Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Síða 38

Strandapósturinn - 01.06.1977, Síða 38
sleðum til sjávar og flutt á bátum síðasta áfangann heim. Öll voru þessi vinnubrögð seinleg og erfið, en fólk undi þessu, því annað var lítið þekkt og svo höfðu margir bændur ekki efni á, að breyta gömlum búskaparháttum, þó voru á þessum árum komin fyrstu jarðræktar-verkfærin svo sem plógur og herfi. Áburður til ræktunar var varla annar en húsdýraáburður, að sjálfsögðu mjög góður áburður, en vildi endast skammt ef um verulega ræktun var að ræða, því sá húsdýraáburður, sem til féll var notaður á ræktaða landið (túnin) um annan áburð var varla að ræða, þó var sumsstaðar notaður þari á sjávargrundir og þar sem tún lágu að sjó, ennfremur var allt fiskslor notað og reyndist mjög gott til áburðar, einnig var fiskslorið notað sem áburður í kartöflugarða, en þá voru kartöflur að verða ómissandi þáttur í fæðuöflun fólksins, en ekki var kartöfluræktin meiri en svo, að rétt væri til heimilisnota og oft tæplega það. Á þessum árum mun varla hafa verið nokkurt býli í norður- hluta Strandasýslu, sem lifði eingöngu á landbúnaði, flestir byggðu framfærslu heimilanna að einhverju leyti á sjávargagni og sumir að mestu leyti. Þeir, sem bjuggu upp til dala, sendu menn til róðra haust og vor og var að því mikil björg í bú. Aðaláhersla var lögð á það, að byrgja heimilin upp af mat, væri um meira fiskifang að ræða, en heimilið taldist þurfa með, var það selt, venjulega lagt inn í viðskiptareikning viðkomandi bónda hjá verzlun þeirri, sem hann hafði föst viðskipti við. Það gat oft verið erfiðleikum bundið að koma þessu fiskifangi í verðmæti og þó var það yfir- leitt það besta úr aflanum, hitt var tekið til heimilisnota. Venjulega var um saltaðan fisk að ræða, en kaupmenn létu oft, sem þeim væri ekki kappsmál að taka saltfisk upp í viðskipti og þá því aðeins, að komið væri með fiskinn á staðinn og honum skilað uppstöfluðum inn í fiskhúsi hjá þeim. Verð á fiskinum skömmtuðu þeir að eigin geðþótta, enda engin samkeppni þar sem venjulega var einn kaupmaður á stóru svæði, sem keypti fisk. Við þessi verzlunarkjör bjó almenningur um langt árabil. Eg ætla að bregða hér upp svipmynd af því hvernig var að búa við þessi kjör og er hún ekkert einsdæmi frá þeim tíma. Ég var þá 36
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.