Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021
VINNINGASKRÁ
238 8001 18763 26150 37826 46607 58018 67810
395 8063 18770 27367 38324 46609 58161 68474
603 8252 18893 27626 38920 47179 58199 68535
1207 8515 18907 27760 39177 47607 58382 68572
1268 8704 19149 28442 39271 47980 58550 69964
1427 9306 19535 28622 39385 48136 59825 70400
1463 10155 19546 28659 40804 48413 59963 70992
1519 10450 19587 28739 40896 48443 60576 71038
1626 10688 19608 29722 41129 48532 61328 71579
1650 11049 19638 30099 41418 48906 61368 71791
2013 11053 19843 30151 41924 49004 61407 72140
2214 11308 20095 30213 42267 49125 61597 72159
2236 11476 20125 30311 42390 49138 61917 72193
2635 11612 20706 30429 42424 49341 61942 72246
2679 12014 21128 30760 42433 49610 62026 72680
2777 12254 21239 30789 42499 51064 62054 73139
3126 12283 21270 30820 42904 51388 63096 73359
3173 12465 21656 31192 43210 51634 63198 73608
3374 12854 21665 31571 43283 52048 63444 74164
3669 13057 21963 31572 43608 52070 63504 74932
3837 13479 22495 31840 43755 52236 63879 75537
4115 14042 22566 32023 43902 52356 64001 75547
4431 14071 22658 32125 43972 52800 64145 75715
4434 14467 22683 32327 43997 53333 64656 75827
4538 15152 22692 32486 44024 53499 64724 76144
4673 15168 22846 32728 44271 53565 64769 76157
4749 15175 23380 33072 44370 54087 65054 78020
4811 16873 23416 33183 44826 54161 65397 78383
5254 16971 24161 33657 44884 54444 65635 79591
5300 17144 24211 33748 45435 54702 66108 79593
5634 17363 24972 34839 45524 55097 66410 79834
5811 17726 24993 35079 45628 55847 67081
6699 18052 25230 35706 45801 55956 67412
6923 18222 25248 36999 46042 56278 67460
6940 18295 25342 37141 46119 56519 67599
7262 18340 25960 37486 46358 57288 67690
7270 18569 26011 37775 46565 57435 67770
299 13438 29455 40823 50897 57384 65743 75710
996 14925 30775 40854 50942 57694 68370 76151
1075 16271 30829 41491 50990 58080 68779 76287
1177 16918 31318 41713 51336 58319 70816 76508
2618 16977 32334 42557 53239 60398 71211 77046
3098 18335 32588 42639 54005 60432 72914 77898
4441 18857 32769 43910 55554 60790 73725 77933
6691 19348 33427 44644 55579 60871 73888 78778
6977 21659 35936 44923 55931 61979 74365 78983
7879 21842 36225 46341 56509 62244 75022
10113 24399 37714 47819 56539 63080 75598
12627 26580 38891 47950 56852 63536 75646
13105 27984 40281 50091 57236 65089 75685
Næstu útdrættir fara fram 19., 26. ágúst & 2. sept 2021
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
2090 12181 26691 60483 65723
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1517 10817 33005 46443 51735 63026
4344 17762 39425 48306 52209 65386
4788 21941 41366 48751 54820 69280
6948 28034 42787 49091 55479 76427
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 1 5 8 6
15. útdráttur 12. ágúst 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnarher Afganistan ákvað í gær
að flýja frá borginni Herat, þriðju
stærstu borg landsins, eftir að talib-
anar hertu enn á leiftursókn sinni
gegn stjórnvöldum. Náðu þeir einnig
héraðshöfuðborginni Ghazni á sitt
vald, en hún er um 150 kílómetrum
frá höfuðborginni Kabúl. Seint í gær-
kvöld að íslenskum tíma lýstu talib-
anar því svo yfir að þeir hefðu náð yf-
irráðum í Kandahar, annarri stærstu
borg landsins.
Talibanar ráða nú yfir næstum
því öllum héruðum Afganistan í
norðri, suðri og vestri á meðan
ríkjandi stjórnvöld halda enn í Kabúl
og nokkrar aðrar borgir á víð og dreif
um landið, sem flestar búa nú við um-
sátur talibana.
Buðust til að deila völdum
Stjórnvöld í Kabúl buðu í gær
talibönum samkomulag, þar sem
völdum í landinu yrði skipt á milli
þeirra gegn því að bardögum yrði
hætt þegar í stað.
Óvíst er hvort að talibönum hug-
nist það boð, en þeir hafa nú á ein-
ungis sex dögum náð að leggja undir
sig ellefu héraðshöfuðborgir og hafa
umkringt Mazar-i-Sharif, stærstu
borgina í norðurhluta landsins. Nem-
ur landsvæðið sem þeir hafa tekið á
þessum sex dögum meira en helmingi
alls lands í Afganistan.
Talibanar hafa einnig tekið her-
fangi fjöldann allan af fallbyssum,
skriðdrekum og öðrum vopnum, sem
stjórnarherinn hefur skilið eftir sig.
