Strandapósturinn - 01.06.1977, Blaðsíða 86
Búenda-
ríma
um Óspakseyrarsókn í Strandasýslu 1864, ort af Jóni Þórðarsyni,
bónda á Einfætingsgili. Skrifuð eftir handriti Guðna Einarsson-
ar á Óspaksstöðum (d. 1916) og J.G. (að nokkru) 1901, en hann
skrifaði eftir eiginhandarriti höfundar.
1. Máls af virki myndast klíð,
mœlskan styrkir feygifríð.
Nœr súyrkis-yfir -smíð
Eyrarkirkju búalýð.
2. Helztur fíra heyrist þá,
hefnir dýri Gísla sá,
auðnutír sem efla má,
Ólafur býr að Kolbeinsá.
3. Gnoð frá strindi glaðmœltur
gjarnan hrindir stjórnsamur,
greindur, fyndinn, gesthollur,
göfuglyndur bjargvœttur.
4. Þessi metinn meiðir brands
mœlist hetja sjós og lands.
Hrós fœr setur menntamanns;
mcetti geta konu hans.
5. Laus við þótta lœti körg,
lénar dróttum gœti mörg,
dyggðarþróttug, þokkafjörg
Þorláksdóttir Ingibjörg.
6. Bezt á fróni blómvaxin
báls- er lóna-sóleyin,
yndi sjónar umhorfin,
œrukrónuð gullrósin.
7. Suðra skeið að Syðri Vík
svo vill reiða máls af brík.
Hlaut ég greiða hóf þar rík,
hœgt þó beiða noti um slík.
8. Jónsson Tómas, timbursmið,
títt má róma listir við.
Risnu sóma rœður sið,
rœkir frómleiks athœfið.
9. Gísladóttir Þóra þar.
þakin gnóttum kvendyggðar,
komin af dróttum kynsœldar
kann íþróttir hússtjórnar.
84