Heilsuvernd - 01.12.1979, Page 13

Heilsuvernd - 01.12.1979, Page 13
gnæfandi lútargefandi fæðu. Oft á tíðum gera tiltölulega litlar ráðstafanir haft úrslitaþýðingu fyrir efnafræðilegt jafnvægi í líkamanum. 3. Eftir mjög mikla neyslu lútargæfrar fæðu (hrámetis eða að minnsta kosti grænmetis), þá ætíi þvagið að verða basiskt. Er þetta ekki eðlilegt? Lindahl. Við neyslu lútargæfrar fæðu, án tillits til þess hvort hún er hrá eða soðin, hefur þvagið tilhneigingu til að verða bas- iskara. Vegna þess að margt fólk hefur ofgnótt sýru í líkam- anum getur þessi breyting á sýrustigi þvagsins verið mjög hæg- fara í byrjun, það getur jafnvel tekið mánuði eða allt upp í hálft ár. Það er ekki fyrr en við mjög mikla neyslu á mjög lútar- gæfri fæðu sem þvagið veiður basiskt. 4. Einfaldasta leiðin til þess að kanna sýru-basa-jafnvægið í lík- amanum er að mæla morgunþvagið með lakkmuspappír. Þvagið er talið endurspegla efnaskipti líkamans. Ef lakkmuspappírinn verður rauður þá eru efnaskiptin talin súr — er þetta eðlilegt? Er sýrustig þvagsins kannski brytilegt á ýmsum tímum sólar- hringsins? Lindahl: Hugtakið eðlilegt má skilgreina á ýmsa vegu. Venju- lega táknar eðlilegt það sem er algengast hjá meirihlutanum. Það tíðkast til dæmis að búa til töflur yfir eðlilega hæð og þyngd sem styðjast við það ástand sem ríkir meðal allra íbúanna. Þar er miðað við að 90% íbúanna hafi eðlilega hæð og þyngd, en 5% fyrir ofan og 5% fyrir neðan óeðlilega. Þess ber þó að geta, að íbúar Vesturlanda munu almennt séð taldir of feitir og að meðalþyngd í þessum löndum beri að teljast heilsuspillandi og það sem þar sé talið eðlilegt í þessum efnum sé í rauninni óeðlilegt. Önnur skilgreining á hugtakinu eðlilegt er sú, að það sem talið er best og heilsusamlegast sé eðlilegt. Þessi hugtök er þó mjög erfitt að skilgreina vegna þess hve skiptar skoðanir manna eru á hollustu og heilbrigði. HEIX,SUVERND 133

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.