19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 44
42 | 19. júní 2018
Konur innan
menntageirans
Kynferðisofbeldi, kynferðisáreitni
og mismunun viðgengst enn í skjóli
þagnar. Um árabil hafa konur þagað yfir
misréttinu sem þær eru beittar innan
menntastofnana. Það krefst hugrekkis
að stíga fram fyrir skjöldu og segja
opinberlega frá reynslu sinni og við
þökkum öllum þeim konum sem hafa
deilt sínum frásögnum.
#MeToo
Þrátt fyrir að konur séu í
meirihluta í skólum og öðrum
menntastofnunum hafa þær þar ekki
farið varhluta af þeirri mismunun sem
viðgengst víða í skólasamfélaginu. Káf,
ofbeldi, áreitni, yfirgangur, hunsun,
meiðandi athugasemdir og smættun
á vinnuframlagi kvenna – allt þetta
og meira til er hluti af reynslu kvenna
í menntageiranum. Konur hafa starfað
við þessar aðstæður áratugum saman,
margar hrista þetta af sér, aðrar eru
snillingar í hnyttnum tilsvörum, sumar
ná að snúa sig úr aðstæðunum, nokkrar
tilkynna áreitnina en fjöldinn allur af
konum segir ekkert. Sumar lýsa þeirri
tilfinningu að vera orðnar „samdauna
vandamálinu”, aðrar hafa hægt um sig
af ótta við viðbrögð og afleiðingar fyrir
þær sjálfar.
Við eigum hvorki að þurfa að
þegja lengur né leiða ástandið hjá
okkur. Við eigum rétt á því að sinna
okkar fagi og vinna okkar vinnu án
áreitni, ofbeldis eða mismununar.
Við förum fram á að öll sem starfa að
menntamálum taki höndum saman og
uppræti sem fyrst og með öllum ráðum
hvers konar kynbundna mismunun
innan skólasamfélagsins.
1. Settir verði upp skýrir verkferlar til
að takast á við kynbundna áreitni og
boðið upp á fræðslu fyrir starfsfólk
og stjórnendur og þá sérstaklega
um birtingarmyndir kynferðislegrar
áreitni og kynbundinnar
mismununar. Yfirvöld setji fram
skýra aðgerðaráætlun til að vinna
bug á meininu og stjórnendur vinni
af heilindum að úrbótum.
2. Fag- og stéttarfélög séu í fararbroddi
í því starfi sem nú fer í hönd við að
uppræta mismunun og að þau tryggi
að þolendur fái stuðning þegar til
þeirra er leitað við úrlausn mála.
Þeim þolendum sem þurfa bjóðist
ókeypis sálfræðiaðstoð og viðeigandi
áfallastuðningur. Gerendur fái
fræðslu og viðeigandi meðhöndlun
sem stuðlar að því að fyrirbyggja
endurtekin brot.
3. Yfirvöld hugi sérstaklega að
stöðu nemenda því þeir verða
líka fyrir kynbundnu ofbeldi,
kynferðislegri áreitni og mismunun
í sínu starfsumhverfi. Nemendum
sé tryggð fræðsla, hlustun, úrræði
og stuðningur þegar þeir leita til
fullorðinna með umkvartanir sínar.
4. Skólayfirvöld láti framkvæma úttekt
á umfangi ofbeldis, kynferðis áreitni
og mismununar í menntastofnunum,
bæði meðal starfs manna og nemenda
og bregðist við niðurstöðum með
viðeigandi forvörnum, aðgerðum og
úrræðum.
Við stöndum saman! Við höfum
hátt! Við krefjumst breytinga!
#MeToo #höfumhátt #konurtala