Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.2021, Blaðsíða 10
Land tækifæranna Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að taka þátt í málefnastarfi flokksins. Í dag og á morgun standa málefnanefdir flokksins fyrir opnum fundum þar sem flokksmönnum gefst kostur á að ræða og gera tillögur um áherslur flokksins í aðdraganda kosninga. Fundirnir verða haldnir í Valhöll en jafnframt verður hægt að taka þátt á Zoom forritinu. Velferðarnefnd Fjárlaganefnd Utanríkismálanefnd Atvinnuveganefnd Efnahags- og viðskiptanefnd Umhverfis- og samgöngunefnd Allsherjar- og menntamálanefnd Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Taktu þátt í að móta stefnu Sjálfstæðisflokksins 17:00-18:30 17:00-18:30 Nánari upplýsingar á xd.is Miðvikudagur, 18. ágúst Fimmtudagur, 19. ágúst 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Óli Björn segir að vissulega megi finna margt, sem betur mætti fara, en fráleitt sé að tala um sveltistefnu í því samhengi. Hins vegar þurfi að ræða ráðstöfun fjármunanna betur og þar hljóti sjónir manna að beinast sérstaklega að hlutverki Sjúkra- trygginga. Þrátt fyrir að Helgu Vöku og Óla Björn greini á um ýmislegt varðandi fjármögnun heilbrigðiskerfisins er samhljómur hjá þeim um að taka þurfi rekstur heilbrigðiskerfisins til endurskoðunar. Þar megi ótalmargt betur fara, bæði hvað varðar skipu- lag þess og innri rekstur. Varla kem- ur þó á óvart að áherslur þeirra voru um margt ólíkar. Andrés Magnússon andres@mbl.is Heilbrigðismálin verða að líkindum stóra málið í komandi kosningabar- áttu. Það er samdóma álit þeirra Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og formanns vel- ferðarnefndar Alþingis, og Óla Björns Kárasonar, þingmanns Sjálf- stæðisflokksins og formanns efna- hags- og viðskiptanefndar, en þau eru gestir Dagmála Morgunblaðs- ins, streymis á netinu, sem opið er öllum áskrifendum. Þau minna á að heilbrigðismálin séu stóreflis málaflokkur öll ár og ei- líft viðfangsefni stjórnmálanna. Af augljósum ástæðum séu þau þó fyr- irferðarmeiri nú en yfirleitt, en þar komi fleira til sögunnar en heimsfar- aldurinn. Helga Vala segir að pottur sé víða brotinn, sem megi að miklu leyti rekja til „sveltistefnu Sjálf- stæðisflokksins“ og áherslu rík- isstjórnarinnar í heilbrigðismálum. Morgunblaðið/Hallur Dagmál Þingmennirnir Óli Björn Kárason og Helga Vala Helgadóttir ræða heilbrigðismálin, sem þau segja bæði að verði stóra kosningamálið í haust. Heilbrigðiskerfið kosningamálið - Rétt að endurskoða kerfið í heild Útlit er fyrir að lundapysjuárgang- urinn sé óvenju stór í ár en fjöldi pysja sem skráðar hafa verið hjá pysjueftirlitinu í Vestmannaeyjum er á þriðja þúsund og enn á uppleið. Erpur Snær Hansen, forstöðu- maður Náttúrustofu, segir að heild- arstofninn sé enn sem komið er töluvert minni en hann var fyrir fimmtán árum. Hann hefur minnkað um 44 prósent á þessari öld en í ár minnkar stofninn minna en áður. Pysjurnar eru talsvert þyngri í ár en þær hafa verið síðustu ár. Skýr- ist það af því að ætíð er meira og aðgengilegra en það hefur verið. Ljósátan hefur verið í miklum blóma með hörfandi makríl og held- ur hún til nær landi svo lundinn þarf ekki að ferðast jafn langt til að færa ungum sínum æti. Í ár virðist einnig sem sandsílin hafi tekið við sér. Eru þau enn næringarmeiri en ljósátan, sem lundinn hefur lifað á síðustu ár. Það sem hefur reynst sílunum erfitt er hækkandi sjávarhiti og síðbúinn þörungablómi. Þyngsta pysjan sem mælst hefur í ár er 462 grömm og líklega sú þyngsta frá upphafi mælinga. Erp- ur bendir á að lífslíkur pysja sem ná yfir 300 grömmum séu fimmfalt meiri en þeirra sem vega aðeins 250 grömm. Hann býst því við litlum sem engum afföllum úr þessum pysjuárgangi í vetur. Það munu þó líða fimm ár þangað til pysjurnar sem fæðast núna koma sem nýliðar inn í varpstofninn, enda verða pysj- ur ekki kynþroska fyrr en fimm ára. Gígja Óskarsdóttir er umsjónar- maður pysjueftirlitsins í Vest- mannaeyjum. Hún segir að pysju- tímabilið sé vanalega um sex vikna langt og því reikni þau með að toppnum sé ekki náð. Miðað við at- huganir Náttúrustofu fyrr í sumar gerir hún ráð fyrir að pysjurnar verði í kringum 7.000 í lok tímabils- ins, þótt ekkert sé öruggt í þeim efnum. Pysjurnar virðast vera komnar á kreik á réttum tíma í ár en frá árinu 2015, þegar lundastofninn byrjaði að taka við sér á ný, hafa þær oftast verið að koma fram í byrjun sept- ember. Sú staðreynd sýni fram á að nóg sé af æti en það endurspeglast líka í þyngd pysjanna. Áður tók Pysjueftirlitið í Vest- mannaeyjum við pysjum sem fólk fann, vigtaði þær, vængmældi og skrásetti, en vegna kórónuveiru- faraldursins var horfið frá því fyrir- komulagi og fólk sér nú um að vigta pysjurnar sjálft og skrá þær inn í gagnagrunn pysjueftirlitsins á net- inu. Gígja segir að það líti út fyrir að þetta sé þægilegra fyrir alla og því verður áfram stuðst við þetta fyrirkomulag. thorab@mbl.is Pysjurnar feitari og fyrr á ferðinni í Eyjum í ár - Stofninn minnk- ar minna en áður Frelsi Þegar búið er að vigta og skrásetja pysjurnar er þeim hleypt út á haf.Fundir Hér má sjá tvær ungar Eyjastúlkur halda á pysjum sem þær fundu. Menning Hér má sjá krakka á öllum aldri búa sig undir að sleppa pysjunum. Reynsla Gott að setja upp hanska.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.