Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 188. tölublað . 109. árgangur . BLIKAR STÓÐU Í SKOTUNUM Í ABERDEEN BILANIR SETJA STRIK Í REIKNINGINN MIKILVÆGT AÐ SEGJA HINS- EGIN SÖGUR ÞYRLUSVEIT LANDHELGISGÆSLUNNAR 11 BJARNI FLYTUR EINLEIK 28SAMBANDSDEILD EVRÓPU 26 Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Virkum kórónuveirusmitum fækkaði um 55 á milli daga samkvæmt tölum frá Landspítalanum í gær og segir sóttvarnalæknir veiruna því ekki vera í veldisvexti, heldur sé farald- urinn í línulegum vexti. Runólfur Pálsson, yfirmaður Covid-göngu- deildar Landspítala, segir að þó að virkum smitum fækki nú hafi smitum síðustu vikurnar verið að fjölga um meira en 100 á dag. „Ef við reiknum ari sóttvarnaaðgerðir. „Þótt hann legði til hertar aðgerðir núna þá skil- aði það sér ekki strax til spítalans, jafnvel þótt við gæfum okkur að bylgjan rénaði,“ segir Runólfur og nefnir að áfram yrði mikið álag á spít- alanum í tvær til þrjár vikur. „Það er það sem gerir þessa óvissu svo mikla. Jafnvel þó fjöldi smita sé stöðugur á hverjum degi þá má búast við því að úr þeim hópi muni einhverjir veikjast það alvarlega að þeir þurfi að leggjast inn á spítala og jafnvel inn á gjör- gæslu.“ Runólfur segir það vera mjög misjafnt hversu lengi fólk þurfi að liggja inni á spítala, en í langflestum tilfellum sé um að ræða svæsna lungnabólgu. „Þeir sem enda í önd- unarvél á gjörgæslu eru með mjög al- varlega lungnabólgu sem tekur lang- an tíma að ná bata af.“ Þá nefnir Runólfur að undirliggjandi sjúkdóm- ar geri mörgum einnig erfitt fyrir. „Á sama tíma þarf svo að sinna öllu öðru, samfélagið er á fullu svo það hefur ekki minnkað þó að bylgjan geisi.“ með því að tveir eða þrír af þeim veik- ist mjög alvarlega, þýðir það upp- safnað álag á Landspítala,“ segir Runólfur. Í gær lágu 30 á spítala vegna kórónuveirunnar, fimm voru á gjörgæslu og þar af fjórir í öndunar- vél. „Það gæti dregist á langinn með þessa sjúklinga, svo að ef það bætist við í þann hóp, þá verður þetta mjög þungur róður.“ Þórólfur sagði á upplýsingafundi í gær að ef Landspítali láti í ljós áhyggjur af neyðarástandi þá sé óhjákvæmilegt að hann leggi til hert- Virkum smitum fækkar um 55 - Faraldurinn í línulegum vexti - Uppsafnað álag á spítala - „Þungur róður“ MEkki útlit fyrir niðurleið ... »2 & 4 Erjur hafa staðið um árabil milli nágrannanna Páls Guðmundssonar, mynd- höggvara á Húsafelli, og Sæmundar Ásgeirssonar, eiganda á Gamla bæ. Dómur féll í málinu í júlí á síðasta ári, þar sem Páli var gert að fjarlægja hús, byggt utan um legsteinasafn hans, á eigin kostnað að viðlögðum dagsektum. Í gær átti að rífa þakið af aðalrými hússins en sveitarfélagið boðaði þá Pál og Sæmund til sáttafundar. Samningaviðræður gengu upp og ofan að sögn sveitarstjóra en að lokum náðist samkomulag sem var í þágu beggja. Leg- steinahús Páls verður um kyrrt og fallið verður frá dagsektum. Sæmundur fær á móti byggingarleyfi svo áform hans um sumarhúsabyggð geti orðið að veruleika. Var mikill fjöldi fólks saman kominn við legsteinahúsið þar sem það beið örlaga sinna í heljargreipum kranabifreiðar. Sæmundur féllst að lokum á að undirrita samninginn og veitti undirskrift sína þar sem hann var kominn áleiðis til Reykjavíkur. Var samningnum svo komið í Húsafell þar sem Páll undirritaði hann ásamt sveitarstjóra. »2 Samkomulag í þágu beggja Legsteinahús Páls á Húsafelli fær að standa en búið var að festa þak þess við kranabifreið sem beið átekta. Morgunblaðið/Eggert Nálægð Á myndinni sést bæði í húsakostinn á Bæjargili og Gamla bæ. Legsteinahúsið við lóðarmörkin átti að rífa sökum formgalla á byggingarleyfi þess. Samstaða Mikill fjöldi var mættur í Húsafell í gær. Á myndinni sjást Páll og sr. Geir Waage, fyrrverandi sóknarprestur í Reykholti, taka tal saman. Hersveitir talibana hafa unnið hvern sigurinn á fætur öðrum í bar- áttunni við stjórnarher Afganistan síðustu sólarhringana. Í kjölfar þess að hin hernaðar- lega mikilvæga borg Ghazni féll í hendur hryðju- verkamannanna eru líkur taldar aukast á því að þeir geti náð höf- uðborg landsins, Kabúl, á sitt vald. Í ljósi þess hversu alvarlegt ástandið er orðið í landinu hafa bæði Bandaríkjamenn og Bretar ákveðið að senda herlið til Kabúl í þeirri við- leitni að aðstoða sendiráðsstarfs- menn sína við að koma sér á brott frá borginni. Þannig mun 600 manna herlið frá Bretlandi vera á leið til borgarinnar og 3.000 her- menn úr sveitum Bandaríkjamanna. Hafa talsmenn varnarmálaráðu- neytis Bandaríkjanna lýst því yfir að herliðið muni ekki efna til átaka við talibana. „Það eru engar áætl- anir eða umræður í gangi um að nýta Hamid Karzai-alþjóðaflugvöll- inn sem miðstöð til þess að efna til loftárása innan eða í nágrenni Afg- anistan,“ sagði talsmaður varn- armálaráðuneytisins í yfirlýsingu í gærkvöldi. Joe Biden gagnrýndur Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur sætt sífellt harðari gagnrýni fyrir þá ákvörðun að draga allt her- lið landsins frá Afganistan, en það hefur haft hersetu í landinu í tvo áratugi. Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði „Afganistan stefna í átt að yfirgripsmiklum, fyr- irsjáanlegum hörmungum sem þó hefði mátt fyrirbyggja.“ »13 Búa sig undir fall Kabúl - Herlið sent til að rýma sendiráð Joe Biden _ Afrakstur dún- tekju var al- mennt ágætur hjá æðarbændum í sumar. Vegna kulda verpti æð- arfuglinn þó seint sums stað- ar, til dæmis við Breiðafjörð. „Það var flott sumar hjá okkur enda einstakt veður á Melrakka- sléttu. En það er alltaf það sama, stöðug barátta við varginn. Það komst tófa í varpið hjá okkur og fældi eitthvað af fugli frá,“ segir Margrét Rögnvaldsdóttir, æðar- bóndi á Harðbak. »10 Ágætur afrakstur dúntekju sumarsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.