Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 19

Morgunblaðið - 13.08.2021, Page 19
✝ Ingvar Þórð- arson fæddist í Reykjavík 28. jan- úar 1941. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut þann 3. ágúst 2021. For- eldrar hans voru hjónin Ingibjörg Ingvarsdóttir hús- freyja f. 23. júní 1920, d. 11. febr- úar 1995, og Þórður Guð- mundsson verslunarmaður, f. 10. júlí 1919, d. 24. maí 1972. Bræður Ingvars voru þrír; Guðmundur, f. 26. desember 1939, d. 3. október 2017, Stefán Ragnar, f. 19. nóvember 1948, og Símon Johnsen, f. 9. júní 1951. Ingvar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Guðnýju Hafdísi Svavarsdóttur, þann 25. maí 1988, í sambúð með Fannari Erni Karlssyni, f. 27. apríl 1985. Ingvar ólst upp í Reykjavík, en fluttist til Hafnar í Horna- firði 1971 og bjó þar til dauða- dags, hann stundaði sjó- mennsku þaðan fyrstu árin en fór svo að vinna við húsbygg- ingar og lærði húsasmíði og vann við það ásamt mörgu öðru. Áhugamál hans voru bridds og knattspyrna, en svo fékk hann leiklistarbakteríuna og lék í fjöldamörg ár með Leikfélagi Hornafjarðar bæði í aðal- og aukahlutverkum og einnig söng hann með Gleði- gjöfum, kór eldri borgara á Höfn. Hann vann við Sundlaug Hornafjarðar allmörg ár, eitt sumar var hann bryti hjá Landhelgisgæslunni og einnig var hann kokkur til sjós. Útför Ingvars fer fram frá Hafnarkirkju 13. ágúst 2021 kl. 11. Streymi frá útför: https://youtu.be/Llz-BtrdR6g Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat 1972 og eignuðust þau 6 börn; a. Svavar Þór, f. 9. desember 1971, hann á soninn Xav- ier, f. 4. nóvember 1997, b. Hálfdan, f. 2. nóvember 1974, kvæntur Jill Ingv- arsson og eiga þau 2 börn, Alexander Ara, f. 6. júní 2007, og Zoe Patriciu, f. 24. mars 2010, c. Þórður, f. 25. september 1979, d. Ingvar Árni, f. 27. september 1983, í sambúð með Becky Taylor, þau eiga 4 dætur, Kaitlyn Björg, f. 3. maí 2004, Lenu Örnu, f. 23. mars 2010, Cerys Taylor, f. 25. júlí 2003, Bethiu Taylor, f. 12. maí 2005, e. Ingibjörg, f. 21. ágúst 1987, gift Atla Sigurjóns- syni, f. 25. febrúar 1984, og f. Alexandra, f. 25. nóvember Elsku kallinn minn! Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. En það er margt um manninn á svona stað, og meðal gestanna er sífelldur þys og læti. Allt lendir í stöðugri keppni’ um að koma sér að og krækja sér í nógu þægilegt sæti. En þó eru sumir, sem láta sér lynda það að lifa úti’ í horni, óáreittir og spakir, því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að, og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir. En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hóteldvöl, þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn, og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn, og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn. En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferðardaginn. Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss, að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst – í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. (Tómas Guðmundsson) Ástarþakkir fyrir yndislega tímann okkar saman. Þín Guðný. Hann faðir minn, Ingvar Þórð- arson, kvaddi þennan heim 3. ágúst klukkan 11.00. Hans verð- ur sárt saknað af allri fjölskyld- unni. Persónulega hef ég misst besta mann í þessum heimi. Ég get ekki ímyndað mér betri fyr- irmynd, sem maður, sem faðir og sem manneskja. Eftir að ég