Morgunblaðið - 18.08.2021, Síða 13
Fyrir fimm árum hóf
hópur ungs hæfi-
leikafólks nám í sjúkra-
þjálfun. Eftir að hafa
lokið ströngu þriggja
ára BS-námi, tóku flest-
ir ákvörðun um að halda
áfram og ljúka tveggja
ára stífu mastersnámi
sem gefur rétt „til að
kalla sig sjúkraþjálfara
og starfa sem slíkur hér
á landi,“ eins og segir í reglugerð um
menntun, réttindi og skyldur sjúkra-
þjálfara.
Ákvarðanir ungs fólks um að leggja
á sig erfitt nám endurspegla löngun til
að leggja hönd á plóginn við að bæta
hreyfigetu, færni og heilsu okkar
allra, en um leið koma í veg fyrir eða
„draga úr afleiðingum áverka, álags-
einkenna, sjúkdóma, öldrunar og lífs-
stíls,“ svo vitnað sé í lýsingu á náminu.
Sem sagt: Auka lífsgæði og heilbrigði
landsmanna.
Sjálfsagt hafa margir nemarnir
stefnt að því í upphafi að vinna innan
veggja ríkisrekna heilbrigðiskerfisins
– á sjúkrahúsum, – aðrir horft til þess
að ganga til liðs við sjálfstæðar end-
urhæfingarstofnanir og enn aðrir talið
að þekking og kraftar þeirra nýtist
best hjá sjálfstætt starfandi fyr-
irtækjum í sjúkraþjálfun. Að minnsta
kosti einn átti sér þann draum og
opna eigin stofu úti á
landi og hafði þegar
gert ráðstafanir í hús-
næðismálum.
En svo var leikregl-
unum breytt.
Sviptir réttindum
Nokkrum mánuðum
fyrir útskrift breyttu
heilbrigðisyfirvöld
reglugerð um endur-
greiðslu Sjúkratrygg-
inga Íslands vegna
sjúkraþjálfunar. Endur-
greiðslan er samkvæmt gjaldskrá
sem stofnunin setur einhliða, en ekki
hafa tekist samningar milli sjúkra-
þjálfara og Sjúkratrygginga. Breyt-
ingin lætur kannski ekki mikið yfir
sér, en gjörbreytir forsendum ungra
sjúkraþjálfara. Skilyrði fyrir endur-
greiðslu sjúklings er að sjúkraþjálf-
arinn hafi starfað í að minnsta kosti
tvö ár sem sjúkraþjálfari, í að minnsta
kosti 80% starfshlutfalli, eftir löggild-
ingu.
Sem sagt: Enginn viðskiptavinur
þeirra sjúkraþjálfara sem nýlega hafa
lokið námi, á rétt á endurgreiðslu frá
Sjúkratryggingum næstu tvö árin.
Eða: Allir þeir sem ákveða að nýta sér
þjónustu nýútskrifaðra, sjálfstætt
starfandi sjúkraþjálfara eru sviptir
sjúkratryggingum.
Við getum einnig stillt þessu upp
með eftirfarandi hætti: Með reglu-
gerðinni er verið að skerða atvinnu-
réttindi sjálfstætt starfandi sjúkra-
þjálfara í tvö ár. Eftir langt og strangt
fimm ára nám, þar sem gefin voru fyr-
irheit um full starfsréttindi – atvinnu-
réttindi – er jafnræðisreglan þver-
brotin og reglan um meðalhóf í
stjórnarathöfnum er rykfallið og
merkingarlaust hugtak í djúpum
skúffum kerfisins.
Staða talmeinafræðinga og skjól-
stæðinga þeirra er svipuð en er þó á
grunni rammasamnings milli þeirra
og Sjúkratrygginga. Spurning er
hvort talmeinafræðingar hafi mátt sín
mikils í þeim „samningaviðræðum“.
