Morgunblaðið - 18.08.2021, Page 18

Morgunblaðið - 18.08.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 ✝ Steingrímur Hálfdanarson fæddist 13. apríl 1949 á Vattarnesi við Reyðarfjörð. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði 6. ágúst 2021. Foreldrar hans voru Guðbjörg Daníelsdóttir, f. 16.2. 1915 á Kol- múla við Reyðarfjörð, d. 1.1. 2000, og Hálfdan Þorsteinsson, f. 27.9. 1904 á Vattarnesi við Reyðarfjörð, d. 22.7. 1981. Steingrímur var fimmti af sex systkinum; Guðný, f. 26.2. 1934, d. 13.6. 2019, Helena, f. 23.6. 1935, d. 22.4. 2014, Sig- urbjörg, f. 30.7. 1942, d. 10.3. 2007, Þorsteinn, f. 12.10. 1945, og Daníel, f. 2.8. 1954. Hann kvæntist 4.5. 1974 Jó- hönnu Þórunni Ingimarsdóttur kennara, f. 18.12. 1947. For- eldrar hennar voru María Hannesdóttir, f. 5.4. 1902, d. störf við fjarskiptastöðina í Gufunesi og vann þar allan sinn starfsferil eða frá 1969 fram til starfsloka árið 2019. Hann sótti fjölda námskeiða og ráðstefna um fjarskipti og starfaði í alþjóðlegum nefndum varðandi flugfjarskipti á Norður-Atlantshafinu, meðal annars var hann í miklum sam- skiptum við félaga sína á Ír- landi. Allt frá barnæsku var Stein- grímur mikill íþróttamaður og æfði bæði handbolta og fót- bolta og var mikill keppn- ismaður. Hann spilaði með meistaraflokki Hauka í fótbolta fram yfir þrítugt sem þótti gott á þeim tíma. Hann tefldi og spilaði mikið á spil alla tíð og var í hópi með félögum sínum sem spiluðu brids á veturna. Hann spilaði golf síðustu þrjá áratugina með ýmsum hópum í Keili. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 18. ágúst 2021, klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóð- félaginu er útförin aðeins fyrir nána ættingja og vini en streymt verður frá útförinni á: https://bit.ly/3CLtx8d Virkan hlekk á streymið má finna á: https://mbl.is/andlat 4.6. 1992, og Ingi- mar Magnús Björnsson, f. 5.7. 1904, d. 14.2. 1967. Þau eignuðust tvær dætur: Maríu Hlín tölvunar- fræðing, f. 17.1. 1974, sonur hennar er Sindri Máni Jón- asson, f. 4.9. 2004; og Hönnu Stein- unni atferlis- fræðing, f. 15.2. 1981, gift Eyj- ólfi Daníel Jóhannssyni vélsmiði, f. 20.4. 1979, og eru synir þeirra Hilmir Snær, f. 30.12. 2010, og Ísak Elí, f. 14.10. 2015. Steingrímur og Jóhanna bjuggu lengst af í Grafarvogi þar sem þau byggðu sér hús 1984 í Logafold 168. Þau skildu í nóvember 2015. Síðustu árin bjó Steingrímur í Hafnarfirði. Steingrímur útskrifaðist úr Flensborgarskólanum og gekk í Loftskeytaskólann. Eftir að hafa lokið prófi þaðan hóf hann Í dag kveðjum við pabba okkar sem fór allt of fljótt og okkur langaði því að minnast hans stutt- lega. Pabbi var góður pabbi. Sem vaktavinnumaður var hann til staðar á ólíkum tímum sólar- hringsins sem gerði það að verk- um að samverustundir við hann gátu verið að morgni, um miðjan dag eða kvöldi, allt eftir því hvernig vaktaplanið og svefnrút- ínan var. Okkur systrum er til að mynda minnisstætt að ef hann var heima í hádeginu á virkum degi þá eldaði hann gjarnan gell- ur handa okkur. Hann kenndi okkur á skíði þó svo hann kynni ekki á þau sjálfur, kenndi okkur á skauta á Rauðavatni og fór oft á tíðum með okkur í sund. Á sumrin fórum við oft í sumar- bústað á Apavatni þar sem hann fór með okkur á árabát, mini-golf og sánu. Hann spilaði alla tíð mik- ið við okkur bæði borðspil og spil, lagði kapal og púslaði með okkur. Pabbi var einstaklega hjálp- samur