Morgunblaðið - 13.08.2021, Side 16

Morgunblaðið - 13.08.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Ísland átti aðeins fjóra keppendur á Ólympíu- leikunum í Tók- ýó. Bent hefur verið á að til að fjölga íslensk- um keppendum á stórmótum og að þeir nái betri árangri á alþjóðavettvangi þurfi umhverfi okkar fremstu íþróttamanna að breytast verulega. Íþrótta- fólkið og þjálfarar þess verði t.d. að fá greidd mannsæm- andi laun til að geta einbeitt sér alfarið að æfingum og keppnum í íþrótt sinni og haft þannig íþróttina að at- vinnu. Þessi umræða er langt frá því ný af nálinni og skýtur jafnan upp kollinum í tengslum við þátttöku okkar besta fólks á stórum íþrótta- mótum erlendis. Kallað er eftir stefnu stjórnvalda í málum afreksíþrótta, meiri stuðningi, auknu fjármagni, betri aðstöðu/mannvirkjum, o.s.frv. Launasjóður afreks- íþróttamanna hefur verið nefndur í því sambandi og að íþróttamiðstöð yrði sett á laggirnar þar sem bæði af- reksfólkið og ungir og efni- legir íþróttamenn gætu feng- ið aðstoð frá fagfólki á ýmsum sviðum er tengjast þjálfun í íþróttum. Varla er hægt að ætlast til þess af íþróttamönnum okk- ar, sem eru flestir, fyrir utan boltaíþróttirnar þrjár, ekki atvinnumenn í íþróttinni, að þeir nái sem mestu út úr sinni getu á stærri sviðum íþróttanna fái þeir ekki að æfa við betri aðstæður. Ósanngjarnt er að bera sam- an árangur þeirra og er- lendra íþróttamanna þar sem þeir síðarnefndu búa við mun betri umgjörð utan um sportið í sínum heimalönd- um. Á síðustu árum hafa breytingar til góðs átt sér stað á afreksstarfinu hér- lendis, afrekssjóðurinn gildn- að talsvert, o.s.frv. En þrátt fyrir það hefur uppskeran verið rýr, að minnsta kosti fram að þessu. Svo virðist sem hægt miði áfram og að nágrannalöndin séu komin mun lengra en við í þessum efnum. Undirritaður tekur heilshugar undir það sjón- armið að það verði að stór- bæta umgjörðina í kringum afreksíþróttirnar hér á landi vilji menn sjá betri frammi- stöðu okkar fremsta íþrótta- fólks. Þessir þættir sem nefndir hafa verið snúa að þjálfun íþróttamannanna. Sjaldan er rætt um frammistöðu íþróttaforystunnar varðandi þessi mál, hver sé afreks- stefnan og hvernig gangi að innleiða hana. Það hlýtur að vera hlutverk og skylda for- ystunnar í samráði við sér- samböndin að búa til um- hverfið svo bestu íþróttamennirnir okkar geti blómstrað og náð hámarks- árangri í keppn- um á erlendri grundu. Í Bandaríkj- unum og flest- um Evr- ópulöndum er iðulega gerð sú krafa til stjórn- enda í íþrótta- tengdri starf- semi að þeir hafi lokið háskólanámi í stjórnun á sviði íþrótta (e. sports management), a.m.k. á grunnstigi (bakkalár) en helst meistaranámi. Þar er lögð áhersla á að stjórn- endur íþróttasambanda, íþróttafélaga, íþróttamann- virkja, íþróttaviðburða eða í öðru íþróttastarfi búi yfir sérfræðiþekkingu í íþrótta- stjórnun. Þeir sem útskrifast úr slíku námi hafa vanalega lært allt það sama og kennt er í hefðbundnu stjórnenda- og viðskiptanámi á meist- arastigi, en að auki um flest- allt sem viðkemur stjórnun í íþróttum. Til dæmis um sér- stöðu íþrótta eða þá fjöl- mörgu mikilvægu þætti sem aðgreina þær og íþrótta- starfsemi frá öðrum vörum og þjónustu og frá stjórnun og rekstri venjulegra fyr- irtækja. Við útskrift skilja þeir því vel eðli og starfsum- hverfi íþróttanna og eru vel undirbúnir fyrir leiðtoga- og stjórnunarstöður á þeim vettvangi. Venjulega