fullorðnaðist hef ég reynt að móta hegðun mína eftir hans hvað varðar samskipti við aðra. Hann var einstaklega góður maður og vildi alltaf bæta sig. Honum þótti réttlæti skipta mestu máli og kom fram við alla eins og jafningja. Hann var ekki mikið fyrir spjallið, en hann kunni að gera þögnina þægilega. En það var líka auðvelt að ræða við hann um allt og alla, og hann átti ekki erfitt með að vera heið- arlegur í því sem hann sagði. Hann var líka svo góður að skipta um skoðun og viðurkenna þegar hann hafði rangt fyrir sér, og fannst engin skömm að því. Sem faðir til sonar setti hann aldrei neina pressu á mig. En hann var alltaf ánægður með mig og studdi ákvarðanir mínar og ég fann alltaf fyrir stolti hans. Þetta stolt var augljóst þegar ég út- skrifaðist sem hjúkrunarfræð- ingur og síðar þegar ég gerðist háskólakennari. Sem afi var hann alveg eins, nema kannski 150% meira af öllu. Hann var einstaklega ljúfur og góður við barnabörnin sín. Hann gat aldrei gert nógu mikið fyrir þær, ef þær báðu um eitthvað þá gat hann aldrei gert nóg. Þeim þótti öllum svo undurvænt um hann, og þær munu sakna hans óendanlega mikið. Hans verður saknað af okkur öllum í Bretlandi og það verður ekki eins að heimsækja klakann aftur. Ingvar Árni Ingvarsson, Becky Taylor, Cerys Taylor, Kaitlyn Björg Ingvarsdóttir, Bethia Taylor, Lena Arna Schulz-Ingvarsdóttir. Nú hefur Ingvar bróðir minn kvatt okkur. Við byrjuðum snemma að umgangast, þrátt fyr- ir átta ára aldursmun. Ein fyrsta endurminning mín af Ingvari var þegar hann bjargaði mér úr óvinahöndum. Ég hafði hætt mér einn míns liðs inn á óvinasvæði í Langagerði. Í þá daga var smá- íbúðahverfið í uppbyggingu og mikil stríð milli hverfa, í það minnsta utan skólatíma og æf- inga með Víkingi en þar voru allir vinir. Ég var tekinn fastur og bundinn við fánastöng og fékk að dúsa þar að mér fannst í óratíma. Það var því mikil gleði og tárin streymdu niður þegar Ingvar birtist og leysti mig úr fjötrum. Hetjan mín. Ingvar var duglegur að koma á viðburði og jafnvel í foreldrasamtöl því foreldrar okk- ur voru upptekin við annað. Sjálf- ur gekk Ingvar í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Ég þroskaðist snemma og ekki á sem bestan hátt. En fljótlega fórum við að skemmta okkur saman þrátt fyr- ir aldurmuninn. Við leigðum okk- ur íbúð saman á Sogaveginum. Ingvar vann þá sem tengingar- maður hjá Landssímanum og vann mikið úti á landi yfir vikuna en kom heim um helgar, en ég var í Iðnskólanum á þessum tíma. Við brölluðum mikið saman á þessum tíma og ekki hefur allt fest í minninu, kannski sem betur fer. Ingvar kynntist konu sinni Guðnýju Svavarsdóttir á Höfn 1971 og giftust þau 24. maí 1972 og eiga sex mannvænleg börn. Þau eru Svavar Þór 1971, Hálf- dán 1974, Þórður 1979, Ingvar Árni 1983, Ingibjörg 1987 og Alexandra 1988. Barnabörnin eru þrjú. Þau eru mörg búsett er- lendis og hafa Ingvar og Guðný verið dugleg að heimsækja þau. Þegar ég byrjaði að vinna á Hornafirði við byggingu frost- geymslunnar í Óslandi fékk ég að í búa hjá þeim í risíbúðinni við Miðtún 8. Ingvar stundaði sjó- mennsku á þessum tíma oftast sem matsveinn og var hann mjög eftirsóttur í það. Um fertugt tók hann upp á því að læra húsasmíði og gerði það með láði. Ingvar var mjög vand- virkur og góður smiður. Við störfuðum saman við smíðar og gekk það samstarf upp og niður. Við vorum mjög ólíkir, Ingvar ljúfur og góður og kunni best við sig að