Syrpa - 01.06.1948, Page 24

Syrpa - 01.06.1948, Page 24
Undir þessari fyrirsögn verða framvegis birtar greinar um hitt og þetta, sem aflaga fer hjá okkur, og „um er vert að r;rða.“ „Þið hafið nóg af ullinni —u Sumarið 1946 var ég á lerð í Svíþjóð ásamt fleiri íslenzkum konur. í þeirri ferð sá ég lieimil- isiðnaðarsýningar, bæði í Stokkhólmi og norður í Dölum. Átti ég tal við nokkrar forustukonur heimilisiðnaðar þar í landi og voru þær mjög áhugasamar um þau mál. Það sem þær kvörtuðu mest um var skortur á innlendum efnum. „Það er munur fyrir ykkur þarna úti á Islandi, þið haf- ið nóg af ullinni til þess að vinna úr og þurfið ekki að kvarta.“ Um leið benti ein konan á Jítið ullarsjal, sem ein okkar hafði á handleggn- um. „Er þetta ekki unnið úr íslen/kri ull?“ sagði hún. — „Skárri eru það litirnir, sem þið eigið í fórum ykkar! Eru þetta sauðarlitir, eða eigið þið svona fína og mjúka liti á „Sögueyjunni“?“ Það fóru um mig geðhrif gleði og hryggðar. — Gleði yfir viðurkenningu um fagurt handbragð og smekk íslenzku konunnar, sem hafði unnið sjalið. En samfara gleðinni fann ég til sársauka yfir því, hve mikil vanræksla og skilningsleysi hefur ríkt síðustu áratugi meðal vor í sambandi við ullariðnað íslenzkra heimila. A tiltölulega stuttum tíma hefur margt breytzt í þjóðlífi okkar. Fólkið hefur horfið úr sveitun- um, en fjölgað í bæjuni og kauptúnum. Vinnu- brögð breyttust til sveita, vélar héldu innreið sína á heimilin. Kömbum og rokkum var vikið út í skemmuhorn. Nú voru dagar þeirra taldir. Fólksleysi var um kennt, spunavélabandið reynd- ist líka nothæft í nauðsynleg plögg. Einstaka gömul kona ríghélt t rokkinn sinn og mátti ekki af ltonum sjá. Hann liafði oft veitt henni unað og liðsinnt henni í baráttu lífsins. — Og margar gömlu konurnar hristu höfuðið yfir þessu nýja ferlíki, sem komið var í baðstofuna og litu það hornauga. Að vísu voru spunavélarnar stórvirk- ari en rokkurinn, en bláþræðir, brigður og hnökr- ar voru á bandinu og illhærurnar stóðu út úr, hvar sem litið var. Enginn hafði nú lengur tíma til að taka ofan af eða hæra ullina, áður en hún fór í kembingu. — Það þýddi lieldur ekkert, sagði fólkið. Ullinni var ruglað saman í kembivélun- um og j>ar fór allt í graut, h\'ort sem var. Gömlu konurnar hugsuðu til æsku sinnar og manndómsára, þegar þær kepptust við að vinna og spinna sem fallegast band og fengu viðurkenn- ingu húsmóðurinnar að kvöldi fyrir vel unnið dagsverk. Þá var kostað kapps um, að bandið yrði sem mýkst og jafnast, snúðurinn hæfilegur og þráðurinn hnökra- og snurðulaus. Fallegt og ^ott band var þá fjársjóður heimilanna. Það fólst mik- ið öryggi í því að eiga sem mest af þeirri vöru. Þá var þó von um vörn gegn vetri og kulda — von um að steytan næddi ekki inn að beru beini. Fólki þótti í þá daga vænt um ullina sína og ull- arfötin. — En hvar erum við nú stödd? — Sú er gömul í hettunni — verður ykkur eflaust á að segja, sem lesið þessar línur. — Ætlast hún til þess, að við förum að setja nýjar snúrur á rokk- ana og förum að þeyta þá eins og í gamla daga? 62 SYRPA

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.