Morgunblaðið - 18.08.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
fv. borgarstjóri og marg-
reyndur borgarfulltrúi, skrifar:
- - -
Stjórnsýsla
borgarinnar
hefur farið sí-
versnandi und-
anfarin ár. Skuld-
ir vaxa dag frá
degi og eru nú í
hæstu hæðum.
Glundroðinn í
borgarstjórn, sem
er ekki einungis meirihlutanum
um að kenna, er nánast daglegt
brauð. Óratíma tekur að af-
greiða einstök mál, endalausar
tafir sem kosta fyrirtæki og
íbúa verulegar fjárhæðir, ein-
kenna nú stjórnsýslu Reykjavík-
urborgar.
- - -
Í þessari alvarlegu fjárhags-
stöðu borgarinnar kynnir
meirihlutinn nú í fyrsta sinn
nýjar tillögur um breytingar á
skipan og hlutverki íbúaráða
borgarinnar þar sem kemur
fram að þeim verði fjölgað úr 9
í 10 og launakjör ráðsmanna
verði hækkuð. Umsagnir um
þessar tillögur frá ráðum og
nefndum borgarinnar skulu
berast fyrir 1. sept. nk.
- - -
Hinn almenni borgarbúi hef-
ur nánast ekkert verið
upplýstur um þetta mál. Ekki
er gerð grein fyrir auknum
kostnaði við rekstur íbúar-
áðanna sem af þessum breyt-
ingum leiðir en núverandi
kostnaður er á bilinu 60-70
milljónir króna. Fram kemur í
greinargerð með tillögunum að
í meirihlutasáttmála núverandi
meirihluta sé gert ráð fyrir „að
endurskoða hlutverk hverf-
isráða með skilvirkni, eflingu
lýðræðis og bættu samstarfi við
íbúa að leiðarljósi“. Ekkert
minna en það. Þetta verkefni
hefur tekið þrjú ár“!
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Óráðsían vex
STAKSTEINAR
110
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hjálparsamtökin UNICEF og
Rauði krossinn á Íslandi hafa hrint
af stað sérstökum neyðarsöfnunum
til styrktar íbúum Afganistans í ljósi
neyðarástandsins sem þar hefur
skapast hefur á undanförnum miss-
erum, að því er greint er frá í til-
kynningum frá samtökunum tveim-
ur.
Brýn þörf hefur verið á mannúð-
araðstoð í Afganistan undanfarin ár
og síst hafi dregið úr þeirri þörf síð-
ustu vikur og daga, að sögn samtak-
anna.
Þá er gert ráð fyrir að þörf sé á
bráðri heilbrigðisþjónustu og endur-
hæfingu borgara á næstu mánuðum
og árum en fjöldi barna og ungs fólks
hafa misst útlimi vegna sprenginga í
átökunum.
Fjármagn sem samtökin safna
verður varið í mannúðaraðgerðir í
landinu til að stuðla að velferð íbúa.
Til að styrkja Rauða krossinn er
hægt að senda skilaboðin „HJALP“ í
símanúmerið 1900. Hver skilaboð
kosta 2.900 kr.
Einnig er hægt að styrkja starf-
semi þeirra í gegnum smáforritin
Aur og Kass eða með bankamilli-
færslu á söfnunarreikning samtak-
anna: 0342-26-12, kt. 530269-2649.
Til að styrkja neyðaraðgerðir
UNICEF í Afganistan er hægt að
senda skilaboðin „BARN“ í síma
1900. Hver skilaboð kosta 1.900 kr.
Safna fyrir íbúa Afganistans
- Fjármagnið fer í mannúðaraðgerðir
AFP
Þjáning Fjöldi barna þjáist hvern
dag vegna átakanna í Afganistan.
Fiskistofa hefur auglýst eftir um-
sóknum um leyfi til veiða á sæbjúgum
á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1.
september. Alls verður úthlutað níu
leyfum til skipa sem stundað hafa
veiðar á sæbjúgum á síðustu þremur
fiskveiðiárum, en veiðar á sæbjúgum
eru ekki kvótasettar. Níu bátar hafa
leyfi til veiða á sæbjúgum á yfir-
standandi fiskveiðiári.
Veiðar má stunda í skilgreindum
hólfum fyrir vestan land og austan og
þegar tilteknum afla er náð á hverju
svæði eru veiðar stöðvaðar. Alls er
heimilt að veiða rúmlega 2.200 tonn í
ár og um 100 tonnum meira á næsta
ári.
Ólíkt því sem gerst hefur á undan-
förnum árum þegar afli hefur verið
umfram veiðiráðgjöf þá er afli fisk-
veiðiársins talsvert undir heildar-
ráðgjöfinni. Nú er samkvæmt yfirliti
á vef Fiskistofu búið að veiða tæplega
1.700 tonn og vantar því rúm 500 tonn
upp á heimildir ársins.
Markaðir erlendis fyrir sæbjúgu
hafa verið þungir í kórónuveirufar-
aldrinum og skýrir það einkum að
dregið hefur úr sókn, samkvæmt
upplýsingum blaðsins. Besti veiðitím-
inn miðað við afla og gæði er á haust-
in og fram undir hrygningu vor og
sumar, misjafnt eftir svæðum. Út-
gerðir hafa í ár haft samvinnu um
skipulag og stýringu veiða út frá afla-
reynslu til að koma í veg fyrir kapp-
hlaup eins og verið hafði árin á undan.
Klettur ÍS hefur komið með 456
tonn að landi, Þristur ÍS og Sæfari
ÁR 3 um 320 tonn hvor bátur og Eyji
NK með rúm 176 tonn svo aflahæstu
bátarnir séu nefndir. Mörg undan-
farin ár hefur Friðrik Sigurðsson ÁR
verið aflahæstur, en á þessu fisk-
veiðiári hefur hann komið með 48
tonn af sæbjúgum að landi. Áhersla
útgerðarinnar með þann bát hefur
verið á netaveiðar á þessu ári.
aij@mbl.is
Markaðir erfiðir
fyrir sæbjúgu
- Minni afli - Aug-
lýst eftir umsóknum
- Ekki kvótasettar
Morgunblaðið/Albert Kemp
Sæbjúgu Níu bátar hafa stundað
veiðar fyrir vestan land og austan.