Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 12

Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is FC 7 Premium 13. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.17 Sterlingspund 174.71 Kanadadalur 100.8 Dönsk króna 19.9 Norsk króna 14.155 Sænsk króna 14.459 Svissn. franki 136.82 Japanskt jen 1.1414 SDR 179.15 Evra 148.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.4385 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fyrirtæki sem vinnur að þróun lausnar til að flytja vetni í stórum stíl á milli landa og félag sem auðveldar ferðaþjónustufyrir- tækjum að bóka hótelherbergi eru á meðal þeirra aðila sem kynna verkefni sín á fjárfestadegi Icelandic Startups í hugmynda- húsinu Grósku í Vatnsmýri í Reykjavík í dag. Verkefnin eru hluti af viðskiptahraðlinum Star- tup SuperNova. Viðburðurinn markar formleg endalok hraðals- ins á þessu ári, en þetta er annað árið í röð sem Icelandic Startups keyrir viðskiptahraðalinn í sam- starfi við Grósku og símafyrir- tækið Nova. Stærðarhagkvæmni í vetni Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri vetnisfyrir- tækisins Iðunnar H2, segir að fé- lagið stefni að framleiðslu vetnis í miklu magni með útflutning í huga. Útflutningur er að sögn Auðar nauðsynlegur til að ná verði vörunnar niður. „Það er mikil stærðarhagkvæmni í vetn- isvinnslu. Við teljum að forsenda fyrir vetnisvæðingu á Íslandi sé að ná verðinu niður og því þurfum við að fá a.m.k. einn stóran við- skiptavin og hann er ekki að finna á Íslandi. Hér á Íslandi erum við á besta stað í heimi til að vinna grænt vetni til að berjast gegn loftslagsbreytingum í heiminum,“ segir Auður. Framleiðsla vetnis krefst að- gengis að rafmagni og vatni. Vatnið er rafgreint sem skilur að vetni og súrefni úr vatnssameind- unum. „Rafgreining er ekki nýjung en það er ný tækni að vökvagera vetnið, setja það á skip og flytja svo á milli landa. Í dag er það stundað í einhverjum mæli víða í heiminum en ekki í því magni sem við erum að stefna að.“ Sverrir Steinn Sverrisson, for- stöðumaður sölu- og markaðssviðs Godo, hugbúnaðarhússins sem þróar bókunarkerfið Travia, segir að lausnin sem fyrirtækið kynnir í dag færi bókanir ferðaskrifstofa á hótelum inn í 21. öldina. „Þetta er nútímamarkaðstorg fyrir ferða- skrifstofur og gististaði. Ferða- skrifstofur geta bókað beint inn á gististaði í rauntíma, á raunfram- boði og á bestu mögulegu verð- unum. Í þessu felst mikið hag- ræði. Áður fóru samskipti oftast í gegnum tölvupóst og fólk þurfti að bíða í einn til tvo daga eftir svari,“ segir Sverrir og bætir við að áhætta hafi falist í því fyrir ferðaskrifstofur að vita ekki hvort herbergi sé laust áður en það er bókað. Nú sé sú áhætta úr sög- unni. Travia er nú þegar orðið fimmta mest notaða bókunarsíða á Íslandi að sögn Sverris, en margir þekkja til dæmis Booking.com sem er einn af samkeppnisaðilum Travia. Smíði kerfisins hófst árið 2019 en skömmu síðar skall veirufar- aldurinn á og tafði verkið. „Það komst ekki mikil reynsla á kerfið í fyrstu, en í ár hefur notkunin auk- ist gríðarlega hratt. 95% af ferða- skrifstofum á Íslandi nota kerfið og um 12% allra bókana sem gerð- ar hafa verið á Íslandi í ár eru gerðar í gegnum Travia.“ Markmiðið með kynningunni í dag er að sögn Sverris að kynna fyrirtækið fyrir fjárfestum, en stefnan hefur verið sett á útrás. Hingað til hefur starfsemin verið fjármögnuð með tekjum. Útlit er fyrir 500 milljóna króna tekjur á þessu ári en fyrirtækið stefnir á að tekjur vaxi upp í 800 milljónir króna á næsta ári og 1,5 milljarð árið 2023. Vilja flytja mikið magn af vetni Nýsköpun Hópurinn sem tekur þátt í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova. Þátttakendur » FOMO er stafrænt kredit- kort. » Travia er bókunarlausn. » Procura færir fasteigna- viðskipti í símann. » Wildness er umhverfisvænt fatamerki. » Saunabus er rúta með inn- byggðri sánu. » Swapp Agency er mann- auðslausn. » vVenue er miðasala. » Iðunn H2 þróar sjálfbær vetnisvistkerfi. » PLAIO skipuleggur lyfja- framleiðslu. » PetFitHealth er gælu- dýraapp. - Tíu frumkvöðlar kynna verkefni sín á fjárfestadegi í Grósku í dag - Lokin á viðskiptahraðlinum Startup SuperNova - 12% allra hótelbókana á Íslandi fóru í gegnum bókunarlausnina Travia Auður Nanna Baldvinsdóttir Sverrir Steinn Sverrisson Carbfix og Orka náttúrunnar, dótt- urfélög Orkuveitu Reykjavíkur, hafa hlotið styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins í verkefnið Silf- urberg. Styrkurinn er einn sá hæsti sem veittur hefur verið til loftslags- verkefnis hér á landi og nemur um 3,9 milljónum evra, sem svara til tæplega 600 milljóna króna. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni er styrkt af sjóðnum að því er segir í fréttatilkynningu frá Orku- veitunni. Byggja nýja hreinsistöð Þar segir einnig að markmið Silf- urbergs-verkefnisins sé að byggja nýja hreinsistöð við Hellisheiðar- virkjun sem fanga muni nær allt kol- díoxíð og brennisteinsvetni úr út- blæstri virkjunarinnar sem síðan verður dælt niður í nálæg basalt- berglög til varanlegrar steinrenning- ar með Carbfix-tækninni. Þar með muni Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta flokk grænnar jarðvarma- nýtingar með sporlausri framleiðslu rafmagns og varma. Mikil viðurkenning Edda Sif Pind Aradóttir, fram- kvæmdastýra Carbfix, segir í tilkynn- ingunni að það sé mikil viðurkenning fyrir ungt þekkingarfyrirtæki eins og Carbfix að fá svo veglegan styrk úr nýsköpunarsjóðnum. Hún sé til merkis um að kolefnisförgun með Carbfix-tækninni sé í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem geti haft áhrif langt út fyrir landstein- anna. Umhverfi Tæknin bindur koldíox- íðið í steindum í berggrunninum. ON og Carbfix fá 600 m. kr. styrk - Einn hæsti styrkur til lofts- lagsverkefnis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.