Fréttablaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 1
2 5 4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 2 8 . D E S E M B E R 2 0 2 1 Áramótablómin springa út Lífið ➤ 26 HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/mitsubishisalur Fullnýttu þér niðurfellingu virðisaukaskatts áður en ívilnanir tengiltvinnbíla verða lagðar af og sparaðu 960.000 krónur. Eclipse Cross PHEV frá aðeins 5.490.000 kr. og jólapakki fylgir! Mitsubishi Eclipse Cross PHEV fyrir áramót! *Til áramóta eru ívilnanir stjórnvalda um niðurfellingu á virðisaukaskatti 960.000 kr. Nánar á mitsubishi.is 4 dagar til áramóta! Tryggðu þér 4x4 tengiltvinnbíl Sparaðu 960.000 kr.* Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hélt kanadísk jól með fjölskyldu sinni á jóladag. „Við áttum okkar hátíð hér og nutum þess mjög. Ekkert okkar þurfti að fara í sóttkví eða einangrun. Maður þakkar fyrir það,“ segir Guðni. Hann segist horfa mikið út um gluggann þessa dagana og lítur einkum til Keilis þar sem jörð hefur skolfið mjög að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Korter til að yfirgefa Heklu Fréttir ➤ 8 Núgildandi reglugerð vegna Covid verður ekki rædd á ríkisstjórnarfundi í dag. Yfir- maður Covid-göngudeildar segir róðurinn á deildinni þungan, mikið sé um smit hjá starfsfólki. birnadrofn@frettabladid.is elinhirst@frettabladid.is COVID-19 Ekki stendur til að ræða breytingar á núgildandi reglugerð vegna Covid á ríkisstjórnarfundi í dag, en reglugerðin gildir til og með 12. janúar. Þetta kemur fram í svari Willums Þórs Þórssonar heilbrigðis- ráðherra. Hins vegar séu ráðstafanir og mál því tengd sífellt til skoðunar. Spurður um langar biðraðir sem myndast hafa vegna sýnatöku við Suðurlandsbraut segir ráðherra að samkvæmt framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins hafi þessar löngu biðraðir nú um jólahelgina verið vegna veikinda starfsmanna. Verið sé að skoða möguleika á því að bæta þjónustuna, meðal annars með því að bæta mönnun, skoða aðstöðu og lengja opnunartíma. Ráð- herra segir að heilbrigðisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála í góðu samstarfi við Heilsugæsluna. Fjórtán einstaklingar lágu inni á Landspítala í gær með Covid-19, fimm voru á gjörgæslu, þrír þeirra í öndunarvél. Yfir fjögur þúsund manns voru í einangrun í gær og segir Runólfur Pálsson, yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, róðurinn á deildinni þungan. „Það eru þúsundir í umsjá deild- arinnar núna og það er viðbúið að annar eins fjöldi bætist við næstu daga,“ segir Runólfur. Hann segir að einnig sé mikið um smit meðal starfsfólks deildarinnar sem auki enn á álagið á þau sem eru við vinnu. Verklagið á göngudeildinni hefur þróast með faraldrinum og er ekki hringt í alla sjúklinga eins og gert var áður, notast sé meira við rafræn samskipti í gegnum Heilsuveru. Fólk fái þó gefið upp símanúmer sem það getur hringt í, hafi það alvarleg ein- kenni. „Við erum einnig með kerfis- bundna nálgun sem gerir okkur kleift að greina þá meðal smitaðra sem eru með alvarlega undirliggj- andi sjúkdóma eða óbólusettir og við beinum kröftum okkar þangað,“ segir Runólfur. Hann segir flesta þá sem séu smit- aðir af veirunni nú ungt fólk með lítil eða jafnvel enginn einkenni, um helmingur þeirra sem liggi inni á sjúkrahúsi sé óbólusettur. Þá segir Runólfur veiruna mjög útbreidda í samfélaginu og minnir á mikilvægi þess að sinna persónubundnum sóttvörnum til að forðast smit. „Þannig er hægt að minnka líkurnar á smiti.“ n Ræða ekki breytingar á sóttvarnareglum í dag Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.