Morgunblaðið - 18.08.2021, Síða 9

Morgunblaðið - 18.08.2021, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Flokkur fólksins hefur tilkynnt hverjir verði oddvitar flokksins í Norðvestur- og Norðaustur- kjördæmi fyrir komandi kosningar. Jakob Frímann Magnússon, Stuð- maður og athafnamaður, verður efstur í Norðausturkjördæmi og Eyjólfur Ármannsson lögfræðingur efstur í Norðvestur. Listarnir hafa ekki verið kynntir að öðru leyti. Í tilkynningu er m.a. haft eftir Jakobi Frímanni að hann hafi hrif- ist af stefnumálum Flokks fólksins þar sem áhersla sé lögð á að útrýma fátækt og óréttlæti hér á landi. Það sé sjálfsögð krafa að allir fái lifað mannsæmandi lífi „í einu af auð- ugustu samfélögum heims“. Auk þess að hafa spilað með Stuðmönnum til fjölda ára hefur Jakob Frímann m.a. verið sendi- fulltrúi í utanríkisþjónustunni, setið á þingi sem varaþingmaður Sam- fylkingarinnar og gegnt stöðu framkvæmdastjóra miðborgar- mála. Eyjólfur Ármannsson hefur starfað sem lögfræðingur bæði hér á landi og í Noregi, m.a. fyrir fjár- málaráðuneytið, Isavia, Nordea og DNB. Hann hefur unnið í þjóð- lendumálum fyrir landeigendur á Vestfjörðum. Þá er hann formaður samtakanna Orkan okkar. Jakob Frímann efstur hjá Flokki fólksins í Norðaustur og Eyjólfur í Norðvestur Jakob Frímann Magnússon Eyjólfur Ármannsson Helga Thorberg leikkona skipar efsta sæti Sósíal- istaflokksins í Norðvestur- kjördæmi. Í næstu sætum koma Árni Múli Jónasson, mann- réttindalögfræð- ingur og fram- kvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigurður Jón Hreinsson, véliðn- fræðingur og bæjarfulltrúi á Ísa- firði, og Aldís Schram, lögfræð- ingur og kennari. Heiðurssætið skipar Finnur Torfi Hjörleifsson, lögfræðingur á eftirlaunum. „Græðgi, taumlaus neysla og virðingarleysi við móður jörð er á góðri leið með að útrýma öllu lífi á jörðinni,“ er haft eftir Helgu Thor- berg í tilkynningu Sósíalistaflokks- ins. Listanum er líkt og öðrum stillt upp af „slembivöldum hópi meðal félaga flokksins sem unnið hefur hörðum höndum að því að endur- spegla sem skýrast vilja grasrótar flokksins,“ segir í tilkynningu. Helga efst sósíalista í Norðvestur Helga Thorberg Við lok landsþings Miðflokksins um síðustu helgi tók ný stjórn til starfa. Á fyrri hluta landsþings í júní sl. var kosið til stjórnar af flokks- mönnum en nú bætast við Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þing- flokksins, og Þorsteinn Sæmunds- son, formaður fjármálaráðs. Aðrir í stjórn eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður, Hallfríður Hólmgrímsdóttir, for- maður innra starfs, Karl Gauti Hjaltason, formaður málefnastarfs, og Bergþór Ólason, formaður upp- lýsingamála. Tveir koma nýir inn í stjórn Miðflokksins Miðflokkurinn Ný stjórn flokksins að loknu landsþingi um síðustu helgi. Fylgi Sósíalistaflokks Íslands eykst um rúmt prósentustig frá síðustu mælingu, en nærri sjö prósent segj- ast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag. Þetta kemur fram í nýjasta Þjóð- arpúlsi Gallup, sem mælir fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina. Þar segir jafnframt að litlar breytingar séu á fylgi ann- arra flokka frá því sem var í júlí, eða á bilinu 0,2-1,5 prósentustig. Þær séu því ekki tölfræðilega marktækar. Tæplega 25% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, liðlega 14% Vinstri-græna, hátt í 13% Pír- ata, rúmlega 11% Samfylkinguna, rösklega 10% Framsóknarflokkinn, liðlega 9% Viðreisn, nærri 7% Mið- flokkinn, liðlega 4% Flokk fólksins og 0,6% Frjálslynda lýðræðisflokk- inn. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír njóta því samanlagt um 49% fylgis. Rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og lið- lega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa. Tæplega 58% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja rík- isstjórnina. Spurt var í könnun Gallup: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálf- stæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórn- ina?“ Fylgi stj́órnmálaflokkanna breytist lítið Páll Matthíasson, forstjóri Landspít- ala, og Már Kristjánsson yfirlæknir skiluðu minnisblaði til heilbrigðis- ráðherra í fyrradag um stöðu mála á spítalanum í fjórðu bylgju faraldurs- ins. Sjúklingum sem liggja inni á spít- alanum vegna Covid-19 hefur fækk- að um þrjá á milli daga. Nú liggja 27 inni, 21 á bráðalegudeildum og er þriðjungur þeirra óbólusettur. Stað- an á gjörgæslu er sú sama en þar eru sex sjúklingar, fimm eru bólusettir. Fimm eru nú í öndunarvél og fjórir þeirra bólusettir. Þá hefur virkum smitum fækkað um ellefu frá því í fyrradag en 1.162 eru nú í eftirliti, þar af 233 börn. Fjórir sjúklingar eru metnir rauðir og 38 einstakling- ar gulir og þurfa nánara eftirlit. Alls hafa 77 sjúklingar lagst inn á spít- alann í fjórðu bylgjunni. Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær 103 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 927 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 2.244 einstaklingar eru í sóttkví 2020 2021 Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 150 125 100 75 50 25 0 9.682 staðfest smit alls Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020 106 100 1.162 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 38 af þeim sem eru undir eftir- liti flokkast sem gulir* 77 hafa alls lagst inn á LSHmeð Covid-19 í fjórðu bylgju faraldursins Um þriðjungur þeirra óbólusettir Um tveir þriðju bólusettir 4 flokkast sem rauðir** 27 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 21 sjúklingur er innilagður á bráðalegudeild 6 eru á gjörgæslu,fimm þeirra þurfa öndunarvélastuðning Heimild: LSH kl. 13 í gær *Aukin einkenni Covid-19. **Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti. 30. júlí 2021 154 smit Landspítali skilar inn minnisblaði - Sjúklingum fækkar á milli daga 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is BÍLASTÆÐALAUSNIR Kantsteinarnir Langhólmi og Borgarhólmi einfalda merkingu bílastæða og afmörkun akstursleiða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.