Morgunblaðið - 01.09.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.09.2021, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2021 Í fyrri grein um íbúaþróun á suðvest- urhorni landsins (Morgunblaðið 15. júlí sl.) var rakið að hin mikla fjölgun íbúa undanfarin ár er að- allega vegna aðflutn- ings fólks frá útlönd- um þótt töluverð hreyfing íbúa hafi einnig orðið milli ein- stakra sveitarfélaga á svæðinu. Þróun mannfjölda á suð- vesturhorni landsins fylgir hag- vexti betur en íbúaþróun landsins alls þótt farsóttin að undanförnu hafi ekki haft eins mikil áhrif á mannfjöldann og hagkerfið. Íbúaþróunin hefur margvíslegar hliðar og í þessari grein verður reynt að gera grein fyrir sumum þeirra. Íbúafjölgunin hefur fjölgað körlum á svæðinu. Rúmlega 32.000 íbúa fjölgun á suðvest- urhorninu skiptist þannig að 60% eru karlar meðan 40% eru konur. Hlutfallsleg fjölgun karla var 15% meðan konum fjölgaði um 10%. Hlutfall kvenna í fjölgun íbúa var lægst í Hafnarfirði, í Vogum og Borgarbyggð. Þriðjungur íbúa- fjölgunar í Reykjavík voru konur. Íbúaþróunin hefur einnig haft mikil áhrif á aldurssamsetningu, bæði vegna áhrifa flutninganna en einnig vegna breytinga á fjölda barna sem hér hafa fæðst. Byrj- um á fæðingunum. Þrátt fyrir að þjóðinni allri hafi fjölgað um nær 11% á undanförnum 5 árum er fjöldi 0-4 ára barna næstum óbreyttur. Börnum á aldrinum 5-9 ára hefur fækkað á sama tíma um nær 600 eða 2,5%. Á suð- vesturhorninu fjölg- aði íbúum um 12,5% á síðustu 5 árum en börnum á aldrinum 0-4 ára fjölgaði um 1,0% en 5-9 ára börn- um fækkaði um rúmlega 500. Hægt er að skoða íbúabreyt- inguna eftir aldri frá tveimur sjónarhornum og það er gert í töflu 1. Taflan þarfnast nokkurrar skýr- ingar en almennt er hægt að segja að þarna megi sjá gríðar- lega öra breytingu á aldursskipt- ingu íbúanna. Í fremri talnadálkn- um er sýnt hver breyting hefur orðið á íbúafjölda í hverjum 5 ára aldursflokki á síðustu 5 árum. Þannig hefur t.d. 10-14 ára ung- lingum fjölgað um 17,1% á suð- vesturhorninu á þessum tíma. Seinni dálkurinn sýnir samanburð á aldursflokknum við þann fjölda sem var 5 árum yngri fimm árum fyrr. Þeir sem nú eru 10-14 ára eru 4,5% fleiri en þeir sem voru 5-9 ára fyrir fimm árum. Fyrir yngri aldurshópana sýnir seinni dálkurinn áhrif búferlaflutning- anna en hjá elstu hópunum, þar sem flutningar eru fátíðir eru áhrifin fyrst og fremst vegna þess að fólk fellur frá. Í öllum aldurs- flokkum frá tvítugu að fertugu hefur íbúum á suðvesturhorninu fjölgað meira en sem nemur hlut- fallslegri íbúafjölgun á svæðinu í heild og þar vega búferlaflutn- ingar langmest. Mikið hefur verið rætt um mikla fjölgun eldra fólks og vissulega er hlutfallsleg fjölgun mikil bæði hjá þeim sem eru eldri en níræðir og svo hjá þeim sem eru á áttræðisaldri. Fólki á níræð- isaldri fjölgaði hins vegar mjög lítið á síðustu fimm árum. Hlutfall sjötugra og eldri af íbúum hækk- aði síðustu 5 ár úr 8,9% í 9,6% en hlutfall áttræðra og eldri lækkaði. Skoðum