Strandapósturinn - 01.06.1977, Blaðsíða 14
hluti hæðarinnar sem gengur í sjó fram eru klettar sem heita
Snasir. Skammt norður af Snösum er dálítill hólmi eða sker, sem
heitir Þernusker. Skerið er grasi gróið á kafla. Þar er æðarvarp og
selalagnir norður af skerinu. Milli Snasa og Þernuskers er
Snasasund. Austan við Snasir er Snasavík og síðan Kristjánsvík,
þá koma fleiri víkur sem ekki bera nafn. Síðan tekur við langur
kafli sem ekki er vogskorinn. Á þessum kafla ganga klettar í sjó
fram og fellur aldrei frá þeim, þar er því engin fjara, en töluvert
dýpi við klettana. I klettabelti þessu er skúti eða hellir sem heitir
Skessuhellir. Hann gengur nokkuð inn í klettabeltið. I eina tíð
var þak yfir honum öllum alveg fram á klettabrún, en nú er það
að mestu hrunið nema á smákafla innst í hellinum. Skammt
suður af Skessuhelli er vík ekki stór, sem heitir Búðarvogur.
Austur af Búðarvogi eru þrír hólmar og er mjög stutt á milli
þeirra allra, þeir mynda samfelldan skjólgarð fyrir hafáttinni.
Rétt austur af syðsta hólmanum er eyja ekki stór. Hún heitir
Kolbeinsárey. Á eyjunni og hólmunum var mikið æðarvarp. Það
hefur minnkað töluvert á seinni árum, eins og víða annarsstaðar.
Sundið milli hólmanna og eyjarinnar heitir Eyjasund. Norður af
eyjunni er Eyjasker og lengra úti til norðausturs er Hnappasker.
Norður af hólmanum er lítið sker sem heitir Brúnkolla. Suður af
Búðarvogi er hólmi sem heitir Landhólmi. Þangað má ganga
þurrum fótum um fjöru. Þar var þurrkaður fiskur á þeim tímum
sem útræði var stundað úr Búðarvogi. Leiðin út í hólmann er
stutt, en ákaflega ógreið yfirferðar sökum stórgrýtis. Þar hefur
verið búin til gangbraut úr hellulaga steinum til þess að auð-
velda flutning á fiskinum út í hólmann og er hún svo til óhreyfð
enn. Skammt vestur af Búðarvogi eru tvær tjarnir. Þær heita
Flæðitjarnir. Þar gætir mikið flóðs og fjöru. Rétt suður af þeim er
Gvendarbrunnur, dý sem hefur verið grafið upp og hlaðið innan.
Þar er ágætt neysluvatn, og var þar vatnsból vermanna. Nokkuð
sunnar í nesinu er vík sem heitir Fúlavík. Nafnið á víkinni er
þannig til komið að þar safnast oft mikill þari, sem úldnar þar og
gefur óskemmtilega lykt. Fram af Fúluvík eru þrír hólmar sem
heita Líkhólmar, (ekki er vitað af hverju nafnið er dregið).
Hólmarnir eru grónir og þar var æðarvarp. Við hólmana eru
12