Talmeinafræðingar eru fáliðaðir og
hundruð barna og unglinga þurfa að
bíða í 18 til 36 mánuði eftir að fá nauð-
synlega þjónustu. Það er eitthvað gal-
ið við það að nýútskrifuðum talmeina-
fræðingi sem hefur fengið starfsleyfi
Landlæknis, skuli meinað að vinna
sjálfstætt og komið sé í veg fyrir að
skjólstæðingar hans njóti réttinda til
endurgreiðslu. Bíddu í tvö ár segir
kerfið. Og svo eru einhverjir hissa ef
endurnýjun á sér ekki stað.
Barátta að engu gerð
Því miður eru dæmin um sjúkra-
þjálfarana og talmeinafræðingana
ekki þau einu um hvernig hægt og bít-
andi er verið að grafa undan sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstéttum, tak-
marka atvinnufrelsi þeirra og hafa
réttindi af sjúkratryggðum. Staða
sjálfstætt starfandi sérfræðilækna er
lítið skárri og hægt en örugglega er
verið að hrekja þá út úr sameiginlegu
tryggingakerfi okkar allra. Og þar
með verður til tvöfalt heilbrigðiskerfi
með einkareknum sjúkratryggingum.
Flest verðum við að sætta okkur við
heilbrigðisþjónustu innan ríkisrekna
tryggingakerfisins, með tilheyrandi
biðlistum. Efnameira fólk kaupir
þjónustuna beint eða í gegnum eigin
tryggingar, af sérfræðilæknum,
sjúkraþjálfurum og talmeinafræð-
ingum. Áratuga barátta fyrir því að
allir eigi jafnan og greiðan aðgang að
nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu
óháð efnahag, verður að engu gerð.
Ekki uppörvandi skilaboð
Engu er líkara en að heilbrigðisyf-
irvöld eigi erfitt með að skilja að heil-
brigðisvísindin eru þekkingariðnaður,
sem nærist á fjölbreytileika, ekki síst í
rekstrarformi, nýliðun og framsæk-
inni hugsun. Skilaboðin sem stjórn-
völd senda ungu fólki, sem hugar að
því að leggja fyrir sig langt og strangt
nám og verða læknar, hjúkrunarfræð-
ingar, sjúkraþjálfarar, líffræðingar,
lyfjafræðingar, talmeinafræðingar
eða sálfræðingar, eru ekki uppörv-
andi: Þið getið alltaf átt von á því að
reglum verði breytt, athafnafrelsi
ykkar skert og réttindi skjólstæðinga
ykkar að engu höfð. Og allra síst höf-
um við sérstakan áhuga á að auka
starfsmöguleika ykkar utan ríkisrek-
ins heilbrigðiskerfisins.
En þetta unga fólk mun ekki láta
hugfallast. Það veit sem er að heil-
brigðisstarfsmenn eru alþjóðlegt
vinnuafl. Heimurinn er þeirra starfs-
vettvangur. Þegar heilbrigðisyfirvöld
átta sig á þessari einföldu staðreynd
þá opnast vonandi augun fyrir því að
við Íslendingar erum í harðri al-
þjóðlegri samkeppni um hæfileikaríkt
og vel menntað starfsfólk. Þá er von
til þess að hugað verði betur að at-
vinnufrelsi og jafnræði allra heilbrigð-
isstétta.
P.s.
Reglugerð um endurgreiðslu vegna
þjónustu nýútskrifaðra sjúkraþjálfara
rennur út 31. ágúst næstkomandi.
Ráðherra getur leiðrétt ranglætið
með því að gera ekkert en senda
Sjúkratryggingum skilaboð um að
breyta rammasamningi talmeina-
fræðinga og afnema tveggja ára rang-
lætið sem þar ríkir.
Eftir Óla
Björn Kárason »Heilbrigðisyfirvöld
eiga erfitt með að
skilja að heilbrigðisvís-
indin eru þekkingariðn-
aður, sem nærist á fjöl-
breytileika, nýliðun og
framsækinni hugsun
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
Atvinnufrelsi heilbrigðisstarfsmanna –
réttindi sjúkratryggðra
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021
Vestmannaeyjar Innsiglingin til Eyja getur verið varasöm í bræluveðri en er óneitanlega falleg frá þessu sjónarhorni á björtum sumardegi. Skemmtiferðaskip á leið til hafnar.
Eggert