Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Föst. 10—17 Laugardaga 11—15 HAUSTTILBOÐ 20% afsláttur af öllum innréttingum út október Páll Vilhjálmsson telur stöðuna þessa á lokametrunum: - - - Ef þjóðin kýs á laugardag sam- kvæmt skoðanakönnunum er líklegast að mynduð verði 4-5 flokka vinstristjórn, segir Ólafur Þ. Harð- arson stjórnmálafræðiprófessor. - - - Á bak við tjöldin standa nú yfir hjaðningavíg vinstrimanna sem keppast við vinsældir hjá sömu kjósendahópum. - - - Þau innanbúðarátök halda áfram í væntanlegri ríkisstjórn vinstrimanna. - - - Þeir sem eru komnir til vits og ára muna hvernig kaupin gerðust á eyrinni í vinsældakapphlaupi Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags á síðustu öld. - - - Til að kaupa sér vinsældir verður opinbert vald og ríkissjóður miskunnarlaust notaður til að hygla sérvöldum hópum vinstrimanna sem sitja um opinber gæði eins og hræ- gammar. - - - Í orði er talað um almannahags- muni en á borði gilda sérhags- munir vinstrihópa, hver með sína út- gáfu af tilverunni. - - - Almenningur á enn kost á að forða sér frá vinstri stórslysi. Með því að kjósa ekki samkvæmt skoðanakönnunum og verja atkvæði sínu skynsamlega á laugardaginn kemur.“ Virðist skynsamlegt. Veruleikafirring? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Til stendur að teknar verði í gagnið sjálfvirkar löggæslumyndavélar á nokkrum stöðum á þjóðvegum, m.a. á Þingvallavegi, sem reikna meðal- hraða ökutækja á ákveðnum vegar- köflum. Í samstarfssamningi Vega- gerðarinnar, Samgöngustofu og Ríkislögreglustjóra um sjálfvirkt hraðaeftirlit sem samgönguráðherra hefur staðfest er það nýmæli að framvegis verði hægt að nýta myndavélar til að sinna meðalhraða- eftirliti á þjóðvegum. G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar, segir að myndavélar hafi verið settar upp á Grindavíkurvegi og í Norðfjarðar- göngum, sem verða teknar í notkun fljótlega. „Það er í undirbúningi að setja upp vélar á Þingvallavegi í gegnum þjóðgarðinn, en það á eftir að kaupa myndavélarnar og setja upp og það ferli tekur líklega ein- hverja mánuði, við erum ekki viss með afgreiðslutímann á þessum kór- ónuveirutímum,“ segir hann. Einnig séu nokkrir fleiri kaflar til skoðunar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um eða fengist fjármagn í og eru Hvalfjarðargöng einn þeirra kafla, að sögn hans. Mæla meðalhraða á vegarköflum - Meðalhraðamyndavélar á Þingvalla- vegi og í Hvalfjarðargöngum til skoðunar Morgunblaðið/Jakob Fannar Umferð Nýta á myndavélar til að sinna sjálfvirku meðalhraðaeftirliti. Undirbúningur er hafinn að friðlýs- ingu garðsins Skrúðs á Núpi í Dýrafirði. Bréf Minjastofnunar þessa efnis var lagt fram á fundi bæjarráðs Ísafjarðar í vikunni, en garðurinn er nú í eigu og umsjón Ísafjarðarbæjar. Segir í bréfinu að lagt sé til að friðlýsingin taki til garðsins í heild samkvæmt upp- haflegu skipulagi hans, skipan beða og tegundaflóru innan hvers reits auk hlaðinna vegghleðslna, garðs- hliðs úr hvalbeini, gosbrunns og gróðurhúss og annarra sögulegra mannvirkja. Í rökstuðningi friðlýsingar segir að Skrúður sé einstakt afrek og hugarsmíð séra Sigtryggs Guð- laugssonar sem síðar hafi notið dyggrar aðstoðar konu sinnar, Hjaltlínu M. Guðjónsdóttur. Garð- urinn er í landi kirkju- og þáver- andi héraðsskólaseturs á Núpi í Dýrafirði, þar sem séra Sigtryggur var skólastjóri. „Skrúður á sér merkilega sögu, m.a. sem fyrsti kennslugarðurinn löngu áður en slíkar hugmyndir höfðu skotið rótum. Vinna við gerð garðsins hófst árið 1905 og fyrstu trén voru gróðursett árið 1908. Fram til ársins 1914 gróðursetti Sigtryggur ásamt nemendum sín- um fimmtíu reynitré og var hvert og eitt tré merkt þeim nemanda sem gróðursetti. Auk trjágróðurs og skrautrunna var margs konar grænmeti ræktað þar. Formföst uppbygging garðsins með miðlæg- um ásum þvers og langs ber ein- kenni klassískra garða í Evrópu frá 16. og 17. öld,“ segir m.a. í rök- stuðningnum. aij@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Kennslugarður Hvalbein prýðir hliðið að Skrúði á Núpi í Dýrafirði. Friðlýsing Skrúðs á Núpi undirbúin - Afrek og hugar- smíð séra Sigtryggs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.