þurfa íþrótta- þjálfarar hér heima að hafa tilskilda þjálfaramenntun til að mega starfa við þjálfun íþróttamanna. Óskandi væri að stjórnendur í sambönd- unum, félögunum, deildum félaganna o.s.frv. þyrftu líka að uppfylla sams konar skil- yrði með því að hafa lokið háskólaprófi í íþróttastjórn- un – helst frá góðu námspró- grammi á því sviði sem býð- ur fyrrum nemendum að halda þekkingu sinni við með því að sækja námskeið, „masterclasses“ og ráð- stefnur á vegum skólans um allt það nýjasta og um þau mál sem eru efst á baugi í faginu hverju sinni. Þannig fengjum við meiri faglega eða sérþekkingu og meiri hæfni inn í stjórnendastörf íþróttahreyfingarinnar hér á landi. Eftir Hallstein Arnarson Hallsteinn Arnarson » Óskandi væri að stjórnendur í íþróttahreyfingunni hér á landi yrðu að hafa lokið háskóla- prófi í íþrótta- stjórnun (e. sports management). Höfundur er með Executive MBA-gráðu í sports manage- ment frá Real Madrid Graduate School-European University og virkur félagi í nokkrum leiðandi íþrótta- fagsamtökum á heimsvísu. Meiri faglega þekkingu í stjórnendastörf íþróttahreyfing- arinnar ✝ Ingibjörg Ýr Pálmadóttir fæddist 7. maí 1931 í Reykjavík. Hún lést þar 23. júlí 2021. Foreldrar Ingi- bjargar Ýrar voru Ragnhildur Skúla- dóttir Thorodd- sen, f. 26.8. 1899, d. 4.9. 1966, og Pálmi Hannesson, f. 3.1. 1898, d. 22.11. 1956. Bræður Ingibjargar Ýrar eru Jón Skúli, f. 1927, d. 1935, Pétur Jökull, f. 1933, d. 1984, Skúli Jón, f. 1938, og Pálmi Ragnar, f. 1940. Hálfsystir Ingibjargar Ýrar samfeðra er Rannveig Torp Pálmadóttir Böðvarsson, f. 1924, d. 2005. Hinn 29.10. 1955 giftist Ingibjörg Ýr Indriða Gíslasyni, f. 27.7. 1926, d. 15.3. 2009. Foreldrar hans voru Dagný Pálsdóttir og Gísli Helgason, bændur í Skógargerði á Fljóts- dalshéraði. Börn þeirra eru: 1) Ragnhildur Rós, f. 11.8. 1956. Hennar maður er Skarphéðinn G. Þórisson, f. 20.6. 1954, börn þeirra eru a) Ingibjörg Ýr, f. 16.10. 1990, maki Þorfinnur Hannesson, f. 26.10. 1990. Syn- ur f. 13.6. 1967, í sambandi með Jóhönnu Þyri Sveins- dóttur, f. 19.10. 1969, hennar börn eru Grétar, Steinar og Björk. Sonur Ásmundar með Njólu Jónsdóttur, f. 28.7. 1967, er Jón Freyr, f. 3.9. 1997. Dóttir Indriða er Erna, f. 25.12. 1952, hennar maður er Andrés Svanbjörnsson, f. 20.10. 1939. Börn Ernu eru Frosti, Reimar og Valva Pét- ursbörn. Ingibjörg Ýr ólst upp í Reykjavík og varð stúdent frá MR árið 1950. Hún fór til náms í St. Paul, Minnesota í Bandaríkjunum og lauk námi í ensku og fjölmiðlafræði frá Macalester College. Auk þess ferðaðist hún og vann víða þar í landi. Heim komin fór hún að vinna á skrifstofu Ríkisféhirðis þar til að fjölga tók í barna- hópnum. Hún tók kennarapróf frá stúdentadeild Kennara- skóla Íslands árið 1969. Kenndi fyrst við Hvassaleit- isskóla í eitt ár en síðan við Skóla Ísaks Jónssonar þar til hún hætti störfum 72 ára. Ingibjörg Ýr var víðlesin og naut lífsins við ferðalög, börn og barnabörn, náttúruskoðun og var fastur gestur á nám- skeiðum Endurmenntunar HÍ um Íslendingasögur og bók- menntir. Ingibjörg Ýr verður jarð- sungin frá Háteigskirkju í dag, 13. ágúst 2021, klukkan 13. ir þeirra eru Hannes Indriði og Skarphéðinn Kári, b) Indriði, f. 18.8. 1992, í sambandi með Kolbrúnu Þóru Sverrisdótt- ur, f. 6.2. 1996, c) Þuríður, f. 18.8. 1992. Fyrir á Skarphéðinn son- inn Árna Val. 2) Pálmi, f. 2.6. 1958, hans kona er Anna Guðný Halldórsdóttir, f. 12.2. 