nú nánar þróunina í þeim hópi sem í upphafi yfirstand- andi árs var 25-29 ára en þar hafði fjölgunin á suðvesturhorninu orðið hlutfallslega mest frá því fyrir 5 árum, 25,7% eða 5.000 manns. Í töflu 2 er sýnt hvernig íbúaþróunin í aldursflokknum var eftir sveitarfélögum. Fámennustu sveitarfélögunum er sleppt en þau eru með í samtölum. Hlutfallslega fjölgar mest í þessum hópi á Suðurnesjum en Reykjavík er enginn eftirbátur og þar hafa yfir 3.000 einstaklingar bæst í aldurshópinn, 60% af allri fjölguninni. Fjölgunin er mun minni í grannsveitarfélögunum nema Mosfellsbæ þar sem fjölgar mikið og á Seltjarnarnesi en þar fækkar í hópnum. Áhrif fjölgunar í þessum aldurshópi geta verið mjög mikilvæg fyrir framtíðar- íbúaþróun sveitarfélaganna sem í hlut eiga vegna þess að þarna, og í næsta fimm ára aldursflokki þar fyrir ofan, er fæðingartíðni lang- hæst. Þarna hefur það þó áhrif til lækkunar að 60% af fjölguninni eru karlar en einnig eru vísbend- ingar um að fæðingartíðni meðal aðfluttra sé lægri en hjá þjóðinni að öðru leyti. Hin öra íbúaþróun sem verið hefur í flestum sveitarfélögum á suðvesturhorni landsins á undan- förnum árum hefur haft mikil áhrif á þróun byggðarinnar. Hún hefur breytt aldurssamsetningu sveitarfélaganna og mun hafa áhrif inn í framtíðina. Íbúarnir eru með mismunandi bakgrunn sem leiðir til litríkara samfélags en gerir jafnframt kröfur til sveit- arfélaganna um að veita fjöl- breyttari þjónustu en hingað til. Örar íbúabreytingar – margvíslegar afleiðingar Eftir Sigurð Guðmundsson » Íbúaþróun á suðvest- urhorni landsins Sigurður Guðmundsson Höfundur er skipulagsfræðingur BES M Phil. Íbúaþróun á suðvesturhorni landsins Hlutfallsleg breyting 2016 til 2021 eftir 5 ára aldursflokkum Heimild: Hagstofa Íslands Breyting 2016-2021 aldur á hvorum tíma Breyting frá 2016 m.v. aldur 2021 0-4 ára 1,4% 5-9 ára -2,8% 4,2% 10-14 ára 17,1% 4,5% 15-19 ára 4,4% 5,6% 20-24 ára 2,9% 19,2% 25-29 ára 25,2% 25,7% 30-34 ára 24,9% 19,4% 35-39 ára 15,9% 13,6% 40-44 ára 16,6% 10,6% 45-49 ára 18,6% 9,2% 50-54 ára 3,0% 6,7% Breyting 2016-2021 aldur á hvorum tíma Breyting frá 2016 m.v. aldur 2021 55-59 ára 5,1% 2,1% 60-64 ára 16,3% -0,4% 65-69 ára 17,0% -2,9% 70-74 ára 29,7% -5,2% 75-79 ára 30,6% -10,2% 80-84 ára 2,3% -18,0% 85-89 ára 1,8% -32,8% 90-94 ára 23,2% -49,7% 95-99 ára 45,2% -73,3% 100+ ára 34,6% -84,6% Tafla 1 Breyting á fjölda 25-29 ára Miðað við 20-24 ára 5 árum áður eftir sveitarfélögum Sveitarfélag % Fjöldi Reykjavík 32,1% 3.053 Kópavogur 20,2% 468 Seltjarnarnes -9,1% -31 Garðabær 13,9% 141 Hafnarfjörður 6,6% 138 Mosfellsbær 33,9% 221 Reykjanesbær 50,0% 636 Grindavík 32,3% 76 Sveitarfélag % Fjöldi Vogar 39,7% 27 Suðurnesjabær 36,3% 77 Akranes 6,2% 31 Borgarbyggð -0,7% -2 Árborg 22,8% 129 Hveragerði 5,6% 10 Ölfus 27,0% 40 Suðvesturland 25,7% 5.002 Tafla 2 Heimild: Hagstofa Íslands Miðvikudagskvöldið 7. apríl 2021 var sýnd í sjónvarpinu heim- ildamynd eftir Björn Brynjúlf Björnsson sem nefnist „Leynd- armálið“ og er þar reynt að svipta hulunni af stærsta frímerkjaþjófn- aði í sögu þjóðarinnar þegar svo- nefnt Biblíubréf var selt úr landi árið 1972. Bréfkorn þetta er nú talið eitt verðmætasta frímerk- jaumslag í heimi og verðmæti þess hleypur á hundruðum millj- óna. Tengdafaðir þáttarstjórnanda, Haraldur Sæmundsson fyrrver- andi frímerkjakaupmaður, hafði milligöngu um sölu bréfsins til út- landa en seinna komu fram ásak- anir um að bréfinu hefði verið stolið. Lögmaður í Reykjavík hafði afhent Haraldi bréfið fyrir hönd umbjóðanda sem enginn hef- ur til þessa vitað hver er. Har- aldur fullyrðir nú að Skúli Helga- son fræðimaður (1916-2002) hafi verið umræddur maður og leiðir það af líkum sem þáttarstjórnandi útfærir og færir frekari rök fyrir. Þegar röksemdafærslur tengda- feðganna eru gaumgæfðar af sanngirni dregur mjög úr trúverð- ugleika þeirra og sýnir að sú kenning að heiðursmaðurinn Skúli Helgason hafi verið frímerkjaþjóf- ur er að minnsta kosti hæpin. Þegar fréttist um fyrirhugaða sölu Biblíubréfsins haustið 1972 taldi Halldór Gunnlaugsson bóndi á Kiðjabergi sig hafa eignarrétt á umræddu bréfi en hann var son- arsonur Þorsteins Jónssonar sýslumanns í Árnessýslu sem bréfið hafði verið sent til haustið 1874. Að kröfu hans fór fram rannsókn á uppruna bréfsins í marsmánuði 1973. Hvergi í þeirri rannsókn kemur fram minnsti grunur um að Skúli hafi átt hlut að máli og er hans að engu getið í samantektinni, en Halldór þekkti Skúla vel. Við rannsóknina var talað við Magna R. Magnússon kaupmann, en fram kom að maður hefði sýnt honum umrætt frímerkjabréf. Magni sagði lögreglunni og end- urtók það í viðtali í heimildamynd- inni, að hann hefði ekki þekkt þann mann, en telja verður úti- lokað annað en að Magni hafi þekkt Skúla Helgason, sem átti heima mjög nálægt starfsvett- vangi hans á Skólavörðustíg og Laugavegi og átti um margra ára- tuga skeið leiðir um þær slóðir. Í heimildamyndinni er rakið að Skúli Helgason hafi oftar en einu sinni komið að Kiðjabergi að leita muna handa fyrirhuguðu byggða- safni í Árnessýslu, og leitast við að leiða rök að því að þar hafi hann komist yfir bréfið. Í greinargerð um málið frá Þjóðskjalasafni 12. maí 2021 er staðhæft að mestar líkur séu til að umrætt bréf hafi verið tekið úr safni sýslumanns Árnessýslu, eftir að það var afhent á Þjóðskjalasafn árið 1910, fremur en að því hafi verið stolið af Kiðjabergi. Ef rétt reynist er botninn farinn undan stærstu „röksemdum“ tengdafeðg- anna. Í rannsókn lögreglunnar 1973 var talað við marga fornbóksala og frímerkjaáhugamenn, auk Magna R. Magnússonar. Í skjöl- um vegna rannsóknarinnar, sem er hátt í 50 bls. að lengd, kemur nafn Skúla Helgasonar hvergi fyr- ir eins og áður hefur komið fram. Haraldur Sæmundsson kom ekki heldur fram þá og nefndi nafn Skúla, en rannsóknin hefur varla farið fram hjá honum. Þá vekur athygli að þáttar- stjórnandi getur þess í engu að rannsókn lögreglu beinist ekki síst að þeim þætti að bréfið hafi verið í