Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.08.2021, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er kynnt lýsing að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Hlíðarendakot – Lýsing aðalskipulagsbreytingar Lagt er til að gerð verði breyting á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024. Breytingin felur í sér að landnotkun á ca 30,0 ha svæði á jörðinni Hlíðarendakot, verður breytt í annars vegar íbúðabyggð (ÍB) og hins vegar verslun og þjónustu (VÞ). Ofangreind skipulagslýsing verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, mánudaginn 23. ágúst 2021 kl. 10:00–12:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við skipulagslýsinguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 6. september 2021. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Strönd 2 lóð – Deiliskipulagstillaga Skipulagið gerir ráð fyrir íbúðarhúsi, gesta- eða aðstöðuhúsi og geymslu. Mænishæð íbúðar-, gesta- eða aðstöðuhúss verður 5,0 m en 7,0 m fyrir geymsluhús. Hámarksbyggingarmagn er 200 m2. Ofangreinda deiliskipulagstillögu er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 23. ágúst nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 29. september nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Ritlistasmiðja kl. 12.45-14.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Samsöngur kl. 13.30-14.15. Opin Listasmiðja kl. 13-15.30. Kaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Brids í Jónshúsi kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Styttri ganga kl. 13.30. Opin vinnustofa 13-16. Korpúlfar Morgunleikfim kl. 9. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10, gengið frá Borgum, þrír styrkleikahópar. Hádegisverður kl. 11.30 til 12.30 og kaffihús Borgardætra opnar kl. 14.30 í dag. Sóttvarnir í hávegum hafðar. Félagsvist og skák fellur niður í dag af öryggisástæðum. Opið frá kl. 8 til 16 í Borgum í dag. Minnum á töfranámskeiðið kl. 12.30 í Borgum á morgun, fimmtudag. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á postulíns- málun í handverksstofunni okkar kl. 9, kl. 10.30 ætlum við síðan að hlusta á hlaðvarp. Við endum svo daginn á fróðlegu og skemmtilegu ljósmyndanámskeiði í setustofunni okkar. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, göngutúr kl. 10, handa- vinna og samvera kl. 13. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA með morgun- !$#"nu ✝ Valsteinn Víðir Guðjónsson fæddist í Reykjavík 23. desember 1935. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 6. ágúst 2021. Foreldrar hans voru Guðjón Valdi- mar Þorsteinsson, f. 1906, d. 1996, og Steinunn Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. 1900, d. 1985, rithöfundur. Bróðir Valsteins Víðis var Helgi Hörður, f. 1933, d. 2011. Eiginkona Valsteins var Kristín Guðmundsdóttir, f. 1935, d. 2020. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson, f. 1903, d. 1993, og Þóra J. Magnúsdóttir, f. 1910, d. 1976. Börn Valsteins eru 1) Laufey, f. 1957, maki Þorsteinn G. Egg- ertsson, f. 1956. Börn þeirra eru Hákon Þorsteinsson, f. 1979, Snorri Þorsteinsson, f. 1983, Eggert Þorsteinsson, f. 1988, Guðjón Þorsteinsson, f. 1991. 2) Þóra Björk, f. 1962, maki Asima- kis Tsoukalas, f. 1953. Börn þeirra eru Valsteinn Konstantin Tsoukalas, f. 1990, og Kristín Chrysoula Tsoukala, f. 1991. 3) Ásbjörn Unnar f. 1965. Valsteinn hóf sjómennsku að- eins 16 ára gamall sem háseti á á mb. Ernu árið 1951 og í nokkur ár var hann háseti á Ingólfi Arn- arsyni, Jóni Þor- lákssyni og fleiri togurum hjá Bæj- arútgerð Reykja- víkur. Árið 1959 út- skrifaðist hann með farmannapróf frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík og í framhaldi af því vann hann áfram sem stýri- maður hjá Bæj- arútgerðinni til ársins 1962. Hann var stýrimaður á mörgum skipum um árabil þ. á. m. ms. Vatnajökli, ms. Langá, ms. Selá, mb. Fák, mb. Faxa og mb. Auð- uni til 1971. Hann var síðan skip- stjóri á skipum Jóns Franklíns, ms. Vestra, ms. Norðra og ms. Suðra til ársins 1976. Á árunum 1976 til 1981 var hann stýrimað- ur og afleysingaskipstjóri hjá skipafélögunum Víkum hf. og Hafskipi hf. Hann var skipaverkstjóri og yfirverkstjóri í landi hjá Haf- skipi hf. í nokkur ár og fór einn- ig sem lestunarstjóri og leið- sögumaður erlendra leiguskipa á ströndina og lestunarstjóri er- lendra leiguskipa erlendis. Þegar hann kom í land vann hann um nokkurra ára skeið við fiskeldi og sem verkstjóri hjá Sveinbirni Runólfssyni. