Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 28
VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Við keyptum hérna jörð árið 2010 og svo hefur þetta bara smávaxið hjá okkur og nú erum við með stærsta sauðfjárbúið í Møre og Romsdal,“ segir Vignir Arnarson frá Sandgerði, íslenskur bóndi í Farstad á vesturströnd Noregs, í samtali við Morgunblaðið, en þau Katrín Markúsdóttir, kona hans frá Bolungarvík, eiga þar býsna margt á fjalli eins og sagt er, á fimmta hundrað kindur. „Þetta er fullt starf hjá mér en við reyndar flytjum einnig inn innrétt- ingar í fjárhús og seljum hér í Nor- egi og til Færeyja,“ segir Vignir frá, en hann er menntaður kjötiðnaðar- maður. „Það byrjaði nú eiginlega þannig að ég var dálítið á undan minni samtíð hérna og vildi létta mér störfin í fjárhúsinu í stað þess að vera að aka hjólbörum eins og einhver afdalabóndi,“ segir hann frá upphafi Hollandsinnflutningsins. Málin hafi fljótlega þróast þannig að talsmenn hollenska framleiðand- ans settu sig í samband við þau Katrínu til að kanna áhuga þeirra á að gerast umboðsaðilar í Noregi og þau slógu til, en þarna er um að ræða hollenska fyrirtækið Venostal, sem er hvorki meira né minna en stærsti framleiðandi fjárhúsainn- réttinga og selur vörur sínar um alla Evrópu og víðar. „Við fórum hægt af stað í byrjun en svo jókst þetta og gengur núna alveg glimr- andi, þetta er alltaf að vaxa og vaxa,“ segir bóndinn frá Suð- urnesjum, sem upphaflega flutti til Noregs árið 1997. Þurfti að bóka tíma „Svo skildi ég og fór til baka og var á Íslandi í nokkur ár, en þreifst ekki almennilega þar svo ég náði mér í aðra konu og dró hana með mér út til Noregs,“ segir Vignir frá, en Katrín flutti út árið 2009. Áður hafði Vignir haft búsetu í Askim, þá í fylkinu Østfold, sem nú heitir Vik- en eftir fylkjasameininguna árið 2020. Hann kveðst þó kunna mun betur við sig í Møre og Romsdal, þar sé mjög opið samfélag og fólkið yndislegt. „Í Østfold var þetta þannig að þú þurftir að bóka tíma ef þú ætlaðir eitthvað í heimsókn, en þannig er það nú ekki hér,“ segir Vignir glettnislega. Talið berst þá eðlilega að frænd- þjóðunum tveimur, Norðmönnum og Íslendingum, og muninum á þeim. „Ja, ég er nú búinn að vera hér svo lengi að ég er orðinn sam- dauna þessu öllu saman, en mun- urinn er á mörgum sviðum, hug- arfarið er töluvert öðruvísi hér en á Íslandi. Við Íslendingar erum mun harðari við okkur og tökum hlutina með sparki eins og maður segir á meðan Norðmenn fara sér hægar og verja miklu púðri í að planleggja áður en framkvæmt er,“ segir Vignir. Nú er það alkunna að norsk mat- armenning hefur ekki átt greiða leið að hjarta allra íslenskra inn- flytjenda og hefur blaðamaður á sínum rúmu ellefu árum í Noregi fengið að heyra ríflega af því. Vign- ir býður upp á sögu. Á árum áður var hann rekstrarstjóri hjá stóru fyrirtæki í Kolbotn, Samlerhuset, sem er eitt það stærsta í heimi á sviði mynt- og frímerkjasölu til safnara, en þangað reyndist þraut- in þyngri að ráða fólk eitt skiptið þegar þörf var á. „Við fengum ekki fólk hérna í Noregi svo ég fer þá til Íslands, tek viðtöl og svo fáum við með okkur út einhver ellefu eða tólf stykki sem fluttu hingað út og margt þessa fólks býr hér enn. Ég man einmitt eftir því þegar þessi hópur var nýkominn að þá voru allir að kvarta yfir mat. Það var ekki til þetta og ekki til hitt, sem lagðist þungt á hópinn. En þetta fer nú bara eftir hugarfarinu og hvernig þú ert í rauninni. Maður hefur náttúrulega oft heyrt Íslend- inga hér tala um að allt sé betra á Íslandi og þá spyr maður sig eig- inlega bara: „Nú af hverju ertu þá ekki bara heima hjá þér?