Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Í gamalli síldarverksmiðju á Hjalt- eyri í Eyjafirði er að finna samsýn- ingu fimm myndlistarmanna sem ber heitið Endurómur. Í sýningar- rýminu birtist veröld, sem í senn er kunnugleg og framandi, abstrakt frásagnir í mynd- máli verka og náttúra jarðar í ýmsum búningi. „Gústav Geir Bollason sem er potturinn og pannan í Verk- smiðjunni bauð okkur Önnu Hall- in að sýna, bað okkur að hafa umsjón með sýningunni og finna með okkur sýnendur,“ segir Olga Bergmann, einn listamannanna sem standa að sýningunni. Hún var opn- uð í Verksmiðjunni 31. júlí síðastlið- inn og stendur yfir til 5. september. Ásamt Olgu og Önnu eiga hin banda- ríska Angela Dufresne, Finninn Vesa-Pekka Rannikko og Frakkinn Simon Rouby verk á sýningunni. „Þetta eru að mörgu leyti ólíkir listamenn en það myndast samt heild á sýningunni. Það fást allir við einhvers konar frásögn í verkunum og náttúran kemur fram í ýmsum myndum. Verkin snerta á vísinda- skáldskap, tímaflakki, hliðarveru- leika og tilfærslum í tíma og rými.“ Ljóðræn og symbólísk kveðja Í texta eftir Þórdísi Aðalsteins- dóttur um sýninguna tengir hún verkin við gullplötu Voyager sem var send út í geim árið 1977 til þess að upplýsa geimverur um mann- kynið og líf á Jörðu. „Listamennirnir á sýningunni Endurómur munu senda okkur tóninn af engu minni bjartsýni en starfsfólk NASA. Þau senda kveðju út í tómið, rómantíska, ljóðræna, symbólíska,“ segir í texta Þórdísar. Olga segir það áhugavert að velta því fyrir sér hvaða upplýs- ingar þótti vert að senda út í geim um líf á Jörðu og hvað þótti ekki í lagi. Angela Dufresne, ein af lista- mönnunum fimm, er bandarísk lista- kona, búsett í New York, sem er þekktust fyrir málverk en er líka vídeó- og gjörningalistamaður. Á Endurómi sýnir hún málverk auk myndbandsverks, sem er í raun hljóðgjörningur sem er tekinn upp á vídeó. Hann er framinn inni í tómu górðurhúsi þar sem mikill gróður fyrir utan. „Þar flytur hún frekar þekkt dægurlag. Hún birtist sjálf samtímis í þremur sönglandi út- gáfum í vídeóinu svo merking orð- anna leysist upp, og þetta verður hálf óskiljanlegur seiður.“ Olga segir við hugmyndina um manninn sem reynir að skapa eigin paradís. Í verki hans Fool’s Paradise er það hugmyndin um að eyja geti verið paradís út af fyrir sig.“ Verk hans Eden er innblásið af gróðurhúsum og tengist þannig verki Angelu Duf- resne. Hann teiknar eftir snjall- símamyndum ferðamanns af Eden verkefninu sem eru risastór gróður- hús í Cornwall í Bretlandi sem hann fann á netinu. Landslagið rís og hnígur Simon Rouby sýnir stórt verk, tveggja rása myndband, sem hann kallar Pangea. „Það er verk sem er unnið með þrívíddarskönnuðum módelum og myndum af náttúru sem hann raðar saman. Það er hröð- un á tíma, landslagið rís og hnígur og umbreytist og mannvistarleifar sem birtast og hverfa. Hann er að pæla í hugmyndinni um ofurheims- álfuna Pangeu sem brotnaði upp fyr- ir einhverjum milljónum ára og svo er spurning hvort hún sameinist aft- ur. Þetta er svona hringrás.“ Hinar íslensku listakonur Olga og Anna eiga eitt sameiginlegt verk á sýningunni auk þess sem þær sýna hvor sína skúlptúra. Verkið sem þær unnu saman nefn- ist Ný öræfi og er klippimynda- hreyfimynd. „Þar eru ljósmyndir af náttúrunni, úr gömlum tímaritum eins og National Geographic, sem við röðum saman í nýtt landslag sem er kunnuglegt en er samt einhver staðleysa eða hliðarveröld. Þar birt- ast fígúrur sem eru skúlptúrarnir á sýningunni.“ Hún segir það óljóst hvort þetta sé hér eða einhvers stað- ar annars staðar, í fortíðinni eða framtíðinni. Stærðir séu líka óljósar, þær stöll- urnar leiki sér með míkró- og makrókosmós. Til dæmis breytist stofnfruma úr tré í stjörnukerfi. „Við leikum okkur með að „zoom“-a inn og út úr náttúrunni.“ Svo koma þar fyrir kynsegin leirskúlptúrar Önnu Hallin sem Olga segir að líkist fornlíkneskjum, geimverum eða geimförum. Þrífarar Í myndbandsverki sínu klónar Angela Dufresne sjálfa sig og útgáf- urnar þrjár syngja þekkt dægurlag þannig að merking orðanna leysist upp. Klippimyndahreyfimynd Stilla úr verki Olgu Bergmann og Önnu Hallin, Ný öræfi. „Þar eru ljósmyndir af nátt- úrunni, úr gömlum tímaritum eins og National Geographic, sem við röðum saman í nýtt landslag,“ segir Olga. Ómstríða en þó vissir snertifletir - Endurómur í Verksmiðjunni á Hjalteyri - Fjölbreytt verk fimm listamanna - Verkin snerta á vísindaskáldskap, tímaflakki, hliðarveruleika og tilfærslum í tíma og rými, segir einn sýningarstjóra Olga Bergmann að þetta tengist fleiri verkum. „Það eru hljóð í mörgun verkanna sem blandast saman í verksmiðj- unni. Þetta verður hljóðniður. Við erum ánægð með hvernig þetta gengur vel saman. Það er ákveðin ómstríða en líka fullt af snertiflötum milli verkanna. Það myndast teng- ingar og hugrenningatengsl,“ segir Olga. „Við vinnum eiginlega öll með ein- hvers konar „animation“ eða kvikun í vídeóverkunum. Angela Dufresne klippir saman útgáfur af sér, klónar sig.“ Verk Vesa-Pekka Rannikko segir Olga að séu hálfgerðar teiknimyndir og að teikningin verði til fyrir aug- unum á manni. „Þar birtast líka orð sem hverfa jafnharðan aftur. Það er svolítið svipað og hjá Angelu, merk- ingin leysist upp.“ Það sé eitt þema á sýningunni. „Þegar eitthvað kemur fyrir sem tengist tungumálinu í verkunum þá leysist það upp. Að sama skapi er samt heilmikil frásögn í verkunum, í myndmálinu.“ Rannikko fæst við hugmyndina um paradís á jörð. „Hann er að fást

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.