1953. Hún á fyrir þau Sigvarð Örn, Halldór Val, Hrafnhildi Unni, Drífu Dröfn og Einar Má. 3) Helgi, f. 12.11. 1959. Börn hans eru Björn Þór, f. 1.10. 2003, og Birta Líf, f. 23.5. 2005. 4) Ólafur Skúli, f. 23.5. 1961, hans kona er Helga Ágústsdóttir, f. 14.2. 1966, dóttir þeirra er Katrín Helga, f. 7.8. 1996. 5) Jón Skúli, f. 6.7. 1963, kona hans er Sigríður Jóhannsdóttir, f. 28.10. 1963. Börn þeirra: a) Jóhann Skúli, f. 20.6. 1991, giftur Unni Elvu Hallsteinsdóttur, f. 21.6. 1988. Þeirra börn eru Eysteinn Skúli og Glódís Anna. b) Kristín Ýr, f. 26.7. 1998. 6) Dagný Berg- þóra, f. 13.3. 1965. 7) Ásmund- Elskuleg tengdamóðir mín, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, hefur kvatt okkur. Söknuðurinn er mikill, en við yljum okkur við minningar um stórbrotna konu sem strax við fyrstu kynni heill- aði mann með framkomu sinni. Hún fór ekki í manngreinaálit, heldur kom eins fram við alla. Það var fyrir rúmlega þrjátíu árum sem ég kom fyrst inn á heimili þeirra yndislegu hjóna, Ingibjargar og Indriða, fann ég strax hversu velkomin ég var. Það tók mig ekki langan tíma að finna að við yrðum góðar vin- konur og á það vinasamband bar aldrei skugga. Við áttum það sameiginlegt að hafa áhuga á fólki og þó að Ingibjörg hafði aldrei komið á mínar slóðir á Melkrakkasléttu, á þessum tíma, kannaðist hún við fólkið mitt þar af afspurn. Þótti mér vænt um að geta spjallað við hana um fólkið mitt fyrir norð- an, bæði þá sem höfðu kvatt og þá sem þar bjuggu. Einnig vor- um við báðar grunnskólakenn- arar sem þótti vænt um starfið sitt. Við sátum ekki ósjaldan við borðstofuborðið í Barmahlíðinni og ræddum uppeldis- og kennslumál, og man ég aldrei eftir öðru en að þar værum við alltaf sammála. Oft leitaði ég til Ingibjargar ef mig vantaði efni fyrir kennslu eða upplýsingar um eitthvað. Ég kom aldrei að tómum kofunum hjá henni og oft hafði ég á orði: „Ég spyr Ingibjörgu.“ Ég get aldrei fullþakkað Ingi- björgu og Indriða fyrir þeirra þátt í uppeldi barnanna okkar. Alveg frá fyrsta degi var Barmahlíð 32 þeirra annað heimili. Ég sagði þetta stundum við Ingibjörgu en þá tjáði hún mér að það hafi ekki síður verið forréttindi fyrir þau að hafa fengið að hafa þau hjá sér, alltaf jafn yndisleg. Þegar börnin hófu skólagöngu í Hlíðaskóla var gott að hafa athvarf eftir skóla hjá ömmu og afa í Barmahlíðinni. Eftir kennslu á daginn fóru þau alltaf heim til ömmu og afa sem tóku á móti þeim. Fyrst var fengin hressing og spjallað um daginn og veginn og síðan var tekið til við heimalærdóminn. Það voru ekki bara amma og afi sem hjálpuðu þeim við námið heldur kennararnir amma og afi. Ef ekki þurfti að drífa sig á fótboltaæfingar eða í tónlistar- skólann lásu amma og afi fyrir þau eða spiluðu við þau. Þetta var ómetanleg hjálp fyrir for- eldrana og ekki síður ómetan- legt fyrir börnin. Það heyrði til undantekninga ef Ingibjörg mætti ekki á leiksýningar eða tónlistarviðburði barnanna í skólanum. Þegar Jóhann og Kristín útskrifuðust úr Hlíða- skóla þá sagði Ingibjörg við mig að hún saknaði þess að koma ekki árlega í skólann á leiksýn- ingar, hún var nefnilega bæði amma og kennari. 18. júlí síðastliðinn fór ég til Ingibjargar minnar til að kveðja hana, því ég var að fara norður á æskuslóðir með búslóð for- eldra minna sálugu. Þegar ég kvaddi hana sagði ég við hana að við hefðum verið að passa Eystein okkar Skúla og ég von- aði að við yrðum jafn góð amma og afi og hún og Indriði. Þá sagði hún við mig: „Það verðið þið örugglega.