““ segir Vignir og hlær við. „Þetta hefur alla vega aldrei plagað mig neitt, ég er mjög ánægður með allan mat hérna, en ég er náttúrulega löngu farinn að líta á mig meira sem Norð- mann en Íslending eftir allan þenn- an tíma hérna,“ játar hann. Vann í SS á Skúlagötu Skyldi þá ganga vel að draga fram lífið á norsku sauðfjárbúi? „Já já, við gerum það bara gott,“ svarar Vignir að bragði, „helmingurinn af okkar tekjum kemur frá slátrun og hinn helmingurinn er svo í formi styrkja, þetta gengur bara vel,“ segir bónd- inn og játar að hann hafi lengi dreymt um bústörf þótt hann hafi ekki stundað þann kima atvinnulífs- ins á Íslandi, ferillinn hófst í Møre og Romsdal, en á Íslandi starfaði hann í hinu fornfræga Sláturfélagi Suðurlands á Skúlagötu, sem var og hét, hóf þar störf 1988 og lauk náms- samningi sínum þar í kjötiðninni áð- ur en hann stofnaði eigið fyrirtæki í Keflavík. Bannað að vera góður Nú ljóstrar Vignir því upp að hann sé knattspyrnuþjálfari ofan á bústörf og innflutningsfyrirtæki. „Ég er að þjálfa hérna stráka sem eru tíu og ellefu ára þrisvar sinnum í viku, ég var sjálfur í fótbolta á yngri árum, en var nú aldrei neitt sér- staklega góður held ég,“ segir Vign- ir, sem fæddur er 1966 og virðist hafa aðgang að fleiri tímum sólar- hringsins en hinum hefðbundnu 24. „Og það er nú annað, sem við höf- um oft talað um hérna og snertir þetta ólíka „mentalitet“ Íslendinga og Norðmanna. Hér er næstum því ekki leyfilegt að vera góður, þú átt helst ekki að vera góður, enginn á að skara fram úr, allir eiga að vera jafn- ir. Við erum með fullt af strákum, sem fá ekki að blómstra, við fáum ekki að þjálfa þá eins og við viljum,“ segir Vignir og nefnir Janteloven svokölluðu, lífsreglurnar tíu, sem dansk-norski rithöfundurinn Aksel Sandemose setti fram árið 1933 í bók sinni En flyktning krysser sitt spor, en hið fyrsta af þeim tíu boðorðum er „Þú skalt ekki halda að þú sért eitthvað.“ Telur hann líklegt að hann verði í Noregi þar til dauðans óvissi tími vitrast honum. „Já já, ég geri alveg ráð fyrir því,“ svarar Vignir og hlær, „en ég á þrjár dætur á Íslandi reyndar og tvö barnabörn. Ein dótt- ir mín er mjög veik og búin að vera í mörg ár, svo ég fer oft til Íslands, en hef lítið komist síðasta árið út af Co- vid, en hún var hérna töluvert þegar hún var í ástandi til þess, yfirleitt al- veg fjóra til sex mánuði á ári,“ segir Vignir, en dóttirin þjáist af batten- sjúkdómi, efnaskiptasjúkdómi, sem leggst á börn og lýsir sér í hrörnun taugakerfisins og verulega skertum lífslíkum auk þess að valda blindu, en eitt af hverjum 100.000 börnum fæðist með sjúkdóminn. Ofan á þennan harm hefur Vignir misst fjögurra ára son, sem varð bráð- kvaddur í svefni. Stundar fjallgöngur grimmt „Ég á fullt af börnum, við Katrín eigum fjögur saman auk þess sem ég gekk hennar börnum í föðurstað og svo á ég þessi þrjú á Íslandi og son, sem býr hérna, en reyndar ekki hjá okkur, hann er fluttur út,“ útskýrir Vignir fjölskyldutengsl sín, en kveðst ekki vera í miklum tengslum við aðra Íslendinga í Noregi, helst félaga sinn Óskar Þorkelsson, sam- starfsmann hjá SS í gamla daga. „Maður dettur út úr þessu með tím- anum og er bara með sína fjöl- skyldu,“ segir Vignir, sem stundar fjallgöngur af miklum móð þá sjald- an hann er ekki á kafi í öllu öðru sem hann fæst við. „Ég reyni að nota all- an minn tíma í það, strákarnir mínir koma með mér, þeir eru mjög dug- legir í þessu,“ segir Vignir Arnarson að skilnaði, bóndi, bústólpi, knatt- spyrnuþjálfari og innflytjandi fjár- húsainnréttinga í Møre og Romsdal. Vignir gerðist norskur bóndi - Rekur stærsta sauðfjárbú í Møre og Romsdal - Flytur inn fjárhúsainnréttingar frá Hollandi og þjálfar knattspyrnu - Miklu munar á hugsunarhætti frændþjóða - Fjallgöngugarpur í frístundum Ljósmyndir/Úr einkasafni Fjölskyldan Hópurinn samankominn, standandi frá vinstri eru Vignir, Ágúst Helgi, Jón Elí, Kristín Birna og Katrín Dröfn. Börn, frá vinstri talið, eru: Örn Ómar, Björgmundur Steinar og tvíburarnir Viggó Freyr og Arndís Una. Á myndina vantar Víking Örn sem er nýfluttur að heiman. Á fjöllum Vignir með fulltrúa búfjár síns úti í guðsgrænni náttúrunni. Ær á jötu Vignir á stærsta sauðfjárbú í Møre og Romsdal í Noregi. Alls eru hans og kona hans, Katrín Markúsdóttir, með á fimmta hundrað kindur. 28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 withMemory Foam SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS HLAUPASKÓR MEÐ GÓÐU GRIPI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.