Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 25

Heilsuvernd - 01.12.1979, Blaðsíða 25
mennings. Því beri okkur að líta björtum augum til framtíðar- innar, það sé besta veganestið til átaks við komandi viðfangs- efni og mest í samræmi við baráttu frumherja náttúrulækninga- stefnunnar. Talsverðar breytingar voru samþykktar á lögum sambandsins, sumar veigamiklar. Verða þær ekki raktar hér því að lögin fylgja sérprentuð þessu hefti Heilsuverndar. Lýst var stofnun nýs náttúrulækningafélags og er heiti þess Náttúrulækningafélag Hveragerðis og Árnessýslu. Stofnfélagar voru 19. Svohljóðandi tillaga frá Marteini Skaftfells var samþykkt á þinginu: ,.Landsþing NLFl haldið 15. sept. 1979 telur tímabært að land hælisins handan árinnar verði brotið með það fyrir aug- um að hafin verði vísindaleg ræktun og jafnframt skipulagning skrúðgarðs og felur stjórn sambands og hælis í samvinnu við garðyrkjustjóra og forstjóra hælisins undirbúning og framkvæmd- ir.“ Nefndin sem fjallaði um tillöguna lagði til að þetta verkefni verði tekið á framkvæmdaáætlun NLFÍ og framkvæmdir hafnar eins fljótt og fjárhagur og aðrar ástæður leyfi. Ný stjórn NLFÍ til fjögurra ára var kosin á þinginu og hlutu þessir kosningu: Jóhannes Gíslason, Oddgeir Ottesen, Einar Að- alsteinsson, Hörður Friðþjófsson og S'vana H. Stefánsdóttir. I þinglok minntist þingforseti Björns L. Jónssonar yfirlæknis og árangursríks starfs hans í þágu hælisins; einnig minntist hann Sigurjóns Danivalssonar, fyrsta framkvæmdastjóra hælisins. Að lokum ávarpaði hann Arnheiði Jónsdóttur forseta og heiðursfé- laga NLFl og þakkaði henni óeigingjarnt starf í þágu NLFÍ fyrr og síðar og afhenti henni síðan stjórn þingsins. Arnheiður bar fram þakkir sínar til þingsins og til allra þeirra, sem með henni hefðu starfað innan NLFÍ frá upphafi. Starfið hefði verið sér mikil lífsfylling, einkum samstarfið við Jónas Kristjánsson, ekki síst þegar erfiðleikar steðjuðu að. Hún kvaðst líta á hælið sem sitt annað heimili og vonaðist ttil að eiga eftir að koma þangað oft, þó að hún hyrfi úr stjórn NLFÍ. Að svo búnu bað hún þing- heimi guðsblessunar og sleit þinginu. HEILSUVERND 145

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.