“ Þetta voru okk- ar kveðjuorð og nú hafa dag- heimar hennar þagnað. Blessuð sé minning mætrar konu. Sigríður Jóhannsdóttir. Á yngri árum var ég vanur að spígspora um íbúð ömmu minn- ar og afa í Barmahlíðinni og dást að þeim ýmsu munum sem þau höfðu sankað að sér í gegn- um lífsleiðina. „Amma, má ég eiga þetta?“ Ég hafði svo sér- stakt dálæti á safni ömmu minn- ar af litlum fuglum sem hún hafði ýmist fengið að gjöf eða keypt á ferðalögum sínum og gat hangið tímunum saman í gluggakistunni í borðstofunni við að skoða þá. „Jói minn pass- aðu þig bara á því að brjóta ekki fuglana.“ Ég braut tvo. „Amma, þegar þú deyrð, má ég þá eiga þetta?“ var yfirleitt móttilboð mitt eftir að amma mín neitaði mér blíðlega um að eiga hluti á borð við gyllta búddastyttu eða skattholið hennar sem mér fannst með ein- dæmum hentugt og skemmti- legt. Ég taldi mig vera að gera tímamótasamninga í hvert skipti sem hún samþykkti lög- gerninginn, en áttaði mig þó með árunum á því að amma mín var ekki að fara eitt né neitt. Hún var grjóthörð, eldhress, með eindæmum dugleg og fyr- irmynd að öllu leyti. Það var ekkert verkefni of stórt. Langt inn á níræðisaldur labbaði hún út í búð, keyrði vestur yfir læk í sund og sagði skemmtilegustu sögurnar í öllum matarboðum. Það er ekki fyrr en nýlega að ég áttaði mig á því hversu mik- illa forréttinda ég nýt að hafa farið í gegnum lífið með allar mínar ömmur og afa mér við hlið og að öll hafi þau kennt mér jafn mikið á lífið og raun ber vitni. Í þeim skóla bar Ingibjörg amma mín þungann af öllum leiðinlegu hlutunum eins og að kenna mér að læra, segja mér að drekka ekki of mikið kakó- malt og fullt af öðrum lífs- reglum sem ég hef náð að temja mér á lífsleiðinni. Ég kann henni fyrir það mínar allra bestu þakkir en minningarnar verða þó ávallt sterkastar af þeim skiptum sem hún var mér sem sönn amma, eins og þegar ég lá í rúminu hennar í 5 daga samfellt með flensu og hún sinnti öllum mínum lífsins þörf- um eins og að kveikja fyrir mig á Minni skoðun með Valtý Birni, eða í öll skiptin sem hún las fyr- ir mig upp úr rússneskum æv- intýrabókum, sem ég vitanlega bað um að fá að eiga þegar tími hennar á jörðinni væri liðinn. Fjöður hauksins hugprúða situr nú í bókahillu barnanna minna sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir að þú hafir feng- ið að hitta. Ég mun aldrei koma því í orð hversu miklu máli þú skiptir mig og hversu sárt ég sakna þín á þessari stundu en mikið er ég feginn að þú hafir loksins fengið ósk þína uppfyllta og sért komin austan við sól og sunnan við mána þar sem afi hefur beðið eftir þér. Jóhann Skúli Jónsson. Amma var ógeðslega skemmtileg. Hún var ógeðslega fyndin og að sjálfsögðu ógeðs- lega falleg. Og hún myndi skamma mig mjög mikið fyrir að nota lýsingarorðið ógeðslega svona oft eða bara yfirhöfuð. Hefði kannski fengið flaut eða lauflétt: „Þuríður, maður segir ekki ógeðslega.