dunda sér einn og helst í friði frá öðrum. Ég var frekja og brussa sem oft fylgir í þessum bransa. Því miður lauk samstarfi okkar ekki eins og við hefðum viljað og á ég sannarlega minn þátt í því. Ingvar var mjög listrænn í sér og var góður leikari, hann starf- aði í áratugi með Leikfélagi Hornafjarðar og ekki bara sem leikari heldur sem leikmynda- gerðarmaður og fleira sem féll til. Hann hlaut fyrir skömmu heið- ursverðlaun fyrir störf sín á þess- um vettvangi. Veit ég að honum þótti vænt um þessa viðurkenn- ingu. Hann byggði hús fjölskyld- unnar mest sjálfur spýtu fyrir spýtu af mikilli vandvirkni. Minn- ingar um Ingvar bróður minn hrannast upp á þessum tímamót- um og á sjötíu árum eru þær margar. Væntumþykjan er alls- ráðandi í þessum minningum en margt hefði mátt fara betur. Maður á að vanda sig við um- gengni við alla menn. Hvíl í friði kæri bróðir og takk fyrir allt og allt. Stefán. Hér utan við gluggann er úr- helli. Kannski úrhellið haldist í hendur við það sem er að gerast innra með mér. Enn einn vinur og frændi farinn, snögglega. Leikari af guðs náð, en amatör. Það skipti þó aldrei máli, Ingv- ar Þórðarson var leikari af nautn, krafti og túlkun í þeim hlutverk- um sem hann tókst á við. Undir minni handleiðslu hjá Leikfélagi Hornafjarðar túlkaði hann meðal annars Tómas í Djöflaeyju Einars Kárasonar, Jerry í Stræti Jims Cartwrights, Anton (pabba Emils) í Emil í Kattholti, sem og ömmuna í Átta konum. Þar brá hann sér í gervi konu, og bæjarfélagið velti mikið fyrir sér hvaða kona þetta væri eiginlega sem væri að leika á sviðinu; áttaði sig ekki á að þetta væri karlmaður sem túlkaði þessa ömmu. Fín túlkun, fín tján- ing, flottur leikari. Er allur. Miss- ir. Konu hans, börnum og barna- börnum sendi ég mínar hjart- næmustu samúðarkveðjur. Guðjón Sigvaldason leikstjóri. Ingvar mágur og vinur er ekki lengur meðal vor. Lífshlaupi hans er lokið fyrr en maður ætl- aði. Ingvar var Reykjavíkurdreng- ur og ólst upp í höfuðborginni. Á sjöunda áratugnum lá leið hans austur á Höfn í Hornafirði en þá var hann að vinna hjá Sím- anum við að auðvelda fólki að komast enn betur í samband hvert við annað. Ánægjuleg kynni okkar Ingvars hófust um þetta leyti en hvorugur sá þó það fyrir, að við yrðum svilar innan skamms tíma. Ásamt því að bæta talsam- bandið tókst honum sjálfum að ná verulega góðu sambandi við hornfirska yngismær. Þróaðist náið samband þeirra markvisst og endaði í ást, sambúð barneign- um og búamstri. Þessi unga kona sem heillaði Ingvar var Guðný Svavarsdóttir af þekktum horn- og vopnfirsk- um ættum. Völdu þau að setjast að á Höfn og byggðu sér hús og heimili að Smárabraut 7. Þar ríkti fljótlega ys og þys, enda fjöl- skyldan orðin á skömmum tíma hjón með sex mannvænleg börn. Ingvar lærði trésmíði og vann jafnan við þá iðn ásamt því að stunda sjóinn sem kokkur á bát- um frá Höfn. Ingvar vann einnig um árabil hjá sveitarfélaginu við húsvörslu og sundlaugagæslu og fórst það vel úr hendi eins og allt annað sem hann tók sér fyrir hendur. Ingvar var þekktur í samfélag- inu af félagslegum áhuga sínum og sér yndi var þátttaka hans leiklist og öllu því sem henni fylgdi. Hann var sterkur hlekkur í starfi Leikfélags Hornafjarðar. Þar tókst hann á við hvert stór- hlutverkið á fætur öðru, s.s. Jón- atan í Hart í bak, í Kaj Munk, Strætinu, Djöflaeyjunni, Máfin- um, Músagildrunni o.fl. Þá hann- aði hann og smíðaði marga leik- myndina. Hann