Syrpa - 01.06.1948, Side 23

Syrpa - 01.06.1948, Side 23
hún sig á því, að hún hafði misskilið þetta. Hún fann, að okkur þótti vænt um hana, og þegar hún sannfærðist um það, kom hún til sjálfrar sín, varð aftur stóra systir, sem leikur við Ola, meðan við hinar brosum vingjarnlega til h#nnar í stað þess að stara svona hroðalega á hana. Hún var aftur komin inn í fjölskylduhringinn, þó að hún væri ekki lengur miðdepill hans. Hún kyssti á fingur til Óla, svo að hann heyrði fjölskyldunni til engu síður en hún. Nú voru þau bæði, ásamt okkur hinum, deplar á hringnum, sem tengir fjölskylduna saman. Skiljið þið mismuninn á því að vera miðdepill hringsins og þessu?“ „Ég fer að halda, að við höfum verið of nær- gætin við Önnu Stínu, þegar við ætluðum að reyna að koma í veg fyrir að henni fyndist hún sett hjá. Hún getur vitanlega ekki alltaf verið undir verndarvæng okkar. Hún verður að læra að standa á eigin fótum." „Það er alveg rétt, en við getum ekki vænzt þess, að tveggja ára gamalt barn geti tekið því með glöðu geði að vera sett hjá. Þetta er fyrsta mótlætið, sem hún verður fyrir í lífinu. Hún þroskast við jrað. Hennar bíður meira mótlæti um ævina. Lífið sér fyrir því. Eg held að liæfi- leikinn til að taka því, að gengið sé frarn hjá manni, sé í rauninni einn prófsteinninn á fram- för manna á þroskabrautinni.“ „Ég sé líka dálítið annað í þessu,“ sagði móð- irin. „Það er ekki nóg að elska börnin sín. Ást okkar má ekki verða þeim fjötur um fót. Við verðum að losa þau smáin saman úr viðjum um- hyggju okkar. Við megum ekki gjöra þau of háð okkur.“ Anna Stína var í rauninni mjög vel sett. Hún átti góða foreldra, var skynsamlega alin upp, enda heilbrigt og hamingjusamt barn. Samt sem áður gat hún átt við óbærilega örðugleika að stríða eins og önnur börn. Til þess að vinna bug á þessum óhjákvæmilegu örðugleikum lífsins, eða a. m. k. til þess að gera þá bærilegri, verður barnið að læra að horfast í augu við þá. Annars er lrætt við að það taki erfiðleikum alla ævi eins og barn — örvinglað, yfirbugað eða með hefnd- arhug. En til jiess að barnið geti mætt þeim með hugrekki, þarf það á hjálp að halda. Það þarfnast skýringa á erfiðleikunum, sem reynslan ein getur gefið. Og reynsla er einmitt það, sem barnið skort- ir. Foreldrar Önnu Stínu studdu hana í reynslu- leysi hennar. Þeim fannst hún ekki „óþekk“. Þau létu Iiana finna, að þau skildu hana. Auðvitað getur jafnvel liyggnustu foreldrum skjátlazt. En ef þeir eru fúsir til að viðurkenna mistök sín og vilja af heilum hug leitast við að jrroskast dag frá degi með börnum sínurn og læra af þeirri reynslu, þá þurfa þeir ekki að óttast ábyrgðina, sem á þeim Iivílir. Þeir geta þá glaðzt með börn- um sínum og yfir þeim. Einhvers staðar austur á fjörðum var smali fyrir innan fermingu stundum að gera sér það til dundurs fyrir rúmum 60 árum að reyna að setja saman bögur. Einu sinni lenti hann í ógöngum og kvað þá þetta: Fyrir dý og krapakeldur krækja ekki er vert. Betra er að ösla heldur endilangt og þvert. Öðru sinni týndi hann úr fjárhópnum og leitaði lengi. „Hvert. ert jm að lialda drengur minn?“ spurði ókunnugur maður, sem nrætti honum í fjallshlíð. Drengurinn var svo feiminn að hann kom sér ekki að því að svara, en eftir á hugsaði hann: „Ég er nú að halda heim, hættur öðru að sinna; var að leita að lömbum tveim, en lánaðizt ekki að finna.“ Einn góðviðrisdag var hann að leika sér við krakka úti í móum, og tók Jrá upp á Jrví að gefa kunningja sinn og jafnöldru saman í hjónaband eins og hann hafði séð gert í kirkjunni. Að at- höfninni lokinni urðu þessar vísur til: „Eg er loksins orðinn prestur og að góðu brauði seztur. Drottins orða ljúfan lestur les ég yfir spilltri þjóð, svo hún verði sæl og góð. En einn er gallinn á mér verstur, embættinu að þjóna: Mér er alveg ómögulegt að tóna!“ Mörgum árum seinna voru litlu brúðhjónin gefin saman í kirkju, en litli prestnrinn fékk aldrei neitt brauðið. S YRPA 61

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.