Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 78

Strandapósturinn - 01.06.1977, Side 78
bjóða“, sagði Ólöf. Hún breiddi hreinan dúk á borðið, kom síðan með kaffið og heimabakaða jólaköku. Þær drukku kaffið með ánægju, töluðu um daginn og veginn. Klukkan sló ellefu, þung högg. Þær stóðu upp, þökkuðu mjög vel fyrir, kvöddu og fóru. Ólöf sat lengi hugsandi eftir að þær fóru, og starði út í gráa þokuna. „Skyldi mér skjátlast? Nei, ekki hef ég trú á því, og það eru fleiri en hún, ó, já.“ En hvað var hún að hugsa, að koma sér ekki í rúmið, kl. að verða 12. Ekki veitti af að spara kraftana. Hún leit yfir hópinn sinn — fjögur lítil barnsandlit. Þetta var hennar framtíð. Guð gæfi henni ynnust kraftar til að koma þeim vel á legg. Hún slökkti ljósið og gekk til náða. Og tíminn leið, hægt og bítandi. Enn var Ólöf í skúrnum sínum. Stefán var nú kominn austur fyrir Fjall, ein syndin býður annarri heim, og í drykkjuskap með slæmum félögum hafði hann flækzt i eitthvert vandræðamál — hann gerði heldur ekki nema ógagn heima. Ólöf gekk í hús og þvoði þvotta. Hún varð að reyna að klóra í bakkann, og nú var allt orðið svo óguðlega dýrt, að hún mátti hafa sig alla við, til að seðja fjóra munna og klæða hópinn. Engan styrk hafði hún enn þá þegið — það var nú kannske ekki rétt vegna barnanna, en eftir því sem hún hafði heyrt sagt, voru víst oft kaldar kveðjur, sem þurftalingarnir fengu, þrátt fyrir öll þessi upphróp um verkalýðssamtök og annað því um líkt. Ólöf var á leiðinni heim. Hún hafði þvegið mjög stóran þvott, og var óskaplega þreytt. Mikið skelfing gat hann verið kaldur, alveg gegnum nístandi! Hún hélt á peningunum, sem hún hafði fengið fyrir þvottinn. Það flögraði að henni að taka bíl, en hún barði þá hugsun samstundis niður — það var svo mikil þörf fyrir þessa peninga, að ekki eyrir mátti fara til spillis. Hún fékk ákaft hóstakast og kenndi sárt til í brjóstinu. Fæturnir drógust hvor fram fyrir annan, jökulkaldir, frekar af vilja en mætti. „Ó, guð“, andvarp- aði hún, „hvar er þín miskunnsemi?“ Hún staðnæmdist í porti einu, néri saman höndunum, sem 76

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.