Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Kosningar til Alþingis
Kosningar til Alþings fara fram 25. september
2021 og getur kosning utan kjörfundar hafist
föstudaginn 13. ágúst 2021.
Innanlands fer kosning utan kjörfundar
fram hjá sýslumönnum um allt land, á
aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Þá getur
sýslumaður einnig ákveðið að atkvæðagreiðsla
fari fram á sérstökum kjörstað í umdæminu.
Nánari upplýsingar verður að finna á vefsvæði
sýslumanna syslumenn.is.
Erlendis fer kosning utan kjörfundar fram á
skrifstofu sendiráðs, í sendiræðisskrifstofu eða
hjá kjörræðismanni samkvæmt nánari ákvörðun
utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið
getur þó ákveðið að atkvæðagreiðsla utan
kjörfundar fari fram á öðrum stöðum erlendis.
Kjósendum er bent á að hafa samband við
sendiskrifstofur og/eða sendiherra sem hafa
yfirlit yfir hvar unnt er að kjósa. Vegna þess
ástands sem ríkir í heiminum vegna COVID-19
farsóttarinnar geta þau tilvik komið upp, vegna
sóttvarnaráðstafana stjórnvalda á hverjum
stað, að aðgengi kjósenda að kjörstöðum
erlendis verði takmarkað.
Dómsmálaráðuneytinu,
13. ágúst 2021
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Í gær var undirritaður samningur á
milli Borgarbyggðar, Sæmundar
Ásgeirssonar, eiganda Gamla bæjar,
og Páls Guðmundssonar, eiganda
Bæjargils. Í samningnum eru drög
að breyttu aðalskipulagi og deili-
skipulagi. Hvor um sig fær að auki
fimm milljónir króna frá Borgar-
byggð upp í þann kostnað sem
hlaust af málinu.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Vestur-
lands hafði Páli verið gert að fjar-
lægja húsið á eigin kostnað en vonir
voru bundnar við að samkomulag
næðist. Sæmundur lagði fram samn-
ingsdrög sem Páll taldi sig ekki geta
samþykkt. Því átti að rífa húsið,
enda dagsektir farnar að hlaupa á
milljónum króna. Var þakið rifið af
forrými hússins og undirbúningur
hafinn að því að taka þakið af aðal-
rýminu þegar Borgarbyggð setti sig
í samband við báða aðila og boðaði til
sáttafundar. Sá hófst snemma að
morgni gærdagsins.
Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar, segir samn-
ingaviðræður reynst erfiðar, enda
tilfinningalegt mál. Niðurstaðan hafi
þó verið ánægjuleg.
Páll sagði að sér liði vel að loks
væri kominn samningur um málið.
„Við getum núna haldið áfram að
varðveita sögu legsteinanna og for-
feðra minna.“ Páll er listamaður og
vinnur aðallega með grjót úr Bæjar-
gili, líkt og forfeður hans notuðu við
smíð legsteinanna. „Ég vildi sýna að
þarna byrjaði listin.“
Páll varð meyr þegar hann þakk-
aði fólki fyrir stuðninginn sem hon-
um var sýndur í gegnum ferlið.
Hann var ekki sá eini sem klökknaði
en stór hópur kom saman við Húsa-
fell í gær og beið í örvæntingu eftir
því hvort húsið yrði rifið eða því
bjargað. Samningurinn var loks
undirritaður í kirkjunni á Húsafelli
um klukkan fjögur.
Stefnt var að því að samningsgerð
yrði lokið klukkan tólf en það tafðist.
Klukkan tvö, þegar undirritun, eða
niðurrif, átti að eiga sér stað var
hópur manna enn að funda, stál í
stál, í Borgarnesi. Var fresturinn þá
framlengdur til klukkan þrjú. Um
það leyti kom upp nokkur órói í veð-
urblíðunni við Húsafell þegar frétt-
ist að Sæmundur væri farinn til
Reykjavíkur og myndi því ekki und-
irrita samninginn.
Þórdís segir að lagt hafi verið upp
úr því að ná undirskriftum allra aðila
á frumrit samningsins. Sæmundur
hafi snúið við og bíll sendur til móts
við hann með samninginn sem var
svo færður upp í Húsafell. Þar beið
Páll sem undirritaði samninginn og
uppskar mikið lófatak viðstaddra.
Fáni var dreginn að húni og þakið
híft á húsið á ný. thorab@mbl.is
Legsteinahús Páls
á Húsafelli stendur
- Erfitt að ná saman - Samkomulag um skipulag og bætur
Morgunblaðið/Eggert
Samstaða Páll er vel liðinn og margir mættu til að veita honum stuðning.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Rúmlega 100 manns voru bólusettir
við kórónuveirunni á höfuðborgar-
svæðinu á hverjum degi í júlí eftir að
fjöldabólusetningum í Laugardals-
höll lauk 1. júlí samkvæmt upplýs-
ingum frá Ragnheiði Ósk Erlends-
dóttur, framkvæmdastjóra hjúkrun-
ar hjá Heilsugæslunni á höfuðborg-
arsvæðinu.