og vildi allt fyrir okkur gera. Hann var til í að skutlast með okkur bæinn þveran og endi- langan hvenær sem var, mála veggi eða pússa parket. Hann hafði sterkar skoðanir á ýmsu en lét þó margt liggja milli hluta. Hann tók lífinu með einstakri ró og var lítið fyrir að velta sér upp úr fortíðinni, hún var liðin. Hann horfði töluvert á enska boltann, en þegar úrslitin voru kunn þá var lítil ástæða til að horfa á end- ursýningu eða greiningu á leikn- um. Hann var heldur ekkert að láta ýmis smáatriði pirra sig, eins og t.d. ef það var ekki til mjólk á Cheerios-ið þá fékk hann sér bara epladjús út á. Pabbi var góður sögumaður hvort sem það voru frásagnir af ævintýralegum draumförum eða sögur úr daglegu lífi. Hann hafði góðan húmor og við gátum hlegið að alls kyns bröndurum sem hann hafði heyrt. Eftir að mamma og pabbi skildu flutti pabbi í Hafnarfjörð- inn. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann kæmi oft við hjá okkur systrum. Heimsóknirnar voru yf- irleitt stutt innlit, bara einn kaffi eða kókglas, tók stuttlega púlsinn á liðinu, fékk sér kannski eina brauðsneið og svo var hann rok- inn. Við kveðjum pabba með mikl- um söknuði en minning hans lifir í hug okkar og hjarta. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Nú sit ég hérna’ er sólin skín og sál mín full af trega leitar hljóðum hug til þín, sem hvarfst svo skyndilega. Þú fylltir líf mitt ást og yl, svo aldrei bar á skugga. Hvort á nú lífið ekkert til sem auma sál má hugga? Það friðar, gleður, léttir lund og lokar hjartans undum, að eiga’ í hug sér helgan fund, með horfnum ævistundum. Myndin þín hún máist ei mér úr hug né hjarta. Hún á þar sæti uns ég dey og auðgar lífið bjarta. (Ágúst Böðvarsson) María Hlín Steingrímsdóttir og Hanna Steinunn Stein- grímsdóttir. Það var sólríkur og fallegur dagur til ferðalaga, dagurinn sem Steingrímur bróðir minn fór til himnaríkis þar sem hann hitti fyr- ir systur okkar þrjár sem allar áttu stóran þátt í uppeldi hans. Systurnar sem fannst hann alltaf vera svo ljúfur, þægur og skemmtilegur. Og þannig var hann – rólegur, yfirvegaður og metnaðarfullur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Þegar Steingrímur var nokk- urra mánaða veiktist mamma okkar af berklum og fór suður á Vífilsstaði þar sem hún var í eitt og hálft ár. Ég fór með henni en Steingrímur varð eftir hjá systr- unum sem þá voru unglingar. Þær sögðu oft söguna af því að þær hefðu alið hann upp og þess vegna væri hann svona vel heppn- aður, annað en villingarnir sem þær töldu okkur hina bræðurna vera. Síðar var fjölskyldan sam- einuð, í faðmi foreldranna, í Hafn- arfirðinum á Selvogsgötunni þar sem við slitum barnsskónum í skjóli Hamarsins með öllum þeim ævintýrum sem honum fylgdi. Eitt sumar vorum við tveir heima, ég og Steingrímur, þegar mamma og pabbi fóru austur að Kolmúla, ég unglingur og hann barn. Hann sagði síðar að það sumar hefði hann lifað á fiskibollum í tómat- sósu og ég hefði látið hann vaska upp á hverju kvöldi, ég segi auð- vitað að ég hafi kennt honum hús- verkin og skilað honum þannig út í lífið. Steingrímur fór austur nokkur sumur og var í sveit hjá Kristínu og Steina á Marbakka, hann var ekkert mikið að tala um þann tíma en hann sagði mér löngu síðar að hann hefði lent í sjávarháska úti á miðjum Reyðarfirði. Daginn eftir að Steingrímur dó hitti ég mann- inn sem bjargaði honum. Hann sagði mér söguna og bað mig að hafa hana rétta ef ég myndi segja frá henni. Hann sagði að það hefði verið aðdáunarvert hvað Stein- grímur var yfirvegaður í þessum aðstæðum sem þeir voru í en þeir höfðu verið að koma frá Eskifirði á leið út á Vattarnes þegar vélin drap á sér. Magnús Jón Sig- björnsson þá 16 ára og Steingrím- ur níu ára komu bátunum aftur í gang en það vildi ekki betur til en svo að Steingrímur féll útbyrðis. Á nokkrum mínútum tókst Magn- úsi að ná Steingrími upp en það vildi honum til happs að hann var flugsyndur og báðir voru þeir yf- irvegaðir og gerðu allt rétt í þess- um aðstæðum. Þegar heim var komið og þeir sögðu frá því sem gerðist sagði Steini: „Þetta hefði getað farið verr.“ Aldrei var talað um þetta aftur og lífið á nesinu hélt áfram eins og ekkert hefði ískorist.Steingrímur var vin- margur og vinsæll, flottur íþróttamaður sem lagði sig alltaf allan fram. Í gegnum fótboltann kynntist hann frábærum félögum sem áttu eftir að fylgja honum út lífið. En það hefur verið aðdáun- arvert að fylgjast með þessari vináttu sem þeir félagarnir hafa átt allan þennan tíma. Steingrímur var fjölskyldu- maður og stelpurnar hans og Jó- hönnu, þær María Hlín og Hanna Steinunn, voru honum allt og honum leiddist ekki stundirnar sem hann átti með afastrákunum sínum síðustu árin. Við bræðurnir ætluðum að fara að spila meira saman brids en það verður að bíða betra tíma. Elsku María Hlín, Hanna Steinunn og fjölskyldur, hugur okkar er hjá ykkur. Þorsteinn Hálfdanarson. Kæri vinur, ég verð nú bara að segja: Nú fórstu yfir strikið! Mig langar til að kveðja Steingrím, vin minn. Við kynntumst í Lækj- arskóla Hafnarfirði í 7 ára bekk og sátum saman fyrstu árin. Þú komst læs og skrifandi í skólann, ég man eftir því þegar við tókum próf að þú varst alltaf búinn lang- fyrstur og oftast var einkunnin tíu. Við vorum alltaf í D-bekkn- um, skólastjórinn kallaði þig á fund og vildi færa þennan flug- gáfaða strák upp í A-bekk, þú sagðir bara nei, ég vil vera með mínum vinum. Þú varst alveg ein- stakur vinur, peppaðir mig upp í allt, allar þær íþróttir sem hægt var að fara í, allar útihátíðirnar, öll sveitaböllin, allar keppnisferð- irnar með Haukum í fótboltanum og svo allt golfið. Mér finnst það mikill heiður að hafa fengið að kynnast þér svona snemma á lífs- leiðinni. Það verður nú ekki sam- ur hér eftir nýársdagurinn hjá okkur Röggu þar sem þú hefur verið fastur gestur hjá okkur undanfarin ár, við borðað saman og haft það gott. Elsku Steinki minn, þín er sárt saknað Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Þinn vinur Steini P. Þorsteinn Auðunn Pétursson. Góður félagi okkar er fallinn frá langt um aldur fram. Leiðir okkar lágu saman í fótboltanum í Haukum á gamla malarvellinum á Hvaleyrarholti, seinna meir fengum við Hafnarfjarðarbæ til liðs við okkur um endurbætur og tyrfingu þar sem við lögðum allir hönd á plóg. Með þessum endur- bótum gátum við boðið upp á góð- ar vallaraðstæður, enda komnir upp í efstu deild. Steingrímur var mjög liðtækur bæði í fótbolta og handbolta, lipur og léttur og smeygði sér í allar glufur og skildi andstæðingana ringlaða eftir. Bridge var svo spilað milli æf- inga og keppni á knattspyrnuvell- inum sem Steingrímur hafði for- göngu um, keyptir voru sagnastokkar og keppni hrundið af stað. Spilamennskan tekin föstum tökum frá hausti fram á vor, sem hélt hópnum vel saman þar til