Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 27
Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeittar Mary Vignola og Áslaug Munda í baráttunni fyrr í sumar. FÓTBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Breiðablik og Valur mætast í sann- kölluðum stórslag í 15. umferð úr- valsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í kvöld. Liðin tvö hafa eins og við mátti búast verið í sérflokki á Íslandsmótinu og eiga í harðri bar- áttu um Íslands- meistaratitilinn. Valur er fyrir leikinn með 35 stig eftir 14 leiki og ríkjandi Ís- landsmeistarar Breiðabliks með 31 stig, einnig eftir 14 leiki. Það er því allt undir í leik kvölds- ins þar sem Valur getur farið langt með að tryggja sér titilinn með sigri og Breiðablik getur með sigri hleypt gífurlegri spennu í toppbaráttuna fyrir lokasprettinn. Blikar unnu fyrri leikinn í deildinni á tímabilinu 7:3 í ótrúlegum leik og unnu svo einnig magnaðan 4:3-sigur í undan- úrslitum Mjólkurbikarsins. Harpa Þorsteinsdóttir, fyrrver- andi landsliðskona, býst ekki við þetta mörgum mörkum í leik kvöldsins. „Ég held að bæði lið fari varfærnislega inn í leikinn. Það er náttúrlega meiri pressa á Breiða- bliki að vinna með stöðu liðsins í deildinni í huga. Þó að Blikarnir hafi verið meira sannfærandi í fyrri leiknum í deild- inni þá vill hvorugt liðið fá svona mörg mörk á sig. Það kæmi mér því ekki á óvart ef bæði lið væru búin að skipuleggja sig þannig að þau leggi áherslu á varnarleikinn. Valur er auk þess búið að breyta liðinu meira en Breiðablik frá því í fyrri leiknum í deildinni og því er spurning hvort það sé hægt að taka mikið mark á honum,“ sagði hún við Morgun- blaðið. Blikar ekki tapað í þrjú ár „Valur færði náttúrlega Mist aft- ur niður í vörnina eftir leikinn, sem hentar þeim greinilega betur,“ en hún lék á miðjunni í tapinu stóra. „Mist hefur spilað frábærlega. Ég tel hana vera lykilleikmann fyrir Val í þessum leik.“ Aðspurð hverja hún teldi lykil- menn Breiðabliks í leiknum í kvöld sagði Harpa: „Það er svolítið erfitt að segja. Þær eru náttúrlega með Öglu Maríu [Albertsdóttur] sem hefur verið að klára leiki fyrir þær. Svo eru mjög margar ungar stelpur hjá Blikunum sem eru að spila vel, þær eru með leikmenn sem geta tekið leikinn yfir og klárað hann.“ Þó hún búist ekki við jafn mörg- um mörkum og í fyrri tveimur leikj- um liðanna á tímabilinu á hún von á góðum leik. „Ég held að það verði fjör í þessum leik. Þetta gæti orðið baráttuleikur alls staðar á vellinum því það eru sterkir leikmenn í öllum stöðum hjá báðum liðum. Þau eru örugglega búin að kynna sér hvort annað mjög vel. En Blikarnir eru með ákveðið tak á Val,“ sagði Harpa. Þar er engu logið en Valur vann Breiðablik síðast í deildinni sumarið 2018. Breiðablik vann hinn leikinn í deildinni það sumarið og einnig leik liðanna í undanúrslitum bikarsins þegar Blikar unnu tvöfalt. Sumarið 2019 skildu liðin jöfn í tvígang þegar Valur varð Íslandsmeistari og á síð- asta ári unnu Blikar báða deildar- leikina og urðu Íslandsmeistarar. Blikar unnu svo sem áður segir fyrri leikinn í deildinni og nauman sigur í undanúrslitum bikarsins í sumar. Valur sigurstranglegra „Bikarleikurinn fannst mér vera mjög jafn, liðin voru sambærileg þar. Elín Metta [Jensen] var ekki með í þeim leik og Ásdís Karen [Halldórsdóttir] ekki heldur. Það mun styrkja Valsliðið að hafa þær með í kvöld. Valur er líka búið að vera stöðugra undanfarið og er á sigurgöngu og það getur hjálpað. Mér finnst þær sigurstranglegri þó að tölfræðin sé ekki með mér í liði þar! En það væri nú aðeins skemmtilegra fyrir deildina ef Blik- arnir tækju þetta, bara til þess að opna toppbaráttuna,“ sagði Harpa. „Það sem gæti orðið úrslitavaldur í þessum leik, sem yrði gaman, eru varamennirnir. Bæði lið eru með mjög sterka leikmenn á varamanna- bekknum. Fanndís [Friðriksdóttir] hefur komið mjög sterk inn af bekknum undanfarið hjá Valsliðinu. Ef allt verður í járnum þá gætu þjálfarar liðanna haft úrslitavaldið þegar kemur að því hversu klókir þeir verða með innáskiptingar sínar. Það er það sem þarf til ef þetta verður þannig leikur, jafn og spenn- andi, eins og maður býst við,“ sagði Harpa að lokum við Morgunblaðið. Meiri pressa á Breiðabliki - Harpa Þorsteinsdóttir býst við varfærnislegri nálgun beggja liða - Valur á sigurgöngu - Breiðablik með tak á Val - Varamenn gætu gert útslagið Harpa Þorsteinsdóttir ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, var valinn leikmaður júnímánaðar hjá stuðn- ingsmönnum rúmenska félagsins Cluj. Félagið fjallar um þetta á Fa- cebook og segir að Rúnar hafi haft betur í hörðum slag við Claudiu Petrila. Rúnar hefur nánast eingöngu spilað í Meistaradeildinni á tíma- bilinu til þessa en