Morgunblaðið - 13.08.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.08.2021, Qupperneq 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Höfum opnað á Selfossi komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ www.tengi.is Kópavogur – Smiðjuvegur 76 Akureyri – Baldursnes 6a Selfoss – Austurvegur 69 414 1000 414 1050 414 1040 Alls eru 1.328 með virkt kórónu- veirusmit og fækkar þeim því um 55 á milli daga. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýs- ingafundi í gær að faraldurinn hér á landi sé ekki lengur í veldisvexti, nú sé hann kominn í línulegan vöxt. Þó er ekki útlit fyrir að hann sé á niðurleið. Sjúklingum á Land- spítala sem eru í öndunarvél á gjörgæslu fjölgaði um tvo í gær en alls eru fimm á gjörgæslu og fjórir þeirra eru í öndunarvél. „Samhliða þessum línulega vexti hefur inn- lögnum á Landspítala fjölgað hratt,“ sagði Þórólfur en alls liggja nú 30 á spítala. Koma ógreindir inn á spítala Frá því að fjórða bylgja farald- ursins hófst hafa 68 sjúklingar lagst inn á Landspítala en um 60% eru fullbólusett. Níu hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu og sex þeirra eru fullbólusettir. Í máli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítala, á upplýsingafundinum kom fram að þrír af þeim níu sem þarfnast hafa meðferðar á gjör- gæslu vegna Covid-19 komu beint inn á spítalann veikir af veirunni og höfðu því ekki verið greindir með kórónuveirusmit fyrir komu. „Það er, það hefur verið úti í sam- félaginu án þess að vera greint og kemur ekki fyrr en veikindin eru orðin mjög alvarleg,“ sagði Páll. Hann sagði stöðuna nú heilmikla áskorun en fyrirhuguð er opnun þriðju bráðalegudeildarinnar fyrir þá sem veikir eru af veirunni og hefur starfsfólk verið kallað inn úr sumarleyfum til að manna stöð- urnar. „Ef spítalinn metur sem svo að neyð sé yfirvofandi sé ég ekki ann- að í stöðunni en að leggja til hertar aðgerðir. Hvenær að því kemur er ekki ljóst á þessari stundu en það gæti hugsanlega gerst fyrr en síð- ar og þess vegna erum við í nánu samtali við Landspítala,“ sagði Þórólfur. Óbólusettir líklegri á spítala Þórólfur sagði eðlilegt að spyrja hvort útbreidd bólusetning hér á landi hafi ekki skilað meiru eða hvort yfirvöld séu að gera nóg til að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar. „Vissulega hafa bólu- setningar komið í veg fyrir smit og sérstaklega komið í veg fyrir alvar- leg veikindi. Þetta sést glöggt þeg- ar hlutfall veikinda hjá bólusettum er borið saman við hlutfall veikinda hjá óbólusettum. Þá kemur í ljós að greining smita er um þrisvar sinnum líklegri hjá óbólusettum en bólusettum einstaklingum. Líkur á innlögnum á sjúkrahús eru um fjórum sinnum meiri hjá óbólusett- um en bólusettum, líkur á gjör- gæsluinnlögnum eru um fimm sinnum algengari hjá óbólusettum en bólusettum,“ sagði Þórólfur. Framtíðarráðstafanir Hann gerir ráð fyrir því að kór- ónuveiran verði til staðar í sam- félaginu næstu mánuði, ef ekki næstu ár. Því er hann farinn að huga að framtíðarráðstöfunum og hefur skilað hugmyndum um þær til heilbrigðisráðherra. „Staðan í dag er þannig ekkert sérstaklega skemmtileg og mér er þannig ljóst að allir eru búnir að fá meira en nóg af aðgerðum gegn Covid-19. Það verður hins vegar ekki umflúið að grípa til aðgerða ef þess gerist þörf, til að vernda heilbrigðiskerfið og aðra nauðsynlega innviði.“ Ekki útlit fyrir niðurleið á faraldrinum - Faraldurinn í línulegum vexti - Fjórir í öndunarvél á gjörgæslu - Opna þriðju bráðalegudeildina 2 2 5 3 0 0 4 2 6 6 2 5 72 5 93 7 9 92 1. 0 87 1. 2 0 5 1. 2 16 1. 2 3 2 1. 2 93 1. 3 5 1 1. 4 13 1. 4 34 1. 4 47 1. 3 8 5 1. 3 8 6 1. 4 3 5 1. 3 8 3 1. 3 2 8 2 5 10 7 13 10 11 38 56 78 82 95 88 71 123 123 129 124 154 86 68 109 116 151 107 119 57 105 141 84 119 Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær Heimild: LSH 119 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 894 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 1.731 einstaklingar eru í sóttkví 2020 2021 Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 15.00 í gær Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 150 125 100 75 50 25 0 9.246 staðfest smit alls Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020 106 100 21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. Fjöldi einstaklinga undir eftirliti LSH frá 21. júlí* *Engar tölur fyrir 24.-25. júlí Væg eða engin einkenni Aukin einkenni Alvarlegri einkenni 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí eftir stöðu bólusetningar 1.328 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 48 af þeim sem eru undir eftir- liti flokkast sem gulir 30 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 68 hafa alls lagst inn á LSHmeð Covid-19 í fjórðu bylgju faraldursins Um 40% þeirra eru óbólusettir Um 60% bólusettir 5 einstaklingar eru á gjörgæslu og fjórir í öndunarvél 3 sem rauðir Alls hafa 9 sjúklingar lagst á gjörgæslu með Covid-19 og þar af 6 fullbólusettir 30. júlí 2021 154 smit Þórólfur Guðnason Páll Matthíasson Landspítalinn hefur ákveðið að umbuna starfsmönnum vegna mik- ils álags á spítalanum, en sjúkra- húsið er nú á hættustigi vegna Covid-19. Þetta kemur fram í minn- isblaði sem kjaradeild spítalans sendi frá sér í gær. Umbunin er í formi aukatímagreiðslna í yfir- vinnu. Um er að ræða heimild til stjórnenda til að umbuna starfs- fólki sem tekur aukavaktir tímabil- ið 6. ágúst til 1. september 2021. „Þetta var hálfgert klúður seinast en vonandi gera þau þetta öðruvísi núna. Ég held að þau hafi ábyggi- lega lært af reynslunni,“ segir Theódór Skúli Sigurðsson, formað- ur Félags sjúkrahúslækna. „Þannig að það eru kannski þeir sem eru í framlínunni sem raunverulega njóta ávaxta.“ Kristín Á. Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélags Íslands, segir nauðsynlegt að takast á við mönnunarvanda spítalans og að umbun af þessu tagi geti verið liður í því. Hins vegar séu sjúkraliðar óhressir með að Páll Matthíasson hafi ekki minnst sérstaklega á stéttina í umfjöllun um mönnunar- vandann á gjörgæslunni. rebekka@mbl.is Umbuna starfs- fólki vegna álags Morgunblaðið/Eggert Hættustig Mikið álag er á spítalanum vegna þessarar bylgju Covid-19. - Vonar að framlínufólk fái að njóta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.