lét sér sviðið ekki nægja heldur lék hann í nokkrum kvikmyndum, sem teknar voru á Hornafirði. Ingvar stundaði badminton af krafti í mörg ár. Hin síðari ár söng hann í Gleðigjöfum, kór eldri Hornfirðinga. Ingvar og Guðný voru mjög samheldin og í sambúð þeirra var lítið um skoðanaágreining. Þau voru dugleg að ferðast og kom það sér vel þar sem börn þeirra hafa búið og dvalið erlendis um lengri og skemmri tíma. Þær voru kærkomnar heimsóknirnar til þess hitta börn og tengdabörn og knúsa barnabörnin. Guðný, kona Ingvars starfað í áraraðir, sem bókavörður á söfn- um Hornafjarðar. Þau hjónin voru með eindæmum bókelsk, vel lesin og fróð. Tungumál lágu vel fyrir þeim og kom sér vel m.a. á ferðalögum erlendis. Á síðasta ári voru Ingvari veitt Menningarverðlaun Hornafjarð- ar og með því þökkuð marghátt- uð félagsleg þátttaka. Leiklistina bar hæst og ósérhlífin störf henni tengd. Fjölskylda mín þakkar Ingvari innilega fyrir dýrmæt og gefandi kynni. Ég, synir mínir og fjölskyldur þeirra, vottum Guðnýju, börnum og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Ég veit, að hvar sem Ingvar ber að garði handan móðunnar miklu verður honum ávallt tekið sem aufúsugesti. Far þú heill og hafðu þökk heiðursvinur sanni. Mín er kveðjan ætluð klökk kærum, sönnum manni. Haukur Helgi Þorvaldsson og fjölskylda. Við kveðjum í dag Ingvar Þórðarson, stórleikara, listakokk og smið. Líf hans og Guðnýjar Svavars, frænku minnar og vin- konu, var samofið í áratugi, enda ætluðu þau að halda upp á gull- brúðkaup á næsta ári með stæl og settu stefnuna á Japan. Gerðu yfirleitt allt með stæl og hafa ferðast um lönd og álfur á seinni árum til að hitta fólkið sitt og skoða heiminn. Ingvar var prúðmenni. Lagði metnað í það sem hann gerði, hvort sem það var í smíðavinnu, við bridds- og snókerborðin eða eldamennskuna sem lék í hönd- um hans. Það voru ekkert venju- legar veislur á Smárabrautinni þegar maður kom í heimsókn, Ingvar og Guðný samtaka á því sviði sem öðru, hann með aðal- réttinn, hún eftirréttinn og svo var heimilishúmorinn sem krydd á kræsingarnar. Kannski naut Ingvar sín þó hvergi betur en á leiksviðinu. Með Leikfélagi Hornafjarðar skilaði hann hverju hlutverkinu á fætur öðru af list og innsæi, auk þess að eiga drjúgan þátt í leikmyndum. Hann hlaut Menn- ingarverðlaun Hornafjarðar fyrr á þessu ári fyrir það fram- lag sitt gegnum tíðina og fór vel á því. En Ingvari þótti líka gott að taka lífinu með ró heima, lesa, og fylgjast með málefnum líðandi stundar, meðal annars á íþrótta- sviðinu. Með fjarstýringuna í hendi héldu Ólympíuleikarnir í Tókýó honum við efnið fram und- ir síðasta dag. Það varð ansi brátt um hann. Þegar hann lyfti lóðum í morgunleikfimi heima fann hann fyrir verk í handlegg og læknir sendi hann suður. Ellefu dögum síðar var hann allur. Þó ekki fyrr en nánasta fjölskylda hafði náð að kveðja hann, þar á meðal synirnir þrír sem búa í fjarlægum löndum og flugu í snatri heim þegar sýnt var að hverju dró. Þá gat hann fært sig yfir á annað svið. Guðnýju, börnum þeirra Ingv- ars, tengdabörnum og barna- börnum votta ég einlæga samúð, þau eiga góðs að minnast og góðs að sakna. Gunnþóra. Ingvar Þórðarson in að fá að eyða töluverðum tíma með Jobbu og fjölskyldu, sérstak- lega hér á árum áður en mamma og pabbi og Jobba og Jón voru miklir og góðir vinir og því mikill samgangur alla tíð. Það voru því ófáar heimsóknirnar á fallega heimilið þeirra Jóns hér