Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 26

Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 26
Tvær merkar konur kvaddar Arnheiður Jónsdóttir og Guðbjörg Birkis Heimskur sonur er föður sínum sönn óhamingja og konuþras er sífelldur þakleki. (ORSKV.) Landsþing Náttúrulækningafélags íslands er fram fór hinn 15. september sl. var að mínu viti eftirminnilegasta landsþing þessa félagsskapar, en það var hið 17. í röðinni. Ég mun ekki rekja hina flóknu þróun málefna þessara samtaka. Þó ber að geta þessa. sér í lagi vegna þeirra, er finnst að niðurstöður þingsins koma sér á óvart, og þvert á fyrirætlun er átti sér orðið sex ára þróunarsögu og hana heldur hvimleiða, svo ekki sé meira sagt Þessvegna detta mér i hug orð Rannveigar Sigfúsdóttur móður Gunnars á Hlíðarenda „það er mælt að skamma stund verður hönd höggi fegin“. Annars er þessum línum aðeins ætlað það hlutverk að rækja hlutverk kveðju og þakklætis til tveggja kvenna er lengi höfðu skipað sæti í stjórn Náttúrulækningafélags Islands. Aðra þessara kvenna tel ég mig þekkja svo vel, Arnheiði Jónsdóttur, að mér er ljúft að minnast tveggja áratuga kynna. Hin konan er frú Guðbjörg Birkis, dóttir Jónasar Kristjánssonar, læknis, stofn- anda Náttúrulækningahælisins í Hveragerði. Kynni okkar Arnheiðar átti upptök sín í tengslum við Pöntunar- félag NLFR, sem hugsað var sem aðstoðarstofnun við NLFÍ fyrir það fólk er notið hefði dvalar á heilsuhælinu í Hveragerði. Þar átti fólk að geta fengið sem flest matvæli er mælt hafði verið með af þeim er forystu höfðu á manneldisþætti náttúrulækninga- hreyfingarinnar. Var það sérstaklega mikið áhugamál Jónasar læknis meðan hans naut við, að vel tækist til um framgang þessa 146 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.