boltinn fór að rúlla að nýju. Síðustu ár tók golfið okkur fé- lagana heljartökum. Eins og fyrri daginn var Steingrímur í forystu og sá um Haukamótaröðina eins og hún var nefnd, keppnisstjóri og skrásetjari. Farnar voru keppnisferðir að Hamri og í Út- hlíð í boði Þráins, þar sem haldið var lokahófið lengi vel. Einnig til útlanda, m.a. Árósa þar sem gist var hjá Óla Jó og Guðnýju, og Ír- lands til Rorys vinar Steingríms, svo einhverra sé getið. Minning um góðan dreng lifir. Haukafélagarnir, Pétur, Guðjón, Ólafur, Björn, Sigurður, Arnór og Þráinn. Steingrímur Hálfdanarson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNA AÐALSTEINSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð 12. ágúst. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 20. ágúst klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Bestu þakkir til starfsfólks á Reynihlíð fyrir góða umönnun. Marý Hörgdal Þórðardóttir Helgi Friðjónsson Hrafnhildur Gunnarsdóttir Guðrún Rósa Friðjónsdóttir Óskar A. Óskarsson Pétur Viðar Friðjónsson Sigríður D. Friðjónsdóttir Sveinn Haraldsson og ömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURRÓS INGILEIF ÁKADÓTTIR frá Brekku á Djúpavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu miðvikudaginn 11. ágúst. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 19. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður streymt á www.selfosskirkja.is Rögnvaldur Gísli Einarsson Guðmundur Ingi Einarsson Vilfríður Rós Víkingsdóttir Áslaug Sigrún Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN GUÐVARÐARSON, lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 12. ágúst. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 20. ágúst klukkan 14. Athöfninni verður streymt á https://www.youtube.com/watch?v=fXxDWuGEdWM Ingibjörg Einarsdóttir María Hreinsdóttir Benedikt Hreinsson Andrea Rafnar Sigurlaug Hreinsdóttir Sigríður Sól Hreinsdóttir Smári Eiríksson Einar Örn Hreinsson Helga Hreinsdóttir Jan Muller Heiður Hreinsdóttir Þorsteinn Erlingsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, KRISTINN K. ÓLAFSSON, áður til heimilis á Kristnibraut 31, lést 12. ágúst á hjúkrunarheimilinu Mörk. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju mánudaginn 23. ágúst klukkan 13. Súsanna Kristinsdóttir Kristinn Jón Kristinsson Stefanía S. Ólafsdóttir Anna Steindórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Anna Hulda Norðfjörð Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ELÍAS INGJALDUR HELGASON, Hraunstíg 1, Bakkafirði, andaðist laugardaginn 14. ágúst á sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju laugardaginn 21. ágúst klukkan 13. Athöfninni verður streymt: https://www.facebook.com/events/156940159807493/ Freydís Sjöfn Magnúsdóttir Helgi Magnús Lisa Hafþór Una Víðir Ásdís Stefnir Hildur og barnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, áður búsett á Brimhólabraut 13, Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum föstudaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 20. ágúst klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Streymt verður frá athöfninni á vef Landakirkju: https://www.landakirkja.is Hjálmar Guðmundsson Pálína Úranusdóttir Ólafur Guðmundsson Hrefna Guðjónsdóttir Sigurjón Guðmundsson Guðni Guðmundsson Þórdís Njarðardóttir Sigrún Guðmundsdóttir ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.