Fréttablaðið - 30.12.2021, Page 46
Telma Matthíasdóttir er
þekkt fyrir sína bragðgóðu
og hollu heilsurétti, ekki síst
fyrir heilsudrykki og -sjeika.
sjofn@frettabladid.is
Telma hefur þjálfað og unnið sem
heilsuráðgjafi í fyrirtæki sínu Fitu-
brennsla.is í 22 ár. Hún er eigandi
Fitfood ehf. ásamt Bjarna unnusta
sínum og saman reka þau Bæti-
efnabúlluna.
„Ég hef alltaf haft áhuga á íþrótt-
um og heilsu þótt ég hafi ekki
sinnt henni alla tíð. Ég er uppalin
á Ólafsfirði og ávallt mjög iðin, en
skíðaganga og fótbolti voru mínar
helstu íþróttagreinar. Ég byrjaði
að þjálfa og hjálpa öðrum að bæta
heilsuna fyrir 22 árum og er hvergi
nærri hætt. Í dag er ég Iron Man og
Ultra runner og elska að setja mér
krefjandi markmið.“
Margt hefur áhrif á heilsu okkar
og að mati Telmu er mikilvægt að
hafa nokkur atriði í huga. „Sofa vel,
hlakka til að fara í hreyfingu og
borða mat sem okkur líður vel af
og finnst bragðgóður. Vera í góðu
sambandi við fjölskyldu og vini,
eiga sér áhugamál. Við verðum að
búa til rútínu og hefðir og megum
alls ekki troða okkur inn í ramma
sem hentar öðrum. Hlustum á
eigin þarfir. Góð heilsa er á eigin
ábyrgð og ferlið byrjar og endar
hjá okkur sjálfum. Kunnum okkur
hóf og berum virðingu fyrir líkama
okkar og heilsu, það er heljarinnar
vinna að byggja hana upp aftur
ef hún hrynur,“ segir Telma og
það þekkir hún á eigin skinni.
„Við þurfum ekki að vera í neinu
ákveðnu formi til að byrja, það
geta allir gert eitthvað.“
Hreint náttúrulegt mataræði
Þegar kemur því að hugsa um
heilsuna finnst Telmu mataræði
skipta öllu máli.
„Næringin skiptir öllu máli.
Líkaminn byggir okkur upp og
gerir við sig með þeim hráefnum
sem við setjum ofan í hann. Svo
það er eins gott að vanda valið. Það
er ástæða fyrir því að við eigum
að borða fjölbreyttan mat, hann
stuðlar að því að við fáum þau
næringarefni sem líkaminn þarf
á að halda. Samsetning matarins
skiptir gríðarlega miklu máli upp á
blóðsykur og heilsuna.“
Nú er alls konar mataræði
sem fólk tileinkar sér, er eitthvert
mataræði sem er betra fyrir líkama
og sál en annað?
„Sem mest hreint mataræði,
það sem náttúruna gefur okkur.
Við ættum öll að borða meira úr
jurtaríkinu og borða miklu minna
af sykri. Hrein fæða nærir heilann
og allar frumurnar og gefur því
meiri orku og úthald fyrir daginn,
við sofum betur og hvílumst því
betur.“
Hver er hinn gullni meðalvegur
þegar kemur því?
„Það þarf ekki að gera stórar
breytingar, margt smátt gerir eitt
stórt, en það þarf að gefa sér tíma,
prófa sig áfram. Það tekur ekki
nema eitt ár að rústa heilsunni en
það tekur þrisvar sinnum lengri
tíma að vinna hana til baka.“
Mataræðið er mín lækning
„Mér finnst gott að borða góðan
mat og ég hef tileinkað mér holla
næringu sem mest úr jurtaríkinu.
Við erum það sem við borðum
Vertu ávallt besta útgáfan af sjálfum þér
Til halda líkamanum hraustum og sterkum þarftu að tileinka þér lífsstíl sem virkar á hverjum degi, segir Telma.
MYND/AÐSEND
Gullkorn frá Telmu
inn í nýja árið:
n Settu þér markmið og láttu
drauma þína rætast.
n Ekki gefast upp því vel-
gengni í lífinu er langhlaup.
n Vertu ávallt besta útgáfan af
sjálfum þér.
og mataræðið er mín lækning. Ég
veiktist illa fyrir 13 árum og síðan
þá hef ég þurft að vanda mig betur.
Ég kýs að lifa lífinu full af orku og í
andlegu jafnvægi og þess vegna hef
ég fórnað mörgu úr mataræðinu
sem lætur mér líða illa. Það sem
virkar fyrir mig þarf samt ekki að
virka fyrir aðra, þess vegna legg ég
mikið upp úr því að við hlustum á
þau boð sem líkaminn er að gefa
okkur.“
Þú hefur þróað heilsudjúsa og
-sjeika, meðal annars fyrir Lemon,
hvaðan færðu innblásturinn?
