Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Afrakstur dúntekju var almennt ágætur hjá æðarbændum í sumar. Vegna kulda verpti æðarfuglinn þó seint sums staðar á landinu, til dæmis við Breiðafjörð. „Við vorum í dúnleitum seinnihlutann í júlí. Það er nýtt fyrir mér,“ segir Erla Frið- riksdóttir, framkvæmdastjóri Ís- lensk æðardúns í Stykkishólmi. „Það var flott sumar hjá okkur enda einstakt veður á Melrakka- sléttu. En það er alltaf það sama, stöðug barátta við varginn. Það komst tófa í varpið hjá okkur og fældi eitthvað af fugli frá,“ segir Margrét Rögnvaldsdóttir, æðar- bóndi á Harðbak II á Melrakka- sléttu og formaður norðaustur- deildar Æðarræktarfélags Íslands. Stöðugt í vörn gegn vargi Margrét segir að tófan éti egg og færi heim á greni og reki með því æðarfuglinn af hreiðrum. Ef þetta gerist snemma sumars sé möguleiki á að kollan komi til baka og verpi þá annars staðar. Margrét segir að æðarbændur þurfi stöðugt að verja sig gegn vargi. Hún segir verst að fá mink í varpið, hann drepi allt sem fyrir verði. Hrafnar sæki í eggin og geti rekið kollurnar af hreiðrum. Sömu- leiðis skúmar. Þegar ungarnir fari út á sjó sé svartbakurinn mikil ógn. Margrét segir æðarvarpið á Harðbak vera dreift yfir stórt svæði sem geri erfiðara að verja það gegn vargi. Það er þó reynt. „Maður hef- ur gott af göngunni. Þetta er ægi- lega skemmtilegt starf. Að vera úti í náttúrunni og samneytið við fuglinn er yndislegt,“ segir Margrét. Nánast séríslensk afurð Segja má að dúnn sé séríslensk afurð því héðan koma um þrír fjórðu hlutar þess dúns sem seldur er í heiminum, eða um þrjú þúsund tonn af um fjögur þúsund tonna heildarmarkaði. Mest er selt til Þýskalands og Japans og fer megn- ið í sængur en eitthvað einnig í fatnað. Miklar sveiflur eru á markaðnum sem koma beint við pyngju æðar- bænda. Erla segir að verðið hafi náð hámarki á árinu 2016 en eftir það hafi eftirspurnin minnkað, kaupendur haldið að sér höndum og verðið lækkað mikið. Birgðir fóru að safnast upp hjá seljendum. Erla segir að kórónuveirufaraldurinn hafi ekki hjálpað til. Hún segir að markaðurinn sé aft- ur á hægri uppleið og verðið hafi skánað. Samkvæmt útflutnings- tölum á þessu ári er meðalverð lið- lega 170 þúsund krónur á kílóið. Það er enn töluvert frá því sem var á öldutoppnum, 2016. Saxast hafi á birgðirnar og telur Erla að ekki séu eftir mikilar fyrningar frá fyrri ár- um. Margrét segir að Æðarræktar- félag Íslands vilji draga úr þessum miklu sveiflum. Það geti gerst með því að framleiða meira hér og flytja dúninn út í fullunnum vörum. Hún segir að jafnhliða þurfi að kynna ís- lensku æðarræktina og hversu um- hverfisvæn framleiðslan sé hér. Bændur hafa fyrir nokkru lokið dúntekju og eru margir búnir að þurrka dúninn og senda hann frá sér í hreinsun. Nokkrar hreinsi- stöðvar eru á landinu og um það bil fimm fyrirtæki í útflutningi. Eitt- hvað er einnig um að bændur hreinsi sjálfir framleiðslu sína og flytji út hráefnið eða tilbúnar sæng- ur. Æðarrækt og vinnsla æðardúns er byggð á aldagömlum hefðum sem hafa byggst upp kynslóð fram af kynslóð, eins og sagt er frá á vef Æðarræktarfélags Íslands. Þótt æðarfuglinn sé villtur sækir hann í vernd bænda fyrir rándýrum enda standa sumir þeirra vakt um æðar- varpið allan sólarhringinn á varp- tíma. Á vorin er búið í haginn fyrir komu æðarfuglsins með því að hreinsa varpsvæðið og girða það af, þar sem því verður við komið. Vin- sælt er að nota útvarp og litríka hluti til að laða fuglinn að. Í stöðugri baráttu við varginn - Ágætur afrakstur af dúntekju í sumar - Fuglinn verpti seint við Breiðafjörð - Tófa komst í varp- ið á Melrakkasléttu og fældi kollur af hreiðrum - Heimsmarkaðurinn er aðeins að taka við sér Morgunblaðið/Ómar Æðarrækt Æðarkollan elur unga sína upp úti á sjó. Áður en að því kemur skilur hún eftir mikil útflutningsverðmæti í hreiðri sínu sem æðarbóndinn nýtir. Erla Friðriksdóttir Margrét Rögnvaldsdóttir Þegar kemur að því að klippa niður stór tré í garðinum er vissara að fá til þess fagmenn, líkt og þá sem voru nýverið að störfum í Hlíðunum. Þar var tré tekið snyrtilega niður og fylgdist aðstoðarmaður vel með félaga sínum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ekki gott að lenda undir trénu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.