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku faðir okkar. Þú sem passaðir alltaf upp á fylla líf okkar af hamingju og gleði, með skemmtilegu sögunum þínum, með skondna brosinu þínu og með heimsóknum þínum hing- að til Grikklands þar sem þú fylltir heimilið okkar af þínum sterka og hlýja persónuleika. Hvað ég var alltaf hreykinn af þér! Þú varst hinn elskandi faðir minnar ástkæru eiginkonu, hinn blíði afi barnanna minna og auð- vitað skipstjórinn minn góði frá Íslandi. En nú er komið að leiðarlokum og þú farinn yfir móðuna miklu til annarra heimkynna. Það eru örlög mannanna sem enginn fær flúið. Ég er viss um að hvar sem þú dvelur núna sérðu tárin sem renna úr augum mínum þegar ég segi og skrifa hve mjög mér þótti vænt um þig. Megi moldin vera létt sem hyl- ur gröf þína eins og við segjum hér í Grikklandi. Þinn (tengda)sonur Asimakis (Makis). Elsku afi okkar, hann Valli vík- ingur eins og allir kölluðu hann hér í Grikklandi, er farinn frá okk- ur. Hann var svo sannarlega eins og hreinræktaður víkingur í útliti , svo stór og sterkur og bjarnarleg- ur, hugrakkur og þorinn. En hann var líka blíður og viðkvæmur og alveg sérlega barngóður maður. Fyrir okkur var hann besti afi í heimi og einhvern veginn tók hann alla fjölskylduna okkar og vini hér í Grikklandi í sinn stóra faðm og Valli víkingur varð þannig afi allra, stórra sem smárra. Og hvað hann var skemmtileg- ur! Það þurfti ekki að setjast niður með honum nema í stutta stund til að veltast um og gráta af hlátri yf- ir sögunum hans og bröndurun- um. Við sungum líka oft saman því honum fannst svo gaman að syngja, en samt kunni hann ekk- ert að syngja eins og hann sagði sjálfur. Og alltaf söng hann sömu lögin og alltaf fór hann rangt með. Þau eru ótal skiptin sem amma hristi hausinn yfir þessum ósköp- um og leiðrétti hann, en svo brosti hún líka í kampinn og leyfði hon- um að halda áfram að syngja á sinn eina, sérstaka hátt. Auðvitað hefðum við viljað hafa hann afa okkar alltaf hjá okkur, en úr því að lífið gerir okkur það ókleift, verðum við að sætta okkur við að hann lifi áfram í hjörtum okkar og sálu. Við munum ylja okkur í framtíðinni við allar ótelj- andi og skemmtilegu minningarn- ar sem hann gaf okkur. Mikið sem okkur þykir vænt um þig, elsku afi, og gefðu nú okk- ar ástkæru ömmu þúsund kossa frá okkur þegar þú hittir hana aft- ur, því eins og við vitum og þú sagðir alltaf, þá var hún stærsta ást lífs þíns. Hvílið þið bæði í friði og í eilífu faðmlagi. Þess óska „þinn besti vinur“ Valli og „prinsessan þín“ Kristín. Valsteinn Konstantín Tsoukalas. Kristín Chrysoula Tsoukala. Þegar maður kveður vin sinn til margra ára verður ekki komist hjá því að rifja upp fyrstu kynni, ásamt löngu æviskeiði. Fyrstu kynni voru um borð í bv. Jóni Þor- lákssyni RE 204 haustið 1954. Eft- ir sjósókn þann vetur héldum við í ævintýraleit ásamt tveimur vinum og réðum okkur á norsk skip. Var siglt vítt um heiminn og var það mikið ævintýri fyrir okkur á ung- lingsaldri. Eftir árs veru var haldið heim á leið. Er heim var komið var ljóst að sjómennskan var okkar fram- tíðarplan. Áttum við leið í Stýri- mannaskólann. Valsteinn lauk þaðan farmannsprófi 1959, ég lét mér nægja fiskimannspróf. Við áttum samleið á fiskiskipum eftir prófin en síðar fór hann í far- mennskuna, sem var honum hug- leikin. Var hann stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum. Þarna skildi okkar leiðir, þó vorum við alltaf í sambandi. Er við komum í land, eftir langa veru, urðu sam- skipti okkar og Helga Kristins- sonar (hann var með okkur í æv- intýraleitinni sem um ræddi) mikil, ásamt fjölskyldum okkar, var farið ferðalög innanlands sem erlendis. Nú er ég kveð minn vin færi ég og fjölskylda mín samúðarkveðjur til okkar kæru Þóru og fjölskyldu hennar, sem og annarra aðstand- enda. Minning um Valstein og Kristínu konu hans, sem lést fyrir ári, mun áfram verða í huga okk- ar. Ingvi Rúnar Einarsson. Valsteinn Víðir Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.