áður á Sunnuflötina og fjölmargar góðar stundir í sumarbústaðnum við Laugarvatn þar sem ýmislegt var brallað. Jobba var rösk og dreif í hlutunum sem er almennt hinn mesti kostur, en sem barni fannst mér það afar óheppilegt þegar kom að því að smyrja brauð og sjóða grjónagraut. Brauð með smjöri í miðjunni og ekkert út á kantana og grjónagrautur með hálfsoðnum grjónum þótti mér al- veg ótækt. En það var Jobba, drífa í þessu og ekkert ves. Það hefur verið gaman að fylgjast með hversu samheldin og góð fjölskyldan hefur alla tíð verið. Ég man þegar Jobba var að tala um að vinkona hennar hafði verið að vorkenna henni að eiga bara stráka því hún fengi ekki að vera eins mikill þátttak- andi í lífi þeirra eins og mæður eru oft miklir þátttakendur í lífi dætra sinna. Það varð þó ekki raunin enda Jobba einstaklega skemmtileg og ræktaði vel sam- bandið við strákana og síðar tengdadæturnar, barnabörnin og barnabarnabörnin sem nú hafa misst mikið en eiga dásamlegar minningar um yndislega mömmu, ömmu og langömmu. Elsku Jón, Gauti, Benni, Unnur og fjölskylda, Villi, Agga og fjöl- skylda, missir ykkar er mikill. Við Finnur og strákarnir sendum ykkur öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði elsku frænka. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Sigríður Þorgeirsdóttir (Sigga Þorgeirs). Elsku Jódís. Ég hreinlega veit bara ekki hvar skal byrja. Ég kom inn í líf ykkar þegar ég hitti son þinn, hann Benna. Allt frá fyrsta degi fannst mér ég tilheyra ykkar fjölskyldu, við Jón töluðum um Selfoss og þú pikkaðir á einhverja takka í veggnum sem ég svo seinna áttaði mig á að voru takk- arnir fyrir eldavélina. Ég bjó hjá ykkur þar til við Benni fluttum saman þar sem von var á barna- barni. Síðar keyptum við íbúðina á Öldugötunni sem var æskuheim- ilið þitt og okkur leið alltaf svo vel þar. Flestar minningar mínar eru samt frá Laugarvatni, þar sem alltaf var svo gott að vera saman. Þar var ýmislegt brallað, þú eð- alkokkurinn hafðir mjög gaman af að elda góðan mat fyrir fjölskyld- una. Það var snilld að fylgjast með hvernig þér tókst að finna allt mögulegt smart: mat, fatnað og allt til heimilisins. Hafðir sérstakt auga enda fagurkeri. Myndirnar af strákunum þínum í sardínudós- unum í sveitinni hefur mér alltaf þótt mjög vænt um, skoða þær alltaf þegar ég er í Stóru-Skógum. Ég á eftir að sakna þess að fara með þér í dagsferðir í sveitinni og eiga stundir saman. Þú hafðir svo mikinn áhuga á öllu því sem við og krakkarnir vorum að gera. Spurð- ir mig hvað ég væri að prjóna, Benna hvernig framkvæmdir hjá honum gengju og varst alltaf með á hreinu hvað krakkarnir voru að bralla. Allir ægilega duglegir eins og þú sagðir svo oft. Þú ert sú jákvæðasta mann- eskja sem ég hef kynnst. Þú fékkst alveg raunir sem tóku á en alltaf var hugarfarið jákvætt, brosmilt og svo var hnefinn gefinn með bros á vör. Við eigum öll eftir að sakna þín mjög mikið og erum heppin að eiga allar þessar fallegu minning- ar. Þín Unnur Eva. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2021 Ástkær dóttir, móðir, tengdamóðir, systir og amma, ÁSTRÍÐUR Þ. KRISTJÁNSDÓTTIR, Hrafnhólum, var bráðkvödd á heimili sínu. Útför fer fram frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 15. Alla B. Albertsdóttir Sara Dögg Guðnadóttir Sigfús Jónsson Berglind Amy Guðnadóttir Bjarki Hólmgeir Halldórsson systkini og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.