Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 6

Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 6
viöurkenndar og leitað eftir sáttum á drongilegan hátt. Slík var mín reynsla af þessum traus'.a og góða srmstarfsmanni sem mér v~'’ gefið að eiga að vini og hafa ná'n samskipti við í 21 ár.“ Ársæll Jónsson læknir segir m.a. í sama blaði: ,.Hne:gð til líknar og læknisstarfa gat Björn erft úr báðum ættum, en föður- bróðir hans var Páll Kolka læknir og móðurbróðir Guðmundur Björnsson landlæknir. Á menntaskólaárum dvaldi Björn hjá móðurbróður sínum og mun hugur hans hafa hneigst að læknanámi. En frændi hans benti honum á erfiðar atvinnuhorfur lækna vegna offjölgunar í stéttinni, en á þessum tíma var efnahagsleg afkoma sumra lækna erfið og samkeppni hörð. Að ráði Guðmundar landlæknis valdi hann sér náttúruvísindi og stundaði nám í 4 ár við hinn virta Sorbonne-háskóla í París. Sóttist honum námið vel og lauk hann prófi vorið 1930. Björn var mikill málamaður og náði góðu valdi á franskri tungu. Efnahagurinn var þröngur á Parísarár- unum og leiddi til þess að hann nærðist nær eingöngu á græn- meti þann tíma. Þessi reynsla hans mun hafa stuðlað að því að hann varð móttækilegri fyrir kenningar náttúrulækningamanna. Jónas Kristjánsson læknir var í vinfengi við foreldra Björns og eitt sinn gistu þau Björn og frú Halldóra hjá honum norður á Sauðárkróki. Sú heimsókn markaði spor í lífi Björns. Áhugi hans á kenningum náttúrulækningamanna var vakin og gerðist hann fljótlega ötull og afkastamikill liðsmaður þeirrar stefnu. Höfuðþættirnir í baráttu náttúrulækningamanna á þessum fyrstu árum voru árásir gegn hvítahveiti og sykri í fæðu lands- manna. Spunnust af þessu blaðaskrif og deildu sumir læknar hart á þessa stefnu. Á þeim tíma var það ríkjandi skoðun meðal meltingarsérfræðinga í læknastétt að sykur væri fullkomin fæða en grófmeti ertandi fyrir veikluð meltingarfæri. í dag eru skoð- anir náttúrulækningamanna á þessu efni óumdeildar. Á árunum 1930-1939 var Björn í fullu starfi á Veðurstofu ís- lands. Upp úr 1940 fórnaði hann æ meiri tíma fyrir náttúru- lækningastefnuna. Vegna þeirra starfa leitaði margt fólk til hans af heilbrigðisástæðum og fannst honum hann vera að verða hálf- gerður skottulæknir. Það var andstætt þeim kröfum, sem hann 126 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.