Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 192. tölublað . 109. árgangur . EKKI ÓGER- LEGT AÐ SJÁ FRAMTÍÐINA BRUNAGADDUR VARÐ TIL Í HÖRÐUM VETRI STAFRÆN LYF- SALA RYÐUR SÉR TIL RÚMS ÖNNUR LJÓÐABÓKIN 24 VIÐSKIPTI 12 SÍÐURSKÓLAR 40 SÍÐUR Úr höndum Íslendinga - Greiðslumiðlun nær alfarið komin í erlenda eigu eftir sölu Valitors úr landi - Málið á borði þjóðaröryggisráðs - Seðlabanki Íslands knýr á um aðgerðir hafa þær aukist til muna í kjölfar þess að Arion banki tilkynnti um sölu Valitors til ísraelska fjártækni- fyrirtækisins Rapyd. Leggjast þær áhyggjur ofan á þær sem fyrir voru í kjölfar þess að Borgun, sem nú nefnist Salt Pay, var seld til sam- nefnds félags, sem er í brasilískri eigu. Morgunblaðið hefur átt samtöl við marga sérfræðinga, utan stjórn- kerfisins og innan sem segja stöð- una mjög alvarlega. Enginn er þó reiðubúinn til þess að koma fram undir nafni og í mörgum samtal- anna er ítrekað að staðan sé við- kvæm, enda hafi fyrirtækin fyrr- nefndu í raun hreðjatak á færsluhirðingarmarkaðnum. Þjóðaröryggisráð hefur verið upplýst um stöðuna um alllangt skeið en ekki hefur verið brugðist við á vettvangi þess þrátt fyrir stöð- una, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Mikil samþjöppun á sviði greiðslu- miðlunar og sala Íslandsbanka og Arion banka á grunninnviðafyrir- tækjum til útlendinga felur í sér ógn að mati embættismanna innan stjórnkerfisins. Áhyggjur af stöð- unni hafa verið viðraðar innan Seðlabanka Íslands, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og forsætis- ráðuneytisins vegna stöðunnar og Viðkvæm staða » Smágreiðsluinnviðir allir í erlendri eigu og lúta ekki ís- lenskri lögsögu. » Seðlabankinn telur sig búa yfir takmörkuðum tækjum til að bregðast við ef markaðs- brestur myndast. MViðskiptaMogginn Fjöldi fólks stóð í röð í rigningunni á Suður- landsbraut í gær og beið eftir að komast í skim- un fyrir Covid-19. Þar á meðal voru leik- skólabörn og fjölskyldur þeirra. Á meðan röðin á Suðurlandsbraut sniglaðist áfram var tómlegt um að litast í Laugardalshöll- inni, þar sem örvunarbólusetningar Janssen- þega stóðu til en aðeins 6.500 af þeim 11.000 sem höfðu fengið boð um að mæta í bólusetningu í gær mættu, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlends- dóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. »9 Morgunblaðið/Eggert Löng röð eftir skimun en dræm þátttaka í bólusetningu Faraldur kórónuveiru hefur haft margvísleg áhrif á rekstur apóteka. Eflaust kemur engum á óvart að handspritt og grímur hafi selst mik- ið. Hins vegar var óvænt þróun í sölu þungunarprófa, en Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Lyfju, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að sala á þeim hafi aukist eftir að far- aldurinn fór af stað. Sölutölur annars varnings geta einnig gefið ákveðna vísbendingu um breytt atferli fólks í faraldrinum. Verslanir á vegum Lyfja og heilsu hafa að sögn framkvæmdastjóra þeirra, Kjartans Arnar Þórðarsonar, selt töluvert minna af lyfjum til með- ferðar við njálg og höfuðlús. Kjartan segir tækniframfarir í apótekum eiga eftir að bæta þjón- ustu við viðskiptavini apóteka og auka þægindi þeirra. „Eins mun aukið samstarf við aðra hluta heil- brigðiskerfisins í gegnum ákveðnar tækniframfarir gagnast öllu kerfinu í heild sinni.“ Hraðpróf kunna að skipa stóran sess í starfsemi apóteka þannig að þau muni skima fyrir sjúkdómum og bjóða upp á meðferðir við þeim í kjölfarið. Sala jókst á þungun- arprófum - Apótek laga sig að breyttum aðstæðum Morgunblaðið/Friðrik Breytingar Lyfsalar hafa eflt heim- sendingarþjónustuna í faraldrinum. „Það er eins og önnur lönd hafi tekið fram úr okkur hvað það varðar að læra að lifa með veir- unni. Hvernig getum við séð 60 þúsund manns á fótboltaleikjum og 300 þúsund manns á tónlist- arhátíðum vandræðalaust í löndum sem eru með miklu lægra bólusetningarhlutfall en við erum með, en það má ekki skipta Eld- borg upp í þrjú 500 manna svæði?“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, tón- leikahaldari hjá Senu Live og for- maður Bandalags íslenskra tón- leikahaldara. Samráðshópur íslenskrar tón- listar sendi í gær bréf á ráðamenn þar sem rakið er hversu lamandi núverandi takmarkanir eru á tón- listariðnaðinn. Í bréfinu er skorað á ráðamenn að slaka á fjölda- takmörkunum og bent á að vel hafi gefist í öðrum löndum að halda stóra viðburði án þess að upp hafi komið hópsmit. Í bréfi hópsins er farið fram á að samkomur verði heimilar fyrir allt að 500 manns í hverju sóttvarna- hólfi án sérstakra nándartakmark- ana, enda gæti viðburðahaldarar þess að gestir framvísi neikvæðri niðurstöðu úr nýlegu hraðprófi eða sjálfsprófi en slíkt hafi gefist vel við viðburðahald erlendis. » 12 Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Samkoma Tónlistarkonan Bríet er ein þeirra sem hafa þurft að fresta fyrirhuguðum tónleikum sínum vegna núverandi samkomutakmarkana. Telja vel unnt að halda stóra viðburði - Vilja undanþágu fyrir 500 manna sóttvarnahólf - Gestir fari í hraðpróf _ Abdul Ghani Baradar, annar stofnandi talíbana, sneri aftur til Afganistans í gær eftir um tveggja áratuga útlegð. Endurkoma hans þykir marka fullnaðarsigur talíb- ana, en þeir héldu í gær blaða- mannafund, þar sem þeir lofuðu því meðal annars að ekki yrði leitað hefnda á andstæðingum þeirra, og að kvenréttindi yrðu virt innan ramma íslamskra laga. Flest ríki hafa tekið yfirlýsingum þeirra af tortryggni, en Hamas- samtökin í Palestínu sendu í gær talíbönum hamingjuóskir sínar. Tugþúsundir manna reyna nú að flýja land. Flóttamannanefnd fundaði í gær um stöðuna, en Stef- án Vagn Stefánsson formaður segir nefndina þurfa meiri tíma til að móta tillögur. »2, 8 og 11 Talíbanar heita því að hefna sín ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.