“ Hún var festan mín í Reykjavík þegar ég flutti þangað fyrir næstum áratug. Þar á undan hýsti hún mig og vinkonur mínar þegar við kom- um í gelgjuferðir suður og þar þar á undan beið hún með heitt kakó og ristað brauð þegar við fjölskyldan komum keyrandi að austan. Hún fór með okkur á Klambratún og skolaði sárin eft- ir að barnabarnið dróst eftir ap- arólunni af einstökum klaufa- skap. Klaufaskapinn erfði ég í beinan kvenlegg frá gömlu og ég hef sjaldan séð myndarlegri horn en þau sem hafa myndast á enni ömmu minnar eftir ein- hverja byltuna í gegnum árin. Hún var samt engin hornkerl- ing, hún var t.d. kosin fyrst kvenna forseti nemendafélags- ins í Menntaskólanum í Reykja- vík árið 1949, menntaði sig sem kennari stuttu eftir að hafa eignast sjöunda barnið, og var alla tíð á undan sinni samtíð. Hún var sú besta fyrirmynd sem ung kona getur óskað sér og ég á eftir að sakna hennar svo lengi sem ég lifi. Ég vona innilega að nú eigi sér stað end- urfundir hennar og foreldra hennar á bláu eyjunni en hún talaði alltaf svo fallega um þau og hélt minningu þeirra á lífi. Mér finnst ég hafa þekkt lang- afa minn og langömmu persónu- lega, þrátt fyrir að þau hafi kvatt jarðlífið löngu áður en ég fæddist. Ég ætla að gera hið sama og tala um ömmu við börnin mín og barnabörnin mín. Því amma var snillingur. En nú verður væmnin að víkja þar sem amma var ekkert sérstaklega gefin fyrir þannig lagað. Ég man þegar ég ætlaði einhvern tímann að gera vel við gömlu og lesa fyrir hana ljóð úr Svörtum fjöðrum Davíðs Stef. Ég las nokkur og gerði svo stutt hlé og spurði hana hvort þetta væri ekki yndisleg lesning. Þá fussaði í gömlu og hún sagði: „Æ hann Davíð er alltaf svo væminn.“ Ég ætla því hér eftir aðeins að fagna minningu elsku ömmu minnar og hlakka til að hitta hana aftur þegar að því kemur. Fagna minningu konunnar sem kom með mér í Ikea og lagðist niður á fjórar mismunandi dýn- ur til þess að finna þá réttu. Fagna minningu konunnar sem bullaði í öðru hverju orði og stóð á öðrum fæti og söng hæ gam- an. Fagna því að ég fékk að vera Þöllin hennar í næstum 29 ár. Takk fyrir allt elsku besta amma mín, þúsund kossar alla leið niður í tær. Þuríður Skarphéðinsdóttir. Nú er svo komið að af fimm alsystkinum, börnum þeirra Ragnhildar Thoroddsen og Pálma Hannessonar, erum við Skúli Jón einir á lífi; Jón Skúli, Ingibjörg Ýr og Pétur Jökull öll látin. Ekki verður sagt að dauðinn hafi sótt Ingibjörgu heim fyrr en vonir hennar stóðu til. Hún var rúmlega níræð og pakksödd lífdaga, enda hafði hún verið háð umönnun annarra um árabil vegna heilablóðfalls. „Það er illt að vera upp á mennina komin,“ hafði amma okkar, Theodóra Thoroddsen, gjarnan á orði og þótt vel hafi farið um Ingibjörgu síðustu árin í ljúfri umsjón hennar allra nánustu var hún ekki svipur hjá sjón samanborið við fyrri afburði á ótal sviðum. Með systur minni hverfur býsna margt, einkum tenging við fyrri tíð, en hún var hafsjór af fróðleik, ekki síst um ættir okkar og sögu. Ingibjörg var órofa hluti af lífi mínu frá fyrstu tíð. Eðli máls samkvæmt var vægið mismikið eftir aðstæðum okkar hvors um sig á hverjum tíma. Ég fetaði í félagsleg fótspor hennar í menntaskóla, fyrst sem scriba scolaris og síðar forseti mál- fundafélagsins Framtíðarinnar, þótt líklega næði ég aldrei sama ágæti og hún á þeim vettvangi. Hún var fyrst kvenna kosin til umræddra embætta. Faðir okkar brautskráði Ingi- björgu stúdent vorið 1950. Hún fékk 10 í náttúrufræði sem gladdi hann mjög. Þá var hún nýorðin 19 ára og flestir vegir færir. Hún fór ekki þá fremur en síðar á ævinni troðna slóð, heldur valdi að læra til blaða- manns við háskóla í St. Paul í Minnesotaríki í Bandaríkjunum. Um námsárangur þar veit ég Ingibjörg Ýr Pálmadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.