Syrpa - 01.06.1948, Qupperneq 30

Syrpa - 01.06.1948, Qupperneq 30
son. Hann er ungur maður og hefur alizt upp í þorpinu. Hann sálgaði honum Símoni gamla Lár- ussyni, af því hann kom að honum uppi í berja- heiði, þar sem hann var að áreita konuna hans. Þeir flugust á lengi og harkalega, og Óskar fór ekki varhluta af hnefahöggum áður en hann gerði út af við Símon. í gærkveldi safnaðist fólk á gangstéttina kringum luktarstólpanu. Mýflugna- mökkur hringsólaði kringum ljósbirtuna og múg- urinn lét smásteinum, spýtum og flöskum rigna yfir ókunnu smiðina. Stefán, löregluþjónninn, stóð nndir Ijóskerinu og liorfði til jarðar og lét senr hann sæi ekkert af því, sem fram fór. Óskar Jónsson var ekki nema þremur árum eldri en Jóhannes Ólafsson. Jóhannes gekk rakleitt inn í skrifstofuna. Þar sat lögreglustjórinn uppi á skrifborðinu, lágvax- inn og þunglamalegur, og vætti í sífellu kolsvart skeggið á sér með vörunum. „Sælir, Jóhannes," sagði hann. „H\ að er yður á höndum?“ „Góðan daginn, lögreglustjóri. RANNSÓKN langar til að vita, hvort böðullinn er kominn." „Af hverju komið þér til mín til að spyrja um það?“ „Ég hélt hann kæmi kannski beina léið hing- að til að skoða gálgann. Ætli hann geri það ekki?“ „Ansi var það glúrið, að yður skyldi detta það í hug,“ sagði lögreglustjórinn. „Er liann hérna?“ spurði Jóhannes. „Verið þér ekki að spyrja mig. Ég segi ekkert. En heyrið þér, Jóhannes, haldið þér að það verði uppþot? Þér ættuð að vita það. — Ætli mér sé kennt um? Ég get ekkert gert. Þér skiljið það.“ „Ég hef engan heyrt álasa yður. En gæti ég ekki fengið að tala við böðulinn. Heitir hann Karl Karlsson?" „Hvað kemur yður þetta við? Góði, látið þér okkur í friði.“ „Þá það, lögreglustjóri. Ég hef einhver ráð.“ Um sólarlagsbilið rölti Jóhannes eftir rykug- um veginum suður úr þorpinu og niður að bryggjunni hans Péturs í stöðinni. Hann vissi, að svo framarlega sem maðurinn liefði í hyggju að fá sér bát, þá hlyti hann að koma á bryggjuna. Jóhannes renndi augunum á rykuga skóna sína, klunnalega stöðvarliúsið og spegilslétt vatnið við fætur sér. Að baki glóði sólin yfir bláleitum heiðadrögum og hellti geislaflóði sínu yfir fer- liyrndar skákir af ræktaðri jörð. Loftið var rakt af gufunni frá rafstöðinni. Úti á hrörlegri bryggju, sem hiaðin var upp úr grjóti og bjálkum, sat lítill maður á hækjum sér og einblíndi út yfir vatnið, fjarskalega smávaxinn náungi með grátt hár í hnakkanum, hrokkið eins og á krakka. Hann hélt á priki, sem um var vafin digur lína, og það glytti á látúnsspón með fjaðra- skrauti, eins og notað er á þessum slóðum við silungsveiði í vatninu. Jóhannes gekk í humátt til hans og kallaði: „Eruð þér að hugsa um að fara að veiða?“ Það hýrnaði yfir manninum og hann stóð upp. Höfuðið á honum var stórt og mjókkaði niður með vöngunum, hálsinn krangalegur eins og á fugli og brosið hikandi. Hann vipraði varirnar og sagði feimnislega: „Ætlið þér kannski að veiða?“ „ Já, það var nú ætlunin. Ég var að hugsa um að fá mér bát þarna í skýlinu. Kannski við ættum að slá pjönkum okkar saman?“ „Það vildi ég gjarnan," sagði litli, óframfærni kumpáninn ákafur. „Við gætum róið til skiptis. Hvernig lízt yður á það?“ „Það er fyrirtak. Viljið þér ekki hinkra við, á meðan ég skrepp hérna inn til hans Péturs og bið hann um bátinn, svo ræ ég hingað og tek yður.“ „Þakka yður fyrir. Þakka yður kærlega fyrir,“ sagði litli maðurinn þýðlega og fór að losa um línuna sína. Hann ljómaði af tilhlökkun. Þegar Jóhannes kom með bátinn að bryggju- sporðinum og bauð aðkomumanninum að stíga um borð og koma sér vel fyrir með færið, þá sagði liann brosleitur að það væri nú alveg óþarfi, hann skyldi lreldur róa. Jóhannes reri knálega, og brátt voru þeir komn- ir langt út á djúpið. Litli maðurinn lagði línuna sína gætilega út. Jóhannes skotraði til hans aug- unum og veitti Jrví eftirtekt, að lrárið á honum var farið að grána í vöngunum og að það vildi hringa sig upp hjá eyrunum. Línan var öll komin út og endinn vafinn um vísifingur litla veiði- mannsins, niðri í vatninu. Jóhannes horfði nú hispurslaust framan í hann og gat ekki að sér gert að kýma. Osköp var hann eitthvað bljúgur og spaugilegur. Þetta er indælis karl, hugsaði hann og sagði upphátt: „Ég vinn hjá blaðinu Rannsókn." „Það er ágætt blað. Hvernig fellur yður vinn- an?“ „O, sæmilega. En heldur þykir mér nú blaðið lélegt. Ég vildi helzt komast að sem fréttaritari 68 S Y R lJ A

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.