Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 100
Slysatrygging er frjáls trygging, sem hver einstaklingur á aldrinum 15 til 64 ára getur
keypt og fyrirtæki vegna starfsmanna sinna. Hún gildir í vinnu, fritíma og á ferðalögum.
Tryggingin er bundin við ákveðið nafn og bætur þær, sem hægt er að fá af völdum slysa,
eru þessar: Dánarbætur, örorkubætur og dagpeningagreiðslur. Tryggingaupphæðir geta
verið mismunandi háar eftir óskum hvers og eins, en dagpeningagreiðslur ætti að miða
við þau laun, sem viðkomandi hefur fyrir vinnu sina, en geta ekki orðið hærri en '/2%
af örorkutryggingarupphaeðinni.
Slysatrygging er jafn nauðsynleg við öil störf og slysin henda á öllum aldri.
Við getum einnig boðið SAMEIGINLEGA SLYSA- OG LfFTRYGGINGU og SLYSA-
TRYGGINGU, sem eingöngu gildir í FRÍTÍMA.
Leitið nánari upplýsinga um SLYSATRYGGINGAR
hjá Aðalskrifstofunni eða umboðsmönnum.
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500
SAMVIIVNUTRYGGINGAR