Fréttablaðið - 30.12.2021, Síða 45
Ég veit og hef lesið
um hversu jákvæð
áhrif rauð ljós og inn-
rauð sána geta haft á
líkamann, bæði til
skemmri og lengri
tíma.
Eftir að Guðfinna Halldórs-
dóttir fór að mæta í með-
ferðir hjá Even Labs í Faxa-
feni fann hún fljótt að þær
gerðu henni gott. Svefninn
varð miklu betri og Guð-
finna fann mikinn mun á
heilsu sinni.
Guðfinna segist hafa lesið mikið
af greinum um tæknina sem Even
Labs býður upp á og þær með-
ferðir sem eru í boði. „Ég var mjög
spennt að prófa þetta allt saman,“
segir hún. „Ég byrjaði í Sweat og
Joovv (rauðljósameðferð) og hef
verið mest í þeirri áskrift, en hef
prófað allar meðferðirnar hjá Even
Labs. Ég veit og hef lesið um hversu
jákvæð áhrif rauð ljós og innrauð
sána geta haft á líkamann, bæði
til skemmri og lengri tíma. Mig
langaði til að finna á eigin skinni
hvort ég myndi finna þennan mun
í raun. Ég byrjaði að stunda þessar
meðferðir fyrir tveimur árum og
hef mætt reglulega með smá hléum
síðan,“ segir Guðfinna, sem segist
finna mikinn muna á sér.
Losar um bólgur
„Eftir rauðu ljósin finn ég helst
mun á svefninum, orkunni, auk
áhrifa sem meðferðin hefur á
bólgur í líkamanum. Ef ég finn að
ég er með bólgur einhvers staðar í
líkamanum eða verki dríf ég mig
í ljósin og verð fljótt miklu betri,“
segir hún.
„Í sweat-inu finn ég mikinn mun
á svefngæðum mínum með Oura
hringnum til hins betra. Ég finn
einnig mun á aumum vöðvum og
líður betur eftir æfingar þegar ég
fer í sweat, svipað og í Normatech
þrýstinuddinu. Það að svitna vel
er líka frábær leið til að losa út
óæskileg efni úr líkamanum, eins
og myglu, en hún hefur meðal ann-
ars stuðlað að mörgum umhverfis-
veikindum hjá mér. Hljóðbylgju-
nuddið er síðan mjög góð slökun
en ég hef því miður ekki nógu oft
tíma í þá meðferð,“ segir Guðfinna,
sem heyrði fyrst af Even Labs frá
einum stofnanda fyrirtækisins
þegar verið var að opna fyrirtækið.
Streitu- og kvíðalosandi
„Þegar ég mætti fyrst var það ekki
vegna veikinda á þeim tímapunkti.
Miklu frekar var það markmið
hjá mér að viðhalda góðri heilsu
og hámarka hana eftir bestu getu.
Eftir að hafa jafnað mig á slæmum
umhverfisveikindum fyrir um
það bil sjö árum er mér mjög annt
um að viðhalda góðri heilsu og
að mæta í Even Labs er hluti þess.
Svona meðferðir eru líka mjög góð
streitulosun,“ segir Guðfinna, sem
var búin að prófa alls kyns með-
ferðir áður en hún kynntist Even
Labs.
„Ég prófaði alls kyns meðferðir
meðan á veikindum mínum stóð
til að bæta heilsuna. Ég hef oft
prófað sánaböð og innrautt sána,
en kýs núna frekar að hoppa
í sweat-poka og hlusta á gott
hlaðvarp á meðan eða horfa á
góðan þátt. Mér finnst það meira
afslappað umhverfi en að vera í
sánaklefa fullum af sveittu fólki.
Verðlaunin eru síðan betri svefn
og meiri gæðaheilsa. Ég get því
hiklaust mælt með að fólki prófi
sweat,“ segir hún.
Bættur svefn og
meiri lífsgæði
Guðfinna hefur farið í alls kyns meðferðir hjá Even Labs en hún hefur heillast af Sweat og Joovv sem er rauðljósa-
meðferð. Hún er viðkvæm fyrir umhverfismengun og losar líkamann við eiturefni í Sweat. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er auð-
velt að slaka
algjörlega á í
Sweat um leið
og líkaminn
svitnar.
Rannsóknir hafa verið gerðar á notkun rauðra og innrauðra ljósa og hafa þær
sýnt fram á jákvæð áhrif á fjölmörgum sviðum fyrir líkamann.
Even Labs býður upp á frábæra valkosti fyrir þá sem vilja taka heilsu og vel-
líðan í eigin hendur. Aðstaðan er góð og allir geta fundið frið og ró.
Kuldameðferð –
x°Cryo er fundin
upp á Finnlandi
og er eingöngu
fyrir andlit.
Góður árangur
Í Sweat-meðferðinni liggur fólk í
góðu yfirlæti á bekk með kodda,
vafið í plast og innrautt teppi sem
lítur út eins og svefnpoki. Meðferð-
in tekur 55 mínútur. Fólk svitnar
mikið í þessari meðferð, sem hefur
góð áhrif á líkamann.
Even Labs býður bæði upp á
cryo-kuldameðferð og sweat-með-
ferð, sem losar um bjúg, hreinsar
líkamann og eykur brennslu. Einn-
ig er í boði þrýstinuddmeðferð,
hljóðbylgjunudd og rauðljósa-
meðferðir. Hægt er að kaupa staka
tíma eða hentugar og hagstæðar
áskriftarleiðir, fyrir þá sem vilja
mæta reglulega.
Even Labs er fyrir alla sem vilja
hugsa vel um bæði líkamlega og
andlega heilsu. Boðið er upp á 5
mismunandi meðferðir, sem allar
stuðla að bættri líðan – draga
úr verkjum, bólgum og bjúg-
myndun og hjálpa gegn streitu og
kvíða með aukinni slökun. Mjög
persónubundið er hvað hentar
hverjum og einum. Vinsælustu
meðferðirnar eru rauðljósameð-
ferðin, þrýstinuddið og sweat-ið.
Starfsfólkið fær að heyra um
frábæran árangur meðferðar á
hverjum degi, sem er ákaflega
ánægjulegt.
Even Labs er vellíðunarsetur,
sem opnað var í nóvember 2019.
Fyrirtækið leggur áherslu á and-
lega og líkamlega vellíðan og sér-
hæfir sig í meðferðum sem hlúa að
líkama og sál.
Even Labs er staðsett að Faxa-
feni 14. Opnunartími er frá 9-18
alla virka daga (með möguleika
á að bóka lengur tvo daga í viku)
og laugardaga frá 11- 14. Það er
einstaklega einfalt að bóka tíma
á heimasíðunni evenlabs.is eða í
síma 419-7770. n
kynningarblað 23FIMMTUDAGUR 30. desember 2021 HEILSA