Morgunblaðið - 01.09.2021, Page 8

Morgunblaðið - 01.09.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021 Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sem brátt kveður stjórn- málin, í það minnsta sem kjörinn fulltrúi, slær yfirleitt ekki um sig með digrum staðhæfingum. En í gær talaði hún af- dráttarlaust um muninn á sér og Olaf Scholz, kanslaraefni Sósíaldemókrata, SPD, og sagði: „Með mig í kanslaraemb- ætti kæmi aldrei til greina að mynduð yrði ríkisstjórn með Vinstri flokknum [die Linke],“ en þar á hún við flokk Sósíal- ista. - - - Sósíalistaflokk- urinn í Þýskalandi þykir ekki sérstaklega stjórntækur enda á hann rætur að rekja til Austur- Þýskalands og þess stjórnkerfis sem lék austurhluta Evrópu svo grátt áratugum saman og heldur enn niðri lífskjörum víða um heim. - - - Ástæða þess að Merkel nefnir þetta nú er að margir Þjóð- verjar hafa áhyggjur af að Sósíal- demókratar muni eftir kosningar í næsta mánuði mynda stjórn með Sósíalistum og Græningjum sem hljómar ekki mjög kræsilega. - - - Þetta er umhugsunarvert því að hér á landi hafa ákveðnir flokk- ar, ekki síst Samfylkingin, útilokað samstarf við tiltekna flokka, einkum þó Sjálfstæðisflokkinn, sem seint verður talinn á jaðri stjórnmálanna. - - - En hvað ætli Samfylkingin segi um samstarf við Sósíalista- flokkinn, nái sá mönnum á þing? Fyrst Samfylkingin er byrjuð að úti- loka flokka hlýtur að vera eðlilegt að spyrja þeirrar spurningar. Ætli Samfylkingin telji Sósíalistaflokkinn stjórntækan? Angela Merkel Sósíalista í ríkisstjórn? STAKSTEINAR Logi Einarsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Hjá Strætó er nú unnið að undir- búningi þess að taka upp fargjalda- álag í samræmi við lagabreytingar sem samþykktar voru á Alþingi fyr- ir þinglok. Heimilt verður að leggja allt að 30 þúsund kr. fargjaldaálag á farþega sem ekki hafa greitt far- gjald í almenningssamgöngum. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Strætó í gær hefur breytingin á lögunum ekki verið birt en um leið og það gerist tekur þessi breyting gildi. Eins og í dag munu eftirlitsmenn Strætó fara um vagnana og kanna hvort farþegar hafi greitt rétt far- gjald að sögn Jóhannesar Svavars Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Strætó. Eini munurinn núna verður hins vegar sá að Strætó verður kom- ið með nýtt rafrænt greiðslukerfi líkt og þekkist erlendis þar sem fólk skannar sig inn í vagna og geta eft- irlitsmenn sektað þá sem brjóta reglurnar. Þegar undirbúningsvinnunni er lokið þarf samgönguráðuneytið að samþykkja reglurnar og auglýsa í B-tíðindum Stjórnartíðinda. Strætó er um þessar mundir að safna upplýsingum frá öðrum fyrirtækjum í almenningssam- göngum, m.a. á Norðurlöndunum, og hvaða útfærslur og reglur eru í gildi þar. Er að því stefnt að leggja til- lögur undir stjórn Strætó í næsta mánuði og í kjölfarið verða ráðu- neytinu sendar upplýsingar um það hvernig Strætó ætlar að fram- kvæma sektirnar í haust. Eftirlitsmenn fara um vagnana - Fargjaldaálag í undirbúningi - Nýtt rafrænt greiðslukerfi tekið upp hjá Strætó 80 kórónuveirusmit greindust innan- lands í fyrradag, 48 af þeim sem greindust voru óbólusettir við grein- ingu en 32 voru fullbólusettir. 37 voru utan sóttkvíar við greiningu. „Hlutfall jákvæðra sýna hefur lækkað síðustu daga. Það eru ákveð- in merki til staðar um að það séu færri smit í samfélaginu,“ sagði Guð- rún Aspelund, yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis, um tölur gærdagsins í samtali við mbl.is. Hlutfall óbólusettra óvenju hátt Þá var hlutfall óbólusettra í greindum smitum óvenju hátt í fyrradag, 60%, og daginn áður, 73%. Guðrún sagði gögnin sýna að smit- tíðni sé allt að tvöfalt hærri hjá óbólusettum miðað við bólusetta. Nýgengi innanlandssmita heldur áfram að lækka og stóð í gær í 287,7. Þá var hlutfall jákvæðra einkenna- sýna í fyrradag 2,55% en tæplega 5.000 sýni voru tekin. Virkum smitum fjölgaði um 15 á milli daga. 830 voru með virkt smit í gær, þar af 221 barn. Enginn þeirra er metinn rauður en 21 er gulur og þarf nánara eftirlit. Covid-sjúklingum á Landspít- ala fækkaði um þrjá Sjúklingum sem liggja inni á Landspítala vegna Covid-19 fækkaði um fjóra á milli daga, að því er segir á vef Landspítala. Í gær lágu tíu inni á spítalanum, níu sjúklingar á bráða- legudeildum spítalans og eru fjórir þeirra óbólusettir. Á gjörgæslu er einn sjúklingur sem er ekki í önd- unarvél. Meðalaldur innlagðra er 66 ár. Hlutfall jákvæðra sýna hefur lækkað - Smittíðni óbólu- settra allt að tvöfalt hærri en bólusettra Morgunblaðið/Eggert Tæplega 5.000 sýni voru tekin í fyrradag. 2,55% voru jákvæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.