar" frá
upphafi, var framkvæmdastjóri og varaforseti samtakanna. Ef
haldið er áfram að rifja upp öll þau mörgu störf sem Björn hefur
innt af hendi í þágu náttúrulækninganna hér á landi er óhætt að
fullyrða að enginn hefir enn komist til jafns við hann, að Jónasi
Kristjánssyni lækni undanskildum, þess manns, sem flutti hug-
sjónina inn í landið og leiddi forystuna svo lengi sem honum
entist aldur til og á banabeði fól hann Birni að taka upp merkið
er hans nyti ekki lengur við.
Hinn 1. júní 1965 tók Björn að sér yfirlæknisstarfið í Heilsu-
hæli NLFÍ í Hvergerði eftir að hafa kynnt sér rekstur hliðstæðra
124
HEILSUVERND