vörslu fólks sem bjó í Landeyjunum en þar í sveit áttu tveir af afkomendum Þorsteins sýslumanns heimili. En vitaskuld veikir það líkt og greinargerð Þjóðskjalasafnsins fyrirframgefna niðurstöðu þáttarstjórnanda. Í heimildamyndinni er greint frá því að ágreiningur hafi orðið með Skúla og sýslunefnd Árnes- sýslu út af uppbyggingu byggða- safns fyrir sýsluna, sem var Skúla mikið hjartans mál, en upp úr samstarfi þar á milli hafði slitnað kringum 1960. Er látið að því liggja að Skúli hafi ekki talið sig „skulda“ fósturhéraði sínu neitt eftir að hann flutti þaðan og því ekki talið sig þurfa að skila um- ræddu skildingabréfi til sýsl- unnar, hefði hann komist yfir það. Annað vita þeir sem þekktu Skúla persónulega. Ekki þurfti lengi að ræða við hann til að finna, að heimasýslan var honum allt. Tal um einhvers konar „hefnd“ Skúla gagnvart sýslunefndinni eða heimasýslu sinni er vægast sagt illa grundað og ekki smekklegt. Loks er því haldið fram í heim- ildamyndinni að Skúli hafi verið illa stæður og búið í leiguíbúð þar til hann keypti skyndilega íbúð á Óðinsgötu 32 árið 1972. Þetta er rangt hjá þáttarstjórnanda. Skúli átti tvö hús, annað á Selfossi og hitt á Svínavatni, þegar hann flutti til Reykjavíkur um 1960. Hann bjó svo í eignaríbúð á Óð- insgötu 26 þegar hann keypti stærri íbúð við Óðinsgötu 32. Skúli lenti í slæmu bifreiðaslysi árið 1966 en árið 1969 fékk hann verulega fjárhæð í bætur vegna slyssins, sem nam hærri upphæð en verðmun nýju og gömlu íbúð- anna. Í skattframtölum gerir Skúli ljósa grein fyrir því hvernig bankainnstæða hans vegna slysa- bóta er notuð til að fjármagna kaup hans á Óðinsgötu 32. Fram- töl þessi taka af allan vafa um að það er tilhæfulaust með öllu að digur sjóður vegna frímerkjasölu hafi leynst í eigu Skúla Helgason- ar. Í þættinum gefur þáttarstjórn- andi sér niðurstöðu sem ekki stenst nánari skoðun. Veldur þar einkum þrennt. Björn Brynjúlfur horfir framhjá atriðum sem fram koma í lögregluskýrslu, gefur sér ranglega að Skúli sé fátækur og eignalaus maður og gerir honum að síðustu upp hefndarhug gagn- vart héraði sem hann unni. Sú fyrirframgefna niðurstaða þátt- arstjórnanda að Skúli Helgason sé þjófur er því ekki studd nein- um rökum sem standast nánari skoðun og getur ekki talist annað en ærumeiðing sem beinist að látnum heiðursmanni. Sjá ítarlegra eintak þessar greinar á www.mbl.is/netgreinar Athugasemd vegna heimildamyndar um frímerkjaþjófnað Eftir Þórð Tómasson, Sigurð Hermundarson, Lísu Thomsen, Jón Torfason, Ingu Láru Bald- vinsdóttur, Kára Bjarnason, Bjarna Harðarson, Guðrúnu Þórðardóttur, Ingileif Jónsson, Helga Jónsson, Guðrúnu Þór- hallsdóttur og Sigurð Karl Jónsson » Í þættinum gefur þáttarstjórnandi sér niðurstöðu sem ekki stenst nánari skoðun. Höfundar eru vinir Skúla heitins Helgasonar. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morg- unblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf not- andinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.