Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 47

Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 47
Karólína Söebeck ab lesa bókina Friðrik Söebech beykir, bóndi í „Sálin vaknar“ eftir Einar H. Reykjarfirði. Kvaran. æskustöðvar, heim í fagra norðlenska dalinn, sem hún unni svo heitt, þó örlögin bæru hana þaðan í fang fjarða og nesja. En hún var þannig gerð, að rætur festi hún þar sem lífssaga hennar, sem fulltíða konu gerðist, enda var starfssviðið nægilegt, víða var þörf hughreystandi orða og líknandi handa og hvorutveggja hafði hún hlotið í vöggugjöf í ríkum mæli, flestir fóru léttari í huga af hennar fundi en þeir komu, en ef til vildi með eilítið þyngri mal. Hún var fyrsta lærða ljósmóðirin í Arneshreppi og stundaði það starf meðan heilsa og þrek entist. Nú heyrist það æ oftar að ungir og aldnir eigi ekki samleið. Vissulega breytast tímarnir og mennirnir með, má eflaust segja, en er það víst að eðli barnssálarinnar sé ekki líkt og það hefur verið, ómótaður skír málmur, sem veldur miklu um hver á heldur. Er ekki lengur hughreystandi fyrir ungar sálir að koma með brotnu gullin sín og leggja þau í kjöltu ömmu, sem er vísust 45

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.