Þá hafa þeir gert harða hríð að fang-
elsum landsins, en talibanar hafa boð-
ið föngunum frelsi í skiptum fyrir að
taka upp vopn í baráttunni með sér.
Þannig féll fangelsið í Kandahar í
gær, áður en borgin féll einnig, en hún
er í suðurhluta Afganistan.
Kabúl full af flóttamönnum
Hundruð þúsunda hafa lagt á
flótta undan leiftursókn talibana, og
leita flestir þeirra til höfuðborgarinn-
ar Kabúl. Þar eru aðstæður til að taka
við flóttafólki lakar og stefnir í óefni.
Frakkar tilkynntu í gær að þeir
hygðust hætta að vísa Afgönum, sem
ekki fengu landvistarheimild í Frakk-
landi, aftur til Afganistan. Þjóðverjar
og Hollendingar ákváðu fyrr í vikunni
að gera slíkt hið sama, og mun Evr-
ópusambandið vera að íhuga hvort
það eigi að beina tilmælum um slíkt til
annarra aðildarríkja sinna.
AFP
Á verði Pakistanskur skriðdreki
við landamærin að Afganistan.
Talibanar færast
nær höfuðborginni
- Kandahar og Herat, önnur og þriðja stærsta borg Afgan-
istan, fallnar - Rúmlega helmingur landsins hertekinn á viku
Lýst var yfir þriggja daga þjóðar-
sorg í Alsír í gær, en að minnsta
kosti 69 manns hafa nú farist í gróð-
ureldum, sem kviknað hafa vegna
hitabylgjunnar sem nú geisar við
Miðjarðarhaf.
Sjálfboðaliðar úr hernum og með-
al óbreyttra borgara hafa lagt
slökkviliðsmönnum lið í baráttunni
við eldana, en sjónarvottar segja að
stór svæði skóglendis hafi nánast
fuðrað upp vegna hitanna.
Stjórnvöld í Alsír segjast gruna að
einhverjir eldanna hafi verið af völd-
um íkveikju, þar sem óvanalegt sé að
svo margir eldar kvikni á jafn-
skömmum tíma. Hafa fjórir þegar
verið handteknir af þeim sökum, en
stjórnvöld hafa lítið gefið upp um
mál þeirra.
Þá hefur ríkissaksóknari landsins
ákveðið að rannsaka atvik þar sem
reiður múgur á að hafa tekið 38 ára
gamlan mann af lífi, sem grunaður
var um að hafa kveikt einn af eld-
unum.
Stjórnvöld hafa einnig leigt tvær
flugvélar frá Evrópusambandinu til
þess að hjálpa til við slökkvistarf, og
stjórnvöld í bæði Frakklandi og
Marokkó hyggjast einnig veita að-
stoð sína.
Ástandið þykir voveiflegt víða
annars staðar við Miðjarðarhaf, en í
nágrannaríkinu Túnis geisa nú um
30 gróðureldar vegna hitabylgjunn-
ar. Hitinn þar hefur mest náð 50,3
gráðum á Celsíus.
Leyfa sér meiri bjartsýni
Enn logar glatt á mörgum stöðum
í Grikklandi, en Kyriakos Mitsotak-
is, forsætisráðherra Grikklands,
sagði í gær mögulegt að vera bjart-
sýnni, þar sem kólnað hefði ögn og
rignt á sumum stöðum, sem hefði
hjálpað til við slökkvistarfið. Engu
að síður lýsti Mitsotakis eldunum
sem stærsta umhverfisslysi síðustu
áratuga í Grikklandi.
Í Tyrklandi létust ellefu manns í
gær vegna flóða og aurskriðna, en
stjórnvöld þar hafa einnig þurft að
glíma við gróðurelda og aðrar afleið-
ingar hitabylgju síðustu daga. Um
þúsund manns sinna nú hjálparstarfi
á þeim svæðum sem verstu urðu úti.
Á Spáni reyndu slökkviliðsmenn
að ráða niðurlögum þriggja gróður-
elda, og var fjórum flugvélum beitt
til þess að hella vatni á eldana. Hafa
þeir nú þegar læst sig í um 40 hekt-
ara af vernduðu skóglendi í Tarra-
gona-héraði. Þá geisuðu um 500 eld-
ar á Ítalíu, en þar hafa fjórir látist
vegna hitabylgjunnar.
Þjóðarsorg í Alsír
- 69 manns hafa farist í vikunni - Barist við gróðurelda víða
við Miðjarðarhaf - 11 látnir í Tyrklandi eftir flóð
Þessar ítölsku konur nýttu sér viftu, sem sett hefur ver-
ið upp við innganginn að Colosseum í Rómaborg til
þess að kæla sig niður. Háþrýstisvæði, sem kallað hefur
verið „Lúsífer“, færir sig nú upp Ítalíuskagann.
Lúsífer hefur náð að sprengja hitamet á Ítalíu, en
þar mældist hann hæstur 48,8 gráður á Celsíus á Sikil-
ey. Hitabylgjunni hafa fylgt fjölmargir gróðureldar,
líkt og í nokkrum öðrum Miðjarðarhafsríkjum.
AFP
Leita allra leiða til að kæla sig
Atvinna