Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.08.2021, Blaðsíða 25
og vinahópa og beri tvo vinahópa þar hæst. Annars vegar Hjálparsveit- arhópurinn og hins vegar hópurinn ABBA, sem var tíu manna hópur frá SKÝRR árunum sem sameinast um bæði golf og getraunir. „Nafnið er til- komið út frá lögunum Winner takes it all og Money, money money, þetta er kjörorð ABBA-hópins og lögin eru spiluð þegar tilefni er til, sem mætti vera oftar.“ Fjölskylda Eiginkona Garðars er Sigríður G. Benediktsdóttir, f. 23.2. 1952. For- eldrar hennar eru Benedikt Gíslason, f. 15.4. 1922, d. 23.9. 1974, og Helga Jónsdóttir, f. 28.3. 1927. Börn Garð- ars og Sigríðar eru 1) Helga Björg, f. 28.6. 1976. Maki hennar er Brynjólfur Rúnar Gunnarsson, f. 14.8. 1975, og þau eiga börnin Kristófer Hilmar, f. 16.5. 2007; Garðar Smára, f. 14.8. 2009, og Sigríði Margréti, f. 12.1. 2011. 2) Linda, f. 29.4. 1982. Hennar maki er Hreggviður Ingason, f. 29.5. 1978, og þau eiga börnin Inga, f. 18.6. 2009; Hildi Sigríði, f. 11.8. 2013, og Benedikt, f. 14.3. 2016. 3) Benedikta Morin, f. 24.5. 1988. Maki hennar er Markus Eric Jörgen Morin, f. 12.3. 1986 og börn þeirra eru Olivia Bryn- dís, f. 11.7. 2014, og Elísa Sigríður, f. 27.1. 2020. Systkini Garðars samfeðra eru Ragnar Geir, f. 26.6. 1955; Sig- urlaug, f. 4.2. 1958; Freyja, f. 6.4. 1959, og Ólafur, f. 12.5. 1964. Systkini Garðars sammæðra eru Ólöf Kristín Ólafsdóttir, f. 28.10. 1956, og Ása Ólafsdóttir, f. 6.1. 1959. Foreldrar Garðars eru Jón Hilmar Ólafsson, prentari, skrifstofumaður og handboltamaður, f. 2.11. 1927, d. 18.10. 2004, og Þorbjörg Valgeirs- dóttir, vann í bókbandi, f. 14.6. 1927, d. 20.3. 2021. Fósturfaðir hans var Ólafur H. Hannesson, f. 7.11. 1926, d. 6.8. 2015. Garðar Hilmarsson Þorbjörg Jóhannesdóttir húsfreyja á Sauðhúsum í Laxárdal, Dal. Benedikt Benediktsson bóndi á Sauðhúsum í Laxárdal, Dal., drukknaði í Laxá Kristín Benediktsdóttir húsfreyja í Reykjavík Valgeir Þorbjörn Kristjánsson klæðskeri í Reykjavík Þorbjörg Valgeirsdóttir starfaði lengst við bókband í Reykjavík Guðný Guðnadóttir húsfreyja í Dalsmynni, Miklaholtssókn, Hnapp., síðar í Reykjavík Kristján Eggertsson bóndi í Dalsmynni, Miklaholtssókn, Hnapp., síðar afgreiðslumaður í Rvk. Sigurlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Sauðárkróki Rósant Andrésson verkamaður, verslunarmaður og sjómaður á Sauðárkróki Freyja Kristín Rósantsdóttir húsfreyja á Ísafirði Ólafur Ingvar Þorsteinn Ásgeirsson toll- og lögregluþjónn á Ísafirði Guðmundína Matthíasdóttir húsfreyja á Svarthamri, í Álftafirði Ásgeir Ásgeirsson bóndi og hreppstjóri á Svarthamri í Álftafirði, Súðavík, síðast á Ísafirði Úr frændgarði Garðars Hilmarssonar Jón Hilmar Ólafsson prentari og skrifstofumaður í Reykjavík. Spilaði í 18 ár með meistaraflokki karla í handbolta DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Mikið úrval lita bæði á áklæði og grind. Sérsmíðum allt eftir pöntunum. Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960E60 Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Stóll E-60 orginal kr. 38.600 Retro borð 90 cm kr. 142.000 (eins og á mynd) MAÐURINN UPPGÖTVAR „AÐ VINNA FRAM Á KVÖLD“ TIL AÐ FORÐAST SAMTAL UM STÖÐU ÁSTARSAMBANDSINS. „ÉG SÉ AÐ ÞÚ ERT LOKSINS BÚINN AÐ LAGA SPRUNGUNA Í VEGGNUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja ekki fara í burtu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann BORÐAÐIR ÞÚ SÍÐASTA KLEINUHRINGINN MINN? NEIBB! ÚÚÚÚ, HÚN ER KLÁR NEI, HUNANG! EKKI ÞURRKA AF ÞESSUM! TÖFRA- SPEGILLINN MINN VIRKAR BEST ÞEGAR HANN ER RYKUGUR! TÆKNILEGA SÉÐ VAR ÞETTA FYRSTI KLEINUHRINGURINN MINN Hér hefur verið einmuna tíð síð- ustu daga. Karlinn á Lauga- veginum snaraðist inn til mín og sagði umbúðalaust. Það er sumar og sunnanátt hér. Í sólinni orna ég mér og hugsa eins og fleiri að hitinn sé meiri. Já, heimurinn versnandi fer. Þennan sama dag sagði Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson á Boðn- armiði: „Besta veður sumarsins var í dag, 32 gr. á pallinum hjá okkur“: Blessuð sólin sterk nú stingur, stympast við að grilla mig. Af mér dottnir allir fingur, eg vil bara vara þig. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson segir svo frá á Boðnarmiði: „Um daginn hlust- aði ég á símatíma Útvarps Sögu og heyrði þá ýmislegt undarlegt. Og vera má að ég hafi heyrt þetta í öllu sullumbullinu“: Í Fagradal ferðaðist Bína og fór þar í gosið að rýna og greyinu brá er í gígnum hún sá gám einn með veirum frá Kína. Ingólfur Ómar Ármannsson birtir „brot úr rímu“ sem hann gerði, – og væri gaman að fá meira að heyra: Firrtur sóma fáa gleður full af grómi sálin er. Slegggjudóma sláni kveður slef úr gómi leka fer. Knútur H. Ólafsson segist hafa ort fyrir mörgum árum á siglingu um sundin blá: Dag einn í dáindis veðri dró ég mín segl að hún, og sigldi í sumarblænum suður að hafsins brún. Þar sá ég í svölu djúpi sjón er mér hryllti við, ég sá mitt eigið andlit og ekkert neðan við. Hér er limram „MANÍAN“ eftir Helga Ingólfsson: Ég breytist í „man“ eða „menni“ og „manískur“ bogann ég spenni. Ég skrifa í trans um tvö hundruð „mans“ og „mentun“ með einföldu n-i. Broddi B. Bjarnsson segir: „Heimsendaspámenn hafa verið uppi á öllum tímum. Ekkert breyt- ist“: Nú er það bál og bruni, bráðnandi jökla stag. Heimsenda spár og spuni, spretta hjá RUV hvern dag. Káinn orti: Man ég tvennt sem mér var kennt á Fróni, og minnkun ekki þótti þá, það var að drekka og fljúgast á. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Heimur versnandi fer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.