verið hvíldur í deildarleikjum. Hefur hann verið í byrjunarliðinu í öllum sex leikjum liðsins í Meistaradeildinni og skor- að tvö mörk. sport@mbl.is Rúmenar kunna að meta Rúnar AFP Rúmenía Skagfirðingurinn fer vel af stað með liði Cluj. Enska knattspyrnufélagið Chelsea gekk í gær frá kaupum á belgíska framherjanum Romelu Lukaku frá Inter Mílanó á Ítalíu á 97,5 milljónir punda. Lukaku kom fyrst til Chelsea árið 2011 frá Anderlecht, en var síðan seldur til Everton árið 2014 þar sem hann náði ekki að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Chelsea. Síðan þá hefur Lukaku verið einn besti framherji Evrópu og raðað inn mörkum fyrir Ever- ton, Manchester United og loks Int- er Mílanó þar sem hann varð Ítal- íumeistari á síðasta tímabili. Lukaku sá dýrasti í sögu Chelsea AFP Chelsea Romelu Lukaku ákvað að snúa aftur til London. _ Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarna- son hefur gert tveggja ára samning við tyrkneska félagið Adana Dem- irspor. Liðið spilar í efstu deild á komandi leiktíð eftir að hafa hafnað í efsta sæti í B-deildinni. Birkir er 33 ára og skoraði sex mörk fyrir Brescia í ítölsku B-deildinni á síðustu leiktíð. Hann hefur einnig leikið með Viking, Bodö/Glimt, Standard Liege, Pesc- ara, Sampdoria, Basel, Aston Villa og Al-Arabi fyrir utan að spila 98 A- landsleiki fyrir Ísland. _ Argentínski knattspyrnustjórinn Marcelo Bielsa hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeild- arfélagið Leeds um eitt ár. Bielsa hefur verið við stjórn hjá Leeds frá árinu 2018 og náð eftirtektarverðum árangri með liðið. Hann kom því upp úr B-deildinni og upp í úrvalsdeildina í annarri tilraun og stýrði liðinu í ní- unda sæti á sínu fyrsta tímabili í úr- valsdeildinni. Tímabilið var það fyrsta hjá Leeds í efstu deild í sextán ár. Enska úrvalsdeildin hefst á ný í kvöld en Leeds mætir erkifjendunum í Manchester United á morgun. _ Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur birt nýjan styrkleikalista fyrir landslið karla. Evrópumeistarar Ítalíu eru komnir upp í fimmta sætið. Ítalía fer upp um tvö sæti eftir að hafa unnið Evrópumótið í sumar, úr því sjöunda í það fimmta. Ísland er komið niður í 53. sæti af 210 þjóðum og er þannig einu sæti neðar en á síðasta lista sem var birtur í maí. Ís- land er í 29. sæti af 55 þjóðum Evr- ópu, næst á eftir Skotlandi og Norð- ur-Írlandi en næst á undan Finnlandi og Bosníu. _ U17 ára landslið kvenna í hand- knattleik leikur á laugardaginn gegn Spáni í undanúrslitum b-deildar EM. Liðið hafnaði í 2. sæti í riðlakeppn- inni en tapaði ekki leik. Ísland og Pólland gerðu jafntefli og fengu jafn mörg stig en Pólverjar skoruðu fleiri mörk. _ Bandaríski framherjinn Delaney Baie Pridham, sem hefur leikið með kvennaliði ÍBV í knattspyrnu í sumar, er á leið til sænska úrvalsdeildarliðs- ins Kristianstad. Þetta herma örugg- ar heimildir mbl.is. Pridham hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV en hún hefur skorað sjö mörk í tíu deildarleikjum í úrvals- deildinni auk þess sem hún skoraði eitt mark í tveimur bikarleikjum. Er hún markahæsti leikmaður ÍBV á tímabilinu og því ljóst að um mikla blóðtöku er að ræða fyrir Eyjakonur, sem eru um miðja deild í sjötta sæti með 16 stig eftir 13 leiki. Samkvæmt heimasíðu KSÍ er Pridham þegar bú- in að fá félagaskipti yfir til Svíþjóðar og má búast við því að Íslendinga- liðið Kristianstad muni tilkynna um komu hennar á næstunni. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad og Sveindís Jane Jónsdóttir leikur með liðinu á láni frá Wolfsburg og hin þaul- reynda Sif Atladóttir er einnig á mála hjá liðinu. Eitt ogannað Víkingur úr Reykjavík tryggði sér í gærkvöldi sæti í átta liða úrslit- um Mjólkurbikars karla í fótbolta með sannfærandi 3:1-heimasigri á KR. Víkingar léku afar vel og áttu sigurinn skilið. Mörkin hefðu getað orðið fleiri því Helgi Guðjónsson fór illa með dauðafæri skömmu fyrir leikslok, ásamt því að fleiri færi heimamanna fóru forgörðum Viktor Örlygur Andrason og Nikolaj Hansen komu Víkingi í 2:0 í fyrri hálfleik og Erlingur Agn- arsson gulltryggði sigur Víkinga á 69. mínútu. Kristján Flóki Finn- bogason lagaði stöðuna fyrir KR á lokamínútunni en nær komust KR- ingar ekki. Víkingur er ríkjandi bikarmeist- ari eftir sigur í keppninni árið 2019, þar sem ekki voru krýndir bikarmeistarar á síðustu leiktíð vegna kórónuveirunnar. Dregið var í átta liða úrslitin eftir leik og eftirfarandi lið mæt- ast: ÍR - ÍA Fylkir - Víkingur Reykjavík Vestri - Valur HK - Keflavík Víkingar sann- færandi gegn KR - Skoruðu þrjú mörk á heimavelli Morgunblaðið/Unnur Karen Í Fossvogi Kristall Máni Ingason snýr Pálma Rafn Pálmason af sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.