Heilsuvernd - 01.12.1979, Page 8
frönsku stjórninni, sem sæmdi hann orðu, er hann tók við úr
hcndi sendiherra Frakka á íslandi."
Þórhalli B. Ólafssyni héraðslækni fórust m.a. orð á þessa leið
í sama blaði: „Björn læknir var öðrum fremur arftaki frum-
herja náttúrulækningastefnunnar hér á landi, Jónasar Kristjáns-
sonar læknis. Þegar alvarleg tilraun verður gerð til að meta störf
þessara manna, hygg ég og að þann sess hljóti þeir meir fyrir
það að hafa framfylgt stefnu sinni í verki með þeim árangri, sem
nú er öllum auðsær, en sökum einstakra kennisetninga. Enda
þótt þýðing heilsuverndar sé sýknt og heilagt undirstrikuð í
orði, fer lítið fyrir aðgerðum á borði. Framtak náttúrulækninga-
manna er ekki aðeins lofsvert í sjálfu sér, heldur er það ekki
síður hvatning til annarra um að hef jast handa í þágu sama mál-
efnis, þ.e. heilsuverndar. í þau 3 ár, sem ég starfaði með Birni
lækni, fékk ég staðfestingu á því, sem ég áður hugði, að hann
væri maður hreinskiptinn og nákvæmur í orðum sínum og gerð-
um. Sem samstarfsmaður var hann umburðarlyndur, tillitssam-
ur og jafnlyndur, og kom það sér vel fyrir mig, sem oft hef varla
séð dagsins ljós í þeirri firna ringulreið, sem kallast nú heilsu-
gæsla utan sjúkrahúsa. En kannski mun ég minnast hans lengst
fyrir tvennt: létta og græskulausa gamansemi, sem var laus við
þessa venjulegu íslensku hótfyndni, og fyrir skapfestu hans, sem
gerði honum ætíð kleift, að því er virtist áreynslulaust, að taka
strax skýra og afdráttarlausa afstöðu til sérhvers vandamáls.
Það er ekki laust við að ég hafi stundum öfundað hann af þess-
um eiginleika. Þá fer það ekki á milli mála, að sá maður, sem
ræðst á miðjum aldri út í erfitt háskólanám — að nýju og á allt
öðru sviði en því, sem hann lagði fyrir sig á unga aldri og starf-
aði að á bestu árum sínum — hefur ekki verið neinn meðalmað-
ur.“
Gamlir og dyggir lesendur Heilsuverndar mundu efalaust vilja,
ef þeir væru um það spurðir, ljúka þessum minningarorðum með
því að láta í ljós þakklæti til Björns heitins fyrir margvíslegan
fróðleik um heilsusamlegt mataræði, hollar lífsvenjur og önnur
baráttumál náttúrulækningastefnunnar, sem hann hefur miðlað
þeim á síðum Heilsuverndar á liðnum árum.
128
HEILSUVERND