„Ég er búin að gera mér prótein-
sjeika í 25 ár.“
Njótið án þess að fá samviskubit
Telmu finnst mikilvægt að hafa
þetta í huga, jólavikuna sem nú
er senn að líða. „Ekki dæma þig
harkalega fyrir að hafa borðað
þig sadda/n um jólin, dottið ofan
í konfektkassann, klárað allar
jólakökurnar og legið uppi í sófa
alla dagana. Þessi vika sem hátíðin
stendur yfir er ekki ástæða fyrir
þínu heilsuleysi. Það eru allar
hinar vikurnar á árinu sem ráða
því hvernig heilsan þín er.“
Ekki eitt árið enn
„Flestir eru búnir að fá alveg nóg
af jólasukki og eru tilbúnir til að
þrengja sultarólina í botn á nýja
árinu. Fasta, enginn sykur, engin
kolvetni, ekki borða á kvöldin, æfa
tvisvar á dag, fara í kalda karið,
gufu, festa á sig blóðsykursmæli,
líma fyrir munninn fyrir svefn og
svo framvegis. Þetta er það sem
margir sjá á samfélagsmiðlum, hjá
reyndum heilsugúrúum sem hafa
unnið hörðum höndum í mörg ár
að því að bæta sína heilsu.
Ég segi bara stopp! Ekki æða af
stað enn eitt árið án þekkingar.
Flestir komast ekki yfir fyrstu
hindrun og falla svo harkalega að
þeir standa ekki aftur upp fyrr en
ári seinna með sömu látum, þetta
verður vítahringur. Oftast endar
kapphlaupið við rásmarkið. Fáum
faglega aðstoð. Eitt skref í einu.
Göngum hægt um gleðinnar dyr
og njótum þess til fulls að hafa
kraft til að takast á við eigin áskor-
anir með vilja og gleði að vopni.“ n
Telma deilir hér með lesendum
sínum uppáhalds heilsudrykk.
Hulk
250 ml möndlumjólk
2 kubbar frosið grænkál
50 g mangó
50 g banani
50 g avókadó
1 msk. engifer
1 msk. hampfræ
Limesafi eftir smekk
30 g 100% Pure Whey próteinduft,
vanilla
Við verðum að
búa til rútínu og
hefðir og megum alls
ekki troða okkur inn í
ramma sem hentar
öðrum. Hlustum á eigin
þarfir. Góð heilsa er á
eigin ábyrgð og ferlið
byrjar og endar hjá
okkur sjálfum.
Matseðillinn á
venjulegum degi:
Máltíð 1: Fæ mér smoothie-
skál eftir æfingu. Grunnur:
Frosin hindber, banani, pró-
teinduft, möndlumjólk. Toppa
hana með bláberjum, hamp-
fræjum, Atkins muesli og
slettu af Salty Caramel sósu.
Máltíð 2: Próteinrík vefja
eða kínóaskál með alls konar
grænmeti, eggjum, avókadó,
hampolíu og bragðbætt með
Fansy Carlic sósu.
Máltíð 3: Protein pancake og
epli eða annar ávöxtur og væn
skeið af hnetusmjöri eða Hulk
sjeikinn.
Máltíð 4: Ég elska fisk, bleikan
eða þorsk, sætar kartöflur og
risastórt salat með fræjum og
sprettum og spírum.
Snarl: Alla daga fæ ég mér trít
með kaffibollanum, oftast
eitthvert sykurlaust Atkins-
nammi.Ef þú ert orðin/n leið/ur á að hefja nýtt ár með nýjum fyrirheitum og mistakast
stöðugt þá gætir þú verið að glíma við matarfíkn.
Meðferðir við sykur/matarfíkn eru okkar sérfag!
Við hefjum 16 vikna námskeið með helgarnámskeiði 3.2.22.
Einnig verður í boði 40 klst. námskeið með Dr. Guttorm Toverud, sérfræðingi á
heimsvísu í þerapískri notkun 12 sporanna til lífstílsbreytingar, sem hefst 4.3.22.
Möguleiki að taka þessi tvö námskeið saman.
Endilega kíkið á síðuna okkar og skoðið dagskrána!
Matarfíkn er líffræðilegur
sjúkdómur sem veldur
tilfinningalegu, huglægu
og andlegu ójafnvægi
FRÁ MATARFÍKNIMIÐSTÖÐINNI:
Esther Helga Guðmundsdóttir MSc., Anna María Sigurðardóttir MA.
og Dr. Guttorm Toverud
MFM MIÐSTÖÐIN, Síðumúla 33, 108, Reykjavík
esther@mfm.is • 699 2676 • www.matarfikn.is
24 kynningarblað 30. desember 2021 FIMMTUDAGURHEILSA