Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 13
Fyrir fimm árum hóf hópur ungs hæfi- leikafólks nám í sjúkra- þjálfun. Eftir að hafa lokið ströngu þriggja ára BS-námi, tóku flest- ir ákvörðun um að halda áfram og ljúka tveggja ára stífu mastersnámi sem gefur rétt „til að kalla sig sjúkraþjálfara og starfa sem slíkur hér á landi,“ eins og segir í reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkra- þjálfara. Ákvarðanir ungs fólks um að leggja á sig erfitt nám endurspegla löngun til að leggja hönd á plóginn við að bæta hreyfigetu, færni og heilsu okkar allra, en um leið koma í veg fyrir eða „draga úr afleiðingum áverka, álags- einkenna, sjúkdóma, öldrunar og lífs- stíls,“ svo vitnað sé í lýsingu á náminu. Sem sagt: Auka lífsgæði og heilbrigði landsmanna. Sjálfsagt hafa margir nemarnir stefnt að því í upphafi að vinna innan veggja ríkisrekna heilbrigðiskerfisins – á sjúkrahúsum, – aðrir horft til þess að ganga til liðs við sjálfstæðar end- urhæfingarstofnanir og enn aðrir talið að þekking og kraftar þeirra nýtist best hjá sjálfstætt starfandi fyr- irtækjum í sjúkraþjálfun. Að minnsta kosti einn átti sér þann draum og opna eigin stofu úti á landi og hafði þegar gert ráðstafanir í hús- næðismálum. En svo var leikregl- unum breytt. Sviptir réttindum Nokkrum mánuðum fyrir útskrift breyttu heilbrigðisyfirvöld reglugerð um endur- greiðslu Sjúkratrygg- inga Íslands vegna sjúkraþjálfunar. Endur- greiðslan er samkvæmt gjaldskrá sem stofnunin setur einhliða, en ekki hafa tekist samningar milli sjúkra- þjálfara og Sjúkratrygginga. Breyt- ingin lætur kannski ekki mikið yfir sér, en gjörbreytir forsendum ungra sjúkraþjálfara. Skilyrði fyrir endur- greiðslu sjúklings er að sjúkraþjálf- arinn hafi starfað í að minnsta kosti tvö ár sem sjúkraþjálfari, í að minnsta kosti 80% starfshlutfalli, eftir löggild- ingu. Sem sagt: Enginn viðskiptavinur þeirra sjúkraþjálfara sem nýlega hafa lokið námi, á rétt á endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum næstu tvö árin. Eða: Allir þeir sem ákveða að nýta sér þjónustu nýútskrifaðra, sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara eru sviptir sjúkratryggingum. Við getum einnig stillt þessu upp með eftirfarandi hætti: Með reglu- gerðinni er verið að skerða atvinnu- réttindi sjálfstætt starfandi sjúkra- þjálfara í tvö ár. Eftir langt og strangt fimm ára nám, þar sem gefin voru fyr- irheit um full starfsréttindi – atvinnu- réttindi – er jafnræðisreglan þver- brotin og reglan um meðalhóf í stjórnarathöfnum er rykfallið og merkingarlaust hugtak í djúpum skúffum kerfisins. Staða talmeinafræðinga og skjól- stæðinga þeirra er svipuð en er þó á grunni rammasamnings milli þeirra og Sjúkratrygginga. Spurning er hvort talmeinafræðingar hafi mátt sín mikils í þeim „samningaviðræðum“. Talmeinafræðingar eru fáliðaðir og hundruð barna og unglinga þurfa að bíða í 18 til 36 mánuði eftir að fá nauð- synlega þjónustu. Það er eitthvað gal- ið við það að nýútskrifuðum talmeina- fræðingi sem hefur fengið starfsleyfi Landlæknis, skuli meinað að vinna sjálfstætt og komið sé í veg fyrir að skjólstæðingar hans njóti réttinda til endurgreiðslu. Bíddu í tvö ár segir kerfið. Og svo eru einhverjir hissa ef endurnýjun á sér ekki stað. Barátta að engu gerð Því miður eru dæmin um sjúkra- þjálfarana og talmeinafræðingana ekki þau einu um hvernig hægt og bít- andi er verið að grafa undan sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttum, tak- marka atvinnufrelsi þeirra og hafa réttindi af sjúkratryggðum. Staða sjálfstætt starfandi sérfræðilækna er lítið skárri og hægt en örugglega er verið að hrekja þá út úr sameiginlegu tryggingakerfi okkar allra. Og þar með verður til tvöfalt heilbrigðiskerfi með einkareknum sjúkratryggingum. Flest verðum við að sætta okkur við heilbrigðisþjónustu innan ríkisrekna tryggingakerfisins, með tilheyrandi biðlistum. Efnameira fólk kaupir þjónustuna beint eða í gegnum eigin tryggingar, af sérfræðilæknum, sjúkraþjálfurum og talmeinafræð- ingum. Áratuga barátta fyrir því að allir eigi jafnan og greiðan aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu óháð efnahag, verður að engu gerð. Ekki uppörvandi skilaboð Engu er líkara en að heilbrigðisyf- irvöld eigi erfitt með að skilja að heil- brigðisvísindin eru þekkingariðnaður, sem nærist á fjölbreytileika, ekki síst í rekstrarformi, nýliðun og framsæk- inni hugsun. Skilaboðin sem stjórn- völd senda ungu fólki, sem hugar að því að leggja fyrir sig langt og strangt nám og verða læknar, hjúkrunarfræð- ingar, sjúkraþjálfarar, líffræðingar, lyfjafræðingar, talmeinafræðingar eða sálfræðingar, eru ekki uppörv- andi: Þið getið alltaf átt von á því að reglum verði breytt, athafnafrelsi ykkar skert og réttindi skjólstæðinga ykkar að engu höfð. Og allra síst höf- um við sérstakan áhuga á að auka starfsmöguleika ykkar utan ríkisrek- ins heilbrigðiskerfisins. En þetta unga fólk mun ekki láta hugfallast. Það veit sem er að heil- brigðisstarfsmenn eru alþjóðlegt vinnuafl. Heimurinn er þeirra starfs- vettvangur. Þegar heilbrigðisyfirvöld átta sig á þessari einföldu staðreynd þá opnast vonandi augun fyrir því að við Íslendingar erum í harðri al- þjóðlegri samkeppni um hæfileikaríkt og vel menntað starfsfólk. Þá er von til þess að hugað verði betur að at- vinnufrelsi og jafnræði allra heilbrigð- isstétta. P.s. Reglugerð um endurgreiðslu vegna þjónustu nýútskrifaðra sjúkraþjálfara rennur út 31. ágúst næstkomandi. Ráðherra getur leiðrétt ranglætið með því að gera ekkert en senda Sjúkratryggingum skilaboð um að breyta rammasamningi talmeina- fræðinga og afnema tveggja ára rang- lætið sem þar ríkir. Eftir Óla Björn Kárason »Heilbrigðisyfirvöld eiga erfitt með að skilja að heilbrigðisvís- indin eru þekkingariðn- aður, sem nærist á fjöl- breytileika, nýliðun og framsækinni hugsun Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna – réttindi sjúkratryggðra 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Vestmannaeyjar Innsiglingin til Eyja getur verið varasöm í bræluveðri en er óneitanlega falleg frá þessu sjónarhorni á björtum sumardegi. Skemmtiferðaskip á leið til hafnar. Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.