Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 14

Heilsuvernd - 01.12.1979, Side 14
Hvað varðar sýrustig morgunþvagsins er óhætt að slá því íöstu að hjá flestum Vesturlandabúum sé það súrt. Hvort það cr heilbrigt er erfitt að segja til um. í því sambandi verður að meta hversu súrt það er. Það liggja ekki fyrir neinar öruggar tölfræðilegar upplýsingar um það hvort ákveðið sýrustig í sólar- hringsþvagi sé líklegra til að gefa lengra og heilsusamlegra líf en annað. Samt sem áður bendir margt til þess að mjög súrt þvag sé neikvætt og að hlutlaust eða lítið súrt þvag sé betra þegar til lengdar lætur. Það ber að taka tillit til þvagsins allan sólarhringinn, því að sýrustig þvagsins er mjög breytilegt á mismunandi tímum sólarhringsins. 5. Bendir basiskt þvag til þess að viðkomandi sé haldin einhverj- um sjúkdómi — ef svo þá hverjum? Lindahl: Basiskt sólarhringsþvag er mjög sjaldgæft og er nánast eingöngu hjá jurtaneytendum sem jafnvel forðast að borða brauð. Það eru ekki þekktir neinir sjúkdómar sem ein- kennast af basisku þvagi, því er ekki hægt að fullyrða að slíkt ástand bendi til sjúkdóms. Aftur á móti er vitað að fólk sem þjáist af ýmsum sjúkdómum svo sem hjartveiki, nýrnasjúk- dómum, lifrarsjúkdómum og gigtsjúkdómum hafa súrara þvag en meðaltalið. Menn eru aftur á móti ekki sammála um það hvort sjúkdómar valdi súrara þvagi, eða hvort súrt þvag eigi einhvern þátt í orsök sjúkdómanna. En hvað sem því líður er ljóst að það er samband á milli margra sjúkdóma og aukinnar sýru í þvagi. Samfara mörgum bráðum vírus- eða bakteríusjúkdómum, hita- sótt, og eftir uppskurði kemur fyrir að sýru-basa-jafnvægið í líkamanum raskast mjög mikið, sem oft leiðir til að þvagið verður basiskt. Þetta gerist til dæmis eftir magauppskurði en meðan á aðgerðinni stendur er magasafinn fjarlægður. Ef um mikið tap á saltsýru er að ræða getur orðið ofgnótt af basiskum efnum í líkamanum. í slíkum tilfellum er hægt að segja að bas- iskt þvag sé vísbending um sjúklegt ástand. Þetta er þó mjög sjaldgæft og sjaldan langvarandi ástand sem gerist nær ein- göngu á sjúkrahúsum. 134 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.