„Það voru mest
ungir íslenskir
nemar sem voru
að koma að utan.
Svo var einn og
einn bólusettur
sem hafði gleymt
sér. Þannig að
þetta var alveg
svona opin lína,“
segir Ragnheiður
í samtali við
Morgunblaðið.
Aðspurð segir Ragnheiður allan
gang á því hvaða bóluefni þessir ein-
staklingar fengu.
„Flestir þeirra sem voru alveg
óbólusettir fengu annaðhvort Pfizer
eða Janssen en svo voru einhverjir
sem áttu eftir að fá seinni skammt-
inn af AstraZeneca og fengu hann
þá.“
Bólusetningar barnshafandi
kvenna hófust 29. júlí og hafa um 500
konur þegið boð um bólusetningu
fram að þessu, að sögn Ragnheiðar.
„Ég held að það sé nokkuð gott hlut-
fall miðað við að það eru um 2.500 til
3.000 fæðingar á höfuðborgarsvæð-
inu á hverju ári. Svo spilar alveg inn í
að við vildum ekki bólusetja konur
sem eru á fyrsta þriðjungi meðgöng-
unnar. Þá voru einhverjar sem voru
búnar að láta bólusetja sig og aðrar
sem eiga enn þá eftir að koma. Þær
koma bara til okkar þegar þær eru
búnar að eiga eða þegar hentar
þeim. Það er alltaf opið hús fyrir
þær.“
Hafist var handa við endurbólu-
setningar skólastarfsfólks strax eftir
verslunarmannahelgi og standa þær
bólusetningar enn yfir.
„Það hafa verið um 1.000 skóla-
starfsmenn að koma í örvunar-
skammt á degi hverjum í ágúst. Við
viljum reyna að klára það sem allra
fyrst þar sem skólastarf er að hefjast
að nýju þessa dagana,“ segir Ragn-
heiður.
Á mánudaginn eftir helgi munu
endurbólusetningar Janssen-þega
hefjast. Þeir 53.290 einstaklingar
sem bólusettir voru með bóluefni
Janssen og hafa ekki sögu um fyrri
Covid-sýkingu mega því eiga von á
því að fá boð í endurbólusetningu í
dag. Þeim hópi mun þá standa til
boða að fá örvunarskammt með bólu-
efni Moderna eða Pfizer.
Þá munu bólusetningar barna á
aldrinum 12-15 ára fara fram í Laug-
ardalshöll dagana 24. og 25. ágúst.
Foreldrar sem þiggja bólusetningar
fyrir börn sín verða beðnir að fylgja
börnum sínum í bólusetningu og
veita þar með upplýst samþykki fyr-
ir bólusetningunni ásamt því að vera
börnunum til halds og trausts. Ef all-
ir þiggja boð um bólusetningu þarf
um 35.000 bóluefnaskammta til að
fullbólusetja allan aldurshópinn.
Miðað við birgðir af bóluefni Pfizer
og afhendingaráætlanir bóluefnisins
á næstu vikum ætti að vera unnt að
ljúka bólusetningum hópsins með
síðari bólusetningu í september, að
því er greint frá í tilkynningu heil-
brigðisráðuneytisins 10. ágúst.
Hér á landi hafa 86,3% einstak-
linga 16 ára og eldri verið fullbólu-
settir en 6,6 hálfbólusettir. Rúmlega
7% einstaklinga í þessum aldurshópi
eru því enn óbólusett, samkvæmt
nýjustu upplýsingum af covid.is.
Ragnheiður hvetur alla þá sem
ekki hafa verið bólusettir fram að
þessu til að mæta í bólusetningu á
Suðurlandsbraut á milli kl. 10 og 15.
Sjö prósent enn þá óbólusett
- Um 100 manns bólusettir á dag í júlí - 500 barnshafandi konur þáðu boð í bólusetningu 29. júlí
- Endurbólusetningar skólastarfsfólks ganga vel - Janssen-þegar fá örvunarskammt eftir helgi
9.147
8.110
3.364
1.207
Fjöldi óbólusettra
Óbólusettir eftir aldurshópum
Hlutfall óbólusettra eftir kyni
16-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60+ ára
Konur, 16 ára og eldri Karlar, 16 ára og eldri
Heimild: covid.is
Austurland 2.138
Höfuðborgarsvæði 62.156
Suðurnes 9.568
Norðurland 8.530
Suðurland 7.198
Vestfirðir 1.660
Vesturland 4.781
Fjöldi óbólu-
settra eftir
landshlutum
Allir aldurshópar
871
4% 10%
93% allra 16 ára
og eldri hafa
fengið í það minnsta einn
skammt af bóluefni
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Bólusetning Fjöldabólusetningar hefjast að nýju í Laugardalshöll síðar í
mánuðinum, þegar 12-15 ára ungmenni